17.4.2008 | 17:06
Flaskan mín fríð ....
.... fer þér ekki bráðum að ljúka?
Ekki leiðist mér einni og nýti flöskuna þótt henni sé löngu lokið. Það var eitt sinn á gamla heimilinu mínu, einn ljúfan sumardag að ég ákvað að mála á striga. Skellti mér í kjallarann og greip með mér galtóma kampavínsflösku. Tilgangurinn var að mála mynd með flöskunni. Þar sem flaskan var græn tók ég fram græna og hvíta olíuliti og klappaði flöskunni. það kom enginn andi út úr henni enda hafði hann verið dreyptur helginni áður við mikinn fögnuð allra þó aðallega mins eigin.
Og svona endaði þetta ....
Mér hefur dottið í hug að prófa að mála með líkamshluta öðrum en gengur og gerist. Ath. Fjallið verður ekki tekinn í tilraunir Nema að hann vilji ......
Í kvöld förum við mæðgur í afmælisveislu, alveg að skella á svo það er betra að fara að setja á sig gerfiaugnhárin, gerfi brjóstin, gerfi bossann og setja nýjan ultrasjæn gloss á varirnar.
Þarf að horfa á Stuðmannamyndina bráðlega.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Þú ert sannur listamaður, það verður ekki frá þér tekið. EG sá myndina þína hjá Hrönn þegar ég kíkti til hennar, hún er algjört æði. Knús á þig elskulegust og njóttu lífsins.
Ásdís Sigurðardóttir, 17.4.2008 kl. 17:29
Eigum við að syngja saman flaskan mín fríð
en annar þessi mynd er svakalega flott ein og allar myndir þína elsku Þórdís mín.
PS skemmtið ykkur vel í afmælisveislunni.
Kristín Katla Árnadóttir, 17.4.2008 kl. 17:32
Flott útkoma segi ég nú bara
Sé þig fyrir mér prófa að mála með rassinum haha

Dísa Dóra, 17.4.2008 kl. 19:55
Nú veit ég allt um hvað þú varst að borða í afmælinu.
Sú græna er æði.
Pjólu kveðjur

Solla Guðjóns, 17.4.2008 kl. 22:18
mér leiðist allt geim, nú langar mig heim... falleg mynd, ég hef sagt það áður og segi það enn!
Knús á þig sæta
zoti (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 22:33
Guðmundur það verður ekkert gerfi með! Ég hef málað á líkamann og á mjög svo prívat hluta .... Það veldur kátínu að hugsa til þess því á bak við það var engin erótík heldur var það áskorun! Verst að eiga ekki mynd af því, vegna hversu fagurlimaður viðkomandi varð
..... Svo fór ég á námskeið í leikhúsförðun og var það áhugavert.
í og með, skulum við segja!
Zotinn minn, brátt kemur þú heim í það frábæra Geim ...
Sollan mín Pjóla, pjóla
Ásdís, takk gaman af því.
Katla við getum vel tekið lagið saman og Dísa Dóra
Gréta, ég er staðráðin í að njóta lífsins, allt of stutt!
www.zordis.com, 18.4.2008 kl. 05:56
mannst elskan við ætluðum einhvern tíman að mála brjóstamynd saman kjörinn líkamshluti til að mála með :P
knús á þig elsku vinkona !
Sigrún, 18.4.2008 kl. 08:51
græna myndin er afar fín
Margrét M, 18.4.2008 kl. 08:51
Góður innblástur þessi flaska þín :)
Vatnsberi Margrét, 18.4.2008 kl. 10:07
það er sko ekkert leim að koma heim í geim
Elín Björk, 18.4.2008 kl. 17:20
Ó nei það er ekki ónýtt að koma heim í geim, Elín ... sá að þú varst að logga þig inn ...
www.zordis.com, 18.4.2008 kl. 17:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.