Íllræmd leið til vellíðunar ...

Þetta er nú meiri aðferðin.  Masókismískt ástand á "ðe hamsterlady" .... JÁ, ÉG FÓR W00t sjálfviljug ... mér var íllt í öllum skrokknum og finn að mér mun ekki líða betur á morgun!

Með íllu skal íllt út eða í burtu reka, það er alveg greinilegt!  Kg in læðast á mig í massavís þegar hazarkroppurinn sofnar á verðinum.  Er það nema von að ílli andinn sem býr í konukroppnum feli baðvogirnar og brjóti alla spegla. 

Var síst að skilja hver elti mig á röndum út um allt en þá var það bara silalegur skugginn sem ég mætti og dauðbrá!

(fann enga nógu góða mynd)

ðe hamsterlady afrekaði annan sadó masó tíma í dag og þjálfarinn lét mig ekki í friði.  Ég var eins og loðhnoðri á skíðavélinni, brosti með glæra glossið og hollýwood málninguna á feisinu (alltaf flott) svo þerraði mín svitaperlurnar á meðan hann talaði við mig um mat.  Kommon, hann var að spjalla um mat, franska snigla og froskalappir, þýskt eðal snitsel og sauerkraut!  WHAT .... IS SOMETHING WRONG "hugsaði ég (hann er enskur)"  Hvað er að, wow .....

Ég er greinilega bara svona HOT í þessu loðna outfitti að þessir litlu mjóu karlmenn tapa sér í svona g-kasti.  Eða ég geisla af móðurhlýjunni, þeir þyrpast að mér til að fá að kúra sig í mig .....

Allavega þá er ég búin í öxlunum, tók 25 mín á skíðavélinni, 15 mín á hlaupabrautinni .... fór í tæki sem styrkja upphandleggi og brjóst .... teygði mig og togaði fyrir framan spegilinn (þar var þessi ókunnuga kona komin aftur, örugglega um fertugt) Svo snappaði ég og tók 7 10 mín á hjólinu ...

GARGANDI SNILLD .... LÉTTIST AFTUR

Sá varla út úr augum, varð bleik og þarf að láta vatnið hreinsa áruna mína, skola af mér þreytuna og fara í sparigallann .... Já, það er allt að gerast elsku vinir mínir .... Nú er ég komin í Masó deildina.

WHIP ME


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Dugnaðar kona ertu ég er viss um að hann hefur geislað af fegurð þinni ljósið mitt.Þú er gargandi snilld.

Kristín Katla Árnadóttir, 28.2.2008 kl. 18:38

2 Smámynd: www.zordis.com

Takk elsku Katla mín, en bara til að árétta þá var ég ekki í 710 mínútur á hjólinu heldur ca. sjö til tíu ... var orðin svo dofin í höfðinu og sá ensku límdur uppvið mig ....    kanski var hann að teika!

www.zordis.com, 28.2.2008 kl. 18:45

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er búin að hvíla mig í sófanum og rúminu í allan dag, fór út að labba þrjá síðustu daga og í dag var hvíldardagur, ekki eins úthaldsgóð og Drottinn, hann hvíldi sig ekki fyrr en á sjöunda degi  fermingarstelpan er komin í ramma í gluggann hérna við hliðina á mér og ég er alltaf að gefa henni auga og hugsa til þín.  Flísin er æði uppá vegg. Leap Year

Ásdís Sigurðardóttir, 28.2.2008 kl. 18:49

4 Smámynd: www.zordis.com

Já, Ásdís ... við erum konur en ekki guðir svo það á að hvíla sig til að duga ævina á enda!

Ég er himneskt ánægð að þú sért sátt og sæl!  Ég þarf að senda þér nokkur tækifæris fermingarstelpukort því ég fann hjá mér slatta sem fór ekki þegar flæddi inn í kjallarann.  Hins vegar er Síló enn í feluleik.

Knús til þín dúlla og hvíldu þig vel og lengi!

www.zordis.com, 28.2.2008 kl. 19:01

5 Smámynd: www.zordis.com

Ég er með myndir á Íslandi en hvergi í verslun!  Sendu mér bara línu Móðir og ég get sagt þér betur frá og svarað þér öllum þeim spurningum sem þig langar að vita!

www.zordis.com, 28.2.2008 kl. 19:29

6 Smámynd: www.zordis.com

já, meilið er hér í höfundamyndinni, zordis@zordis.com ...

www.zordis.com, 28.2.2008 kl. 19:34

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ég las "sjötíu mínútur á hjólinu" og hugsaði: Vá hún er komin yfir til Marokkó

Hrönn Sigurðardóttir, 28.2.2008 kl. 19:35

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Þetta kallar maður að taka á'ðí..

Sprellandi masókona laðar að.Ekki spurning.......

Gangi þér annars vel elksling

Solla Guðjóns, 28.2.2008 kl. 20:14

9 Smámynd: Sporðdrekinn

Satt best að segja þá finnst mér fólk sem tekur vel á því ljóma af kynþokka. Það er eitthvað við að sjá ákveðnina í andlitinu og í fasi fólksins.

En hvernig einkaþjálfaranum þínum dettur í hug að vera að tala um mat við þig á meðan að á æfingum stendur skil ég ekki. Ekki nema að hann hafi verið að gefa þér góð ráð, hvað sé besta að borða til að ná sem bestri brennslu og svona.

Masó deildin lengi lifi!

Sporðdrekinn, 28.2.2008 kl. 21:05

10 Smámynd: Brynja skordal

já las einmitt líka 70 mín og hugsaði vá úthaldið á minni En Dugleg ertu og takk fyrir komment svarið á minni síðu knús til þín í blíðunni(smá öfund sko) nei það má ekki samgleðst þér

Brynja skordal, 28.2.2008 kl. 21:51

11 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Gangi þér vel í masódeildinni

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 29.2.2008 kl. 00:47

12 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Það er nú bara kraftur í þér kona

Guðborg Eyjólfsdóttir, 29.2.2008 kl. 05:39

13 Smámynd: Inga Steina Joh

Þyngdarlögmálið er lögmál. Allt sígur til jarðar og á endanum er það búið að vinna svo hrottalega yfir okkur að við erum undir jarðmottunni. Og eina leiðin til að halda sér hrukkulausum er að fitna í takt við hrukkurnar sem myndast. Svona er þetta bara. 'Eg held að ég fái mér frekar nokkra ísa í staðinn fyrir  dýrt hrukkukrem,moahahahahahhaaaaaaaaaaaaa. Ok, ok, þetta var þessi litli rauði á öxlinni á mér sem talaði. En letin kemur virkilega í veg fyrir svona sprell hjá mér. En ég bara beygi mig niður i rykið fyrir þér og segji húrra fyrir sjálspíningunni, slap,slap. (You asked us to whip you). Knús til þín dúlla og verkjandi vöðva.XXX

Inga Steina Joh, 29.2.2008 kl. 08:42

14 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Jú, dúllan mín mér brá geðveikt, en viðbrögðin voru mega hlátur.  Nú er ég að leggja inn hjá þér.  Hlakka til að hitta þig eftir 18.mars verð hér heima á Selfossi.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.2.2008 kl. 18:14

15 Smámynd: Hugarfluga

Svakalega ertu duglegt! Ég er stolt af þér! Ætla að gera eitthvað svipað á næstunni ... ef hlutir þróast þannig.

Hugarfluga, 29.2.2008 kl. 18:53

16 Smámynd: www.zordis.com

Svo er leikfimi á morgun .... bling!   fer í leikfimisgallann og vonandi fer ég

www.zordis.com, 29.2.2008 kl. 19:57

17 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

ðe hamsterlady það sem þér dettur í hug kona mín..hehe!!!

Gangi vel í endurmótun líkama píkama. Legg í þessa ferð þegar ég fer að fíla mig sem hamsterlady og þrá mín eftir fiðrildafluginu verður mér ofviða

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 29.2.2008 kl. 20:50

18 Smámynd: Huld S. Ringsted

Elsku fallega kona, ekki klára þig alveg í sadó masó tímunum þínum! við viljum njóta þín aðeins lengur

Huld S. Ringsted, 29.2.2008 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband