13.3.2008 | 09:33
Tíminn er núna ...
.... hefur aldrei verið meira áberandi og stendur beint fyrir framan mig!
Ég fékk gott fólk í heimsókn í gær, brilljant veður og gott spjall. Það smá saxast á þakflísarnar og í gær fór ein af mínum uppáhalds yfir hafið. Ég hef ekki setið auðum höndum undanfarið, hef verið þreytt og tók á frk. þreytu í gær og fór að sofa fyrir klukkan 22.00 og er eins og nýslegin í dag!
"Moi" átti inni pöntun á þakflísum sem eru 50 cm á lengd og var spennt að geta hafist handa við efnið en allt kom fyrir ekki að þegar ég fór til að sækja pöntunina hafði verðið hækkað um helming frá því ég panta og varan kemur! Þakflísar fara hækkandi eins og bensínverðið ... nú er bensín ódýrara en olía ..... Algjört hneyksli í landinu mínu. En, þegar ég var að grammsa í þakflísadeildinni (heavy gramms) þá fann ég algjörar dúlluþakflísar og ákvað að kaupa nokkrar og þvílík krútt!
Sjáið munin ....
Dagurinn í dag verður stútfullur hjá úthvíldu konunni. Ég finn fyrir þakklæti sem er boði á góða hluti. Ekki að ég hafi ekki nóg að þakka fyrir! Ísland er á næsta leyti .... þakflísaflutningar þar sem ég ætla selflytja verkin heim í handfarangri og útvega mér stað þar sem hægt er að sjá þau "læf".
Til gamans þá læt ég ykkur njóta nokkurra krútta sem hafa bæst í safnið ... myndirnar eru teknar án flass en birtan er ógurleg hjá mér .... Verðin á flísunum eru; 14.000 krónur stærri flísarnar (40 cm) og 8000 krónur þær minni (20 sm) ..... fyrir ykkur sem hafið áhuga!
Þakflís 20 cm
20 cm þakflís
Eigið yndislegan dag
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:32 | Facebook
Athugasemdir
Það var gott að þú fékkst gott fólk í heimsógn í gær gott að þú hefur að náð að hvíla þig elsku Þórdís flísarnar þínar eru svo fallegar.
Eigðu góðan dag mín kæra Þórdís.
Kristín Katla Árnadóttir, 13.3.2008 kl. 10:01
Hæ, hæ Þórdís
Ég er sammála Kötlu flísarnar eru mjög fallegar! Ég býð spennt eftir að fá að sjá þetta allt saman life ;o)
Góðar kveðjur frá okkur á Egilsbraut 24 til ykkar á spáni.
Freyja (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 10:07
Já Móðir ég hringi ... Freyja við hittumst og Katla takk fyrir þín hlýju orð!
Er hlaupin út í vorið, ca 20 ° núna ....
www.zordis.com, 13.3.2008 kl. 11:37
Fallegar nýju flísarnar þínar, enda ekki við öðru að búast
Sporðdrekinn, 13.3.2008 kl. 12:44
Það styttis í að þú kemur, ég hlakka svo til. Verð sko að hitta þig og flísarnar, veit að systir mín ein mundi vilja sjá þær og ef til vill fleiri. Knús
til þín ljúfa kona
Ásdís Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 15:16
Takk og Ásdís við verðum að deita ... er ekki kaffi á Krúsinni alveg tilvalinn staður?
www.zordis.com, 13.3.2008 kl. 15:20
það er gott að skapa, þá leikur barnið sér !
fallegt texti og myndir.
Blessi þig
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 16:57
Þær eru æðislegar flísarnar þínar.
...hvenær verður KaffiKrús-sýning á þeim á Íslandi?

Marta B Helgadóttir, 13.3.2008 kl. 20:23
Zordís mín, þú verður að auglýsa hvar þú ætlar að halda sýningu þegar þú kemur. Mikið hlakka ég til að sjá verkin þín -- og þig.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 13.3.2008 kl. 21:03
Æðinslegar flísar, endilega láttu vita þegar þú kemur og verður með sýningu
Guðborg Eyjólfsdóttir, 14.3.2008 kl. 00:33
Veistu eitthvað um hvenær þú verður næst með sýningu, hér heima?
Mann er farið að langa til að sjá verkin þín , svona beint, fyrst maður getur orðið svona heillaður af því að sjá myndir af þeim, hlýtur hitt að verða STÓR UPPLIFUN
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 14.3.2008 kl. 08:22
Hæjjj ástin ég er farin að telja niður og okkur stöllum hér í þolló er farið að hlaka mjög til að hitta þig........
Ertu með sýninguna þarna þú veist????Ef ekki þá æ fékk hugmynd humm !!!!!
Dúllu flísar og hinar flísarnar eru algert æði og mig vantar VEGG
Knús á þig rúslurasinn minn
Solla Guðjóns, 14.3.2008 kl. 10:10
Krúsin er ulpplögð, þú þarft að hitta fleiri konur en mig hef ég grun um, við getum haft fjöldahitting.
Ásdís Sigurðardóttir, 14.3.2008 kl. 18:01
Hrönn Sigurðardóttir, 14.3.2008 kl. 22:18
Finnst krumminn svo mikil snilld, sætar þessar litlu flísar
Hlakka til að sjá þær læf!
Nú eru ekki margir dagar eftir! 
Knús smús á þig á föstudegi
Elín Björk, 14.3.2008 kl. 22:34
Hafðu góða helgi mín kæra
Brynja skordal, 15.3.2008 kl. 00:15
Verðið hækkar með eftirspurn :(. Flísarnar þínar eru bara " kjempefine, nydelige, herlige, röffe, töffe, frábærar...... :D. Þær eru rétt og slétt unikum
Gleðilega páska
Inga Steina Joh, 15.3.2008 kl. 06:46
já rétt þetta geta verið snilldar brúðargjafir
Margrét M, 15.3.2008 kl. 10:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.