26.2.2008 | 20:39
Opinberlega er ég ..... ðulájrbla
Get varla sagt þetta orð, það fer bara á hvolf í höfðinu á mér!
Mikið á Fjallið það gott að eiga konu sem er "ðulájrbla", hann fær þá allavega frið fyrir mér þar sem ég er búin að fá þvílíka útrás. Hef bara ekki orku í neitt röfl eða vesen.
Verð að einblína á hvað ég elska og passa mig að halda mig elsku-megin línunnar. Hann er vissulega lukkunnar pamfíll. Einu sinni málaði ég risastórt málverk, það var af konu og bláum fíl .... ég spekulera í því hvort þarna séum við bara ekki lifandi komin ... af mynd í mynd!
..... Hamster Lady is back in town .....
Albrjáluð í íþróttafötum, gekk konan í hamsturfeld sínum að íþróttamiðstöð bæjarins. Ca. 20° hiti en allt gert til að kynda undir svitaperlunum. "love pearls" .... talandi um perlur þá selja Færeyingar Perlandi vín og er það flottasta nafn á kampavíni sem ég hef heyrt ...........
Algien decia Cava
En ég komst heil á leiðarenda, dýrsleg svitalyktin lagði keim að götunni og blandaðist hitastybbunni og konan nett í sínum þykka ham ... - .. sturfeld inn á þessa ræktandi holdarstöð!
Ég; pssst psst ... hóst, ég er komin til að ..... skrá mig.
Hann; Já vertu velkomin.
Ég; O.k ég bara byrja ... ( vel mér fitubrennsluvél og hamast á henni ... mæ dog! .... puff )
Hann; Dugleg ertu !!!
Ég; Komin á skíðavélina og bað um 20 mín lotu ... já og trakking ...
Hann; Ertu viss ...
Ég; Well til að gera langa sögu stutta, hamaðist eins og djöfullinn, hef aldrei verið jafn bleik í framan ..... eftir 42 mín á fitubrennslutækinu ákvað ég að gera teygjur. Sá bara stjörnur og fann varla fyrir fótunum.
JibbÝ ....
Ég greinilega léttist svo um munaði, fann ekki fyrir sjálfri mér, var komin í stjörnuhimin þar sem í myrku sjónrýminu voru bara stjörnur og ég rétt rataði á barinn í einn ískaldan ÖL .....
Það er bara fínt að vera AlBrjÁlaÐuR .... eða hvað?
Set inn mynd af mér í æfingagallanum, ef ég mæti aftur
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Oh það er svo gott að fá sér einn kaldan - tala nú ekki um þegar kona á hann svona innilega skilið
Stefnirðu á að passa í gulu skyrtuna?
Hrönn Sigurðardóttir, 26.2.2008 kl. 21:18
Hrönn ... já, ég kem og knúsa þig í gulu skyrtunni innan tíðar!
www.zordis.com, 26.2.2008 kl. 21:21
Hey, dugnaður í kellu, aldeilis kraftur. Ég væri til í að sjá mynd af málverkinu kona og blár fíll. ÉG safna fílum á núna 150 ca. Gangi þér vel í æfingunum. Krúttuknús til þín.
Ásdís Sigurðardóttir, 26.2.2008 kl. 21:21
Ásdís, þú færð líka knús í gulri skyrtu! djí vona að ég verði orðin slank og höj (samt næ ég þér ekki ... hoppaði niður af húsum þegar ég var krakki og held ég hafi hætt að stækka)
Já, ég þarf að finna fílamyndina .... Knús á ykkur Selfosspíur!
www.zordis.com, 26.2.2008 kl. 21:30
Ég safna ennþá bara fýlum......
Hrönn Sigurðardóttir, 26.2.2008 kl. 21:38
Góóóóð Hrönn ..... stundum er þeir líka "fýlarnir" bestir á bragðið ....
www.zordis.com, 26.2.2008 kl. 21:45
ÆI þú ert svo dugleg elsku Þórdís mín ég vildi að ég væri eins og þú en þar sem ég er bara 44 kg þá finnst ég vera ömurleg knús til þín.
Ég þrái að þyngjast.
Kristín Katla Árnadóttir, 26.2.2008 kl. 22:05
Nú lýst mér á konuna! (ekki að mér hafi ekki litist á þig áður
)
Svona á að nota skapið!
Sporðdrekinn, 26.2.2008 kl. 22:28
Já Katla það er vel skiljanlegt að vilja þyngjast og það er erfiðara að þyngjast þegar heldur en að grennast! Við erum í eilífðarbaráttu með okkur en þegar heilsan okkar er í hættu þá er víst betra að huga vel að sér.
Knús á þig Elsku Katla mín. Ég vildi óskandi gefa þér nokkur af mínum, elskulegu fallegu kílóum ....
www.zordis.com, 26.2.2008 kl. 22:35
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.2.2008 kl. 23:03
Ég skal vera með þér í anda í gimminu.... held minn ofur-óþjálfaði skrokkur geti ekki meir í bili, fæ harðsperrur af tilhugsuninni

Knús á þig krúzlan mín
Elín (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 23:09
Hey þú ógisslega töff......langar í svona brjálæðiskast.
Knús elskling
Solla Guðjóns, 26.2.2008 kl. 23:53
Stelpur þið eruð pínu brjál líka er það ekki, vonandi! Sporðdreki, Ollasak, Katrín og Móðir ..... flottasta knúsið fer út í heim núna!
Held að þessi líkamsrækt hafi gefið mér orku í daginn, enda kominn morgun en þar sem kona þarf að vakna þá ætla ég að senda feitan fingurkoss til allra sem staldra við .....
one in a milljon wins a charm!
www.zordis.com, 27.2.2008 kl. 01:29
Brynja skordal, 27.2.2008 kl. 01:53
Oh ég vildi ég hefði orku í líkamsrækt og Katla þú mátt sko fá fullt af mínum kílóum
gangi þér vel í ræktinni
Guðborg Eyjólfsdóttir, 27.2.2008 kl. 06:48
Gangi þér vel !
Anna Gísladóttir, 27.2.2008 kl. 07:53
jiiiiiiiiiiiiiiii hvað dugnaðurinn er mikill í þér kona - ekki alveg laust við öfund hérna megin
Dísa Dóra, 27.2.2008 kl. 11:19
frábært !!! og gott er að vera brjáluð, en ef ég hugsa mig um, hver er brjálaður, og hvað er það ??
Bless í daginn kæra kona
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 11:44
Ef þú ert albrjáluð, mundu sjálfsagt fleiri vilja vera það!
Þvílíkur kraftur virðist vera í konunni!
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 27.2.2008 kl. 13:24
Gangi þér vel, þjáningarsystir!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.2.2008 kl. 21:20
Þú ert frábær. Erfiðast við líkamsrækt er að taka þetta STÓRA skref að koma sér niður á líkamsræktarstöðina. Þér tókst það með stæl... svo fyrsta vikan erfið en eftir það er þetta písofkeik, eða næstum ;)
Er búin að vera í svaka átaki síðan í nóv. og náð fleiri kílóum en tveggja ára sonur minn vegur. Kannski aðalmálið er að ég hef fengið aukið þoli til að hlaupa á eftir tveggja ára stubbinum hahaha :)
Knús á þig og haltu ótrauð áfram í þessu öllu saman :)
Srósin (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 22:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.