Sólríkur og fallegur dagur ....

..... ég vaknaði falleg, var með fallega verki í upphandleggjum og fann örlítið fyrir því að ég tók brjálæðiskast í gær!

Hrikalega þekki ég mig of vel og ætlaði að henda mér á fitubrennslutækin aftur í dag og taka á honum en náði að snarhemla mig niður og fór þess í stað í átt að strandlengjunni með mínum elskulega ástarpung eins og ömmumúsin mín hefði kallað afa heitinn .....

Við lögðum bílnum ofarlega í brekku og gengum hana niður, sólin var enn á lofti en í þann mund að tilla sér.  Ekkert fallegra né meira rómó en að ganga berfættur í flæðamálinu.  Ég fór úr kápunni og lagði hana í sandinn og við settumst og horfðum á sólina læða sér neðar.

Ungt par og ástfangið fór í sjóinn og það fór nú eiginlega um mig.  Sennilega hefði ég gert það sama fyrir 10 árum en nú sem settleg frú hvarflaði ekki að mér að meika eitt stk. B O M B U .... Nó vei hósei!  Þrátt fyrir um og yfir 20° þá er sjórinn allt of kaldur fyrir svona dýfur!

La Zenia ströndin ...

Ef marka má þessa mynd, má nokkurn vegin gera sér grein fyrir útsýni okkar því við sátum á þessum stað.  Sjórinn var örlítið lygnari en þessi mynd sýnir sem er fengin að láni á netinu.   Þegar ég sat og horfði á sólsetrið fann ég eitthvað svo djúpt inní mér, varð sæl og langaði að gera svo margt.  Góðar tilfinningar sækja gott til okkar!  Ég fór með teikniblokk og græjur en gerði ekkert í þeim málum heldur lagði höfuð á herðar Ektamannsins og lét mig dreyma um það góða!

Eftir dágóða stund héldum heim á leið, drengurinn er að læra margföldunartöfluna á meðan "ðe hamsterlady" lætur krauma í heimagerðri lauksúpunni.  Skera niður lauk nær konu alveg niður á jörðinna úr sæluheimi drauma og dásemda!

Whip me

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið rosalega er þetta falleg mynd og rómantíkin að blómstra. Maður verður já svo sæll að upplifa svona fegurð ... ég sé þessa stund hjá ykkur svo ljóslifandi fyrir mér. Knús og kveðjur og kossar frá Íslandinu góða.

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 18:17

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

sumar, sumar og sól lalalalalalla

ljómamdi rjómandi kveðjur í rómantíkina Bless í kvöldið fallega, sit með Múmín við aðra höndina, Lappa við hina að horfa á fréttirnar með mér ! Sólin elskuleg hangir við bakið á mér, svooooo huggulegt !

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 18:27

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegt lífið hjá ykkur þarna í úttlöndum.  Ég vaknaði líka falleg í morgun en er ljót núna, kom mér upp höfuðverk sem ég fæ sjaldan. Ætla að leggja mig.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 18:36

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hef verið þarna, hló mig svo máttlausa akkúrat á þessum stað að það lá við að ég migi undir

Hrönn Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 18:59

5 Smámynd: www.zordis.com

Hrönn hvað var svona fyndið ????  Varstu að kaupa þér ávöxt eða kjól eða hvað ??  Ég ætla aftur á morgun og athuga hvort ég sjá þetta fyndna og vera með kopp með mér ......

Fregn, sultardropar, kommon ... er svona kallt hjá ykkur???

Ásdís mín láttu þér nú lagast verkurinn í höfðinu, samkvæmt Louis Hay þá eru samfarir eða sjálfsleiknin best til að losna við höfuðspennuna! 

Doddi dúlla ...  kossar og knús til þín!

www.zordis.com, 27.2.2008 kl. 19:05

6 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég er líka með trilltan höfuðverk og Pálmason á fjöllum.......þannig ég fæ mér bara súkkulaði......

Getur verið að ég hafi dottið úr hjólabát í fjöruborði þessarar strandar????

meika BOMBU í sjónum

love you..

Solla Guðjóns, 27.2.2008 kl. 20:12

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég vaknað líka fallega. Þetta er mjög falleg mynd af ströndinni , Oh hvað ég vildi vera þarna núna. Knús á þig elsku Þórdís mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.2.2008 kl. 20:14

8 identicon

Ohhh ég fékk líka svona "vá hvað mig langar til að vera þarna" yfir mig.... "ég lít upp að landi og sé klifurgrind sem börnin mín hanga í".......
Knús á þig úr sultardropalandi (frost alla vikuna) 

Elín (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 20:41

9 Smámynd: Sporðdrekinn

mmm en rómó  

Ætlar "The hamsterlady" ekki að fara aftur á morgun að hamast?

Sporðdrekinn, 27.2.2008 kl. 20:59

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Vá, þetta vermir í frostinu!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.2.2008 kl. 21:21

11 Smámynd: www.zordis.com

Sporðdreki ... ðe hamsterlady fer í loðna leikfimisoutfittið og tekur á því!

Guðný Anna, ég veit að svona sólarstrandir kippa huganum frá fögru frosti og himnabraki!  Elska íslenskt veður .... svona í fjarlægð!

Stelpur það er voða rómó að finna þessa tilfinningu að bora tásunni oní sandinn og bora andlitinu í hálsakot á elskunni sinni !!!!

Já, og Ollasak ..... súkkulaði hvað / skella sér í sjálfsleikfimina !!!!!

Elín, það styttist í sólina hjá þér .....

www.zordis.com, 27.2.2008 kl. 21:49

12 Smámynd: www.zordis.com

Móðir, ég fékk næstum því glamúr í tennurnar (glammrandi sko en glamúr er flottara) ..... Sá okkur ekki fyrir mér að kasta okkur í sjóinn og synda út á haf og fólkið var sko ekki með handklæði ....

Það er æði að vera úti í volgum sjónum með familíunni en þetta var toppurinn á kúlinu!

www.zordis.com, 27.2.2008 kl. 21:54

13 Smámynd: Sporðdrekinn

 Svei mér þá ef að ég myndi ekki bara borga fyrir að sjá mynd af þér í múnderingunni!

Ég er ánægð með þig

Sporðdrekinn, 27.2.2008 kl. 22:33

14 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þú ert alltaf falleg Þórdís   en þetta gerir útslagið, nú flyt ég til Spánar

Huld S. Ringsted, 27.2.2008 kl. 23:31

15 Smámynd: Brynja skordal

Ah næsssss bara langar aftur út í sólina þetta hefur verið ljúf stund Hér snjóar núna brrrr En smá forvitni hvar á spáni ertu?

Brynja skordal, 28.2.2008 kl. 02:33

16 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Þórdís, þú ert yndisleg , málar myndir jafnt með pensli og orðum

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 29.2.2008 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband