Sunnudagstónar óma ....

.....  Bidda litla bloggvikona stendur fyrir tónlistinni sem ómar, kóratónlist hreint yndisleg!

Sunnudagur 3 febrúar

Mínir eðalsteinar,

blóð og tár.

Börnin bæði

yndi og æði.

Heart

Hún er dama

orðin stór.

hann er ljón,

hálfgert flón.

.....

?

Börnin svo blíð og tær gefa okkur von um betri heim, gefa okkur það góða sem býr í hjartanu.

Verð að fara ... 1/2 færsla er betri en engin!  Kirkjan kallar og litli fermingardrengurinn bíður eftir að foreldrarnir komi í sálarþvott!

Eigið yndislegan sunnudag!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Eigðu góðan sunnudag Þórdís

Huld S. Ringsted, 18.5.2008 kl. 09:59

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Yndisleg þessi systkyn

komdu svo hvítþvegin til baka

Solla Guðjóns, 18.5.2008 kl. 12:39

3 Smámynd: www.zordis.com

Yndisleg þótt þau rífist eftir hádegismatinn og og og ... fórum eftir messu einn rúnt, borðuðum á mexikóskum stað, fékk mér fyllta flautu og bíð eftir að meltingin samþykki hana.  Svo héldum við með börnin á Sirvent ísbúðina í Centro Torrevieja og nú er ég sybbilíus og langar að vefja mig inn í teppi og horfa á góða mynd.

Ætlaði að mála í allan dag en svona breytast plönin ....

Messan var yndisleg þótt svo að sonurinn hafi haft meiri áhuga á því að fíbblast í vini sínum en að hlusta á guðsorð ....

www.zordis.com, 18.5.2008 kl. 14:48

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Börnin okkar eru best.

Knús til þín syfjaða og sadda kona

Sporðdrekinn, 18.5.2008 kl. 15:22

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hanga svo ekki skínandi hreinar sálirnar á þvottasnúrunni til þerris meðan kona meltir flautur og ístóna með súkkulaði og jarðaberjum??

Hérna megin er búið að slá grasflötina og labba hringi með barnabarnið. Við erum moldug að utan sem innan og veitti ekkert af smá þvotti. Setjum bað á dagskrá.

Knúskveðjur yfir til ykkar..ísland er bara batnandi og betra veður með hverjum deginum.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.5.2008 kl. 17:01

6 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Yndisleg börn og skrítið ef þau rifust ekki stundum. Það er nú ekki alltaf hægt að vera sammála öllu.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 18.5.2008 kl. 17:40

7 Smámynd: Halla Vilbergsdóttir

magnað alltaf hjé ykkur ;) svo fer eg að koma i sólina...fengum boð um skipti á sumarbustað og ibuð á san miguel eitthvað hehe það er verið að skoða það,,,er það rétt hjá þer ;) veistu hvernig er þar.

kv halla

Halla Vilbergsdóttir, 18.5.2008 kl. 21:10

8 Smámynd: Dísa Dóra

Yndisleg færsla eins og þín er von og vísa

Hafðu það gott kæra bloggvinkona 

Dísa Dóra, 18.5.2008 kl. 21:23

9 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Flott mynd af gullunum þínum :)

Vatnsberi Margrét, 18.5.2008 kl. 23:05

10 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Fallegur pistill hjá þér Þórdís. Hafðu það sem allra, allra best.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.5.2008 kl. 01:37

11 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

yndislegt, fallegt dásamlegt ! var einmitt að skrifa um mína litlu skottu.

Bless í nóttina

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 19.5.2008 kl. 19:16

12 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Steina á afmæli á morgun (þriðjudag) fædd 20. 05. 1960. Láttu það ganga.

Gunni Palli kokkur.

Gunnar Páll Gunnarsson, 19.5.2008 kl. 20:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband