Að finna og lopann spinna ...

Tilfinningin mín er eitthvað svo ljúf!

Að tilla sér á hjartans strengi og finna ilinn sem geislar frá miðju alheims okkar, líkamanum.

Hugur leitar mörg ár aftur í tímann þegar ég skammaðist í ömmu minni sem hafði í röggsemi sinni búið um rúmmið mitt, hún var yndisleg og góð.  Mig dreymdi ömmu í nótt og þá hafði ég gleymt að fara til hennar í afmæli og í draumnum var mér sama og hringi í hana til að láta hana vita að ég hefði bara gleymt mér ......

Það er ekkert eins og var, það eina sem ég hef í hendi mér er að skapa framtíð sem gefur af sér góðar minningar og NJÓTA tímans. 

Ég nenni ekki að hlaupa og vera á síðasta snúningi, ég nenni ekki að vera að missa af sumu heldur vill skapa mér góðan stað á streng hjarta míns og hylja mig hjúpi sem segir mér að NÚIÐ er mitt eina lífsfæri og út frá því skapist tækifærin.

Úllen dúllen doff

Ég fór til Alicante borgar og datt inná flotta myndlistarsýningu.  Svo flotta að ég heillaðist gjörsamlega af einum listamanni er heitir Josep Cores og málar beint í hjarta mitt!  Heimasíðan hans er því miður ekki neitt sérstök en þar má sjá falleg verk hans.  www.josepcores.com ..

Hvað finnst ykkur um þennan ljúfa mann.  Verk hans eru samtímis mikilvæg sem fögur.  Hann setur svo mikla persónu í verkin sín ................. 

Um helgina höfum við notið okkar, borðað góðan mat, hitt tengdafjölskylduna og fullt af góðum atburðum sem komu og fóru án þess að við tókum eftir þeim.  Þessir litlu og sjálfsögðu hlutir sem gera daginn eftirminnilegan, brosið þitt og nærvera, klukknahljómurinn í kyrrðinni og fuglasöngur í kjölfar sólargeislans er snertir nefbroddinn.

Set inn eina af mínum myndum, því Josep vill ekki að hans myndir birtist á annara manna síðum.

Hvíslad

Hvíslað, Olía á Striga

Ég er búin að vera dugleg að munda pennslana um helgina og ætla að hvíla mig á stóru strigunum og slaka á yfir vænni flís .....  Aldrei að vita hvað litirnir hvísla að mér í kvöld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hann Josep er yndislegur. Þú er það líka elsku Þórdís mín.

Svo er myndin þín falleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 25.5.2008 kl. 19:02

2 Smámynd: Solla Guðjóns

verk Joseps eru dásamleg.

Solla Guðjóns, 25.5.2008 kl. 19:38

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Þú náttúrulega veist að mér finnst allt eftir þig æði (nema ein mynd sem manninum þínum finnst heldur ekki flott) enda með nokkur verk á veggjunum hjá mér eftir þig

Solla Guðjóns, 25.5.2008 kl. 19:40

4 Smámynd: www.zordis.com

heheehhe Solla það er nokkuð !!!

Kveðjur til ykkar kæru bloggvinkonur ... nú ætla ég að ganga frá eftir matinn og finna til dótið mitt (á ekki við Fjallið heldur pennslana) ha ha ha ha .....

www.zordis.com, 25.5.2008 kl. 19:44

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

það er gott að vera meðvitaður í núinu, þá skerpist hugsunin og það er gott.

Ljósálfur til þín frá fallegri danmörku !

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 25.5.2008 kl. 20:08

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Flottar myndirnar hjá honum, sjálfsagt enn flottari að sjá þær "live" en þínar myndir eru líka æðislegar og ætla ég að eignast eina eftir þig einhverntímann

Huld S. Ringsted, 25.5.2008 kl. 20:37

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þú ert sennilega alger snillingur í því að lifa í núinu. Það getur verið snúið eins og þú veist í ógnarhröðum takti hversdagserilsins.

Takk fyrir að benda á síðu Cores; mér finnst hann æðislegur, en vissi ekki að hann væri til..! Svona opnarðu nýja heima, kona góð!

 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 25.5.2008 kl. 21:11

8 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Falleg mynd :)

Vatnsberi Margrét, 25.5.2008 kl. 21:33

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Flott mynd

Marta B Helgadóttir, 25.5.2008 kl. 21:42

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Fékkst þú ekki póstinn frá mér elsku Þórdís mín.????

Kristín Katla Árnadóttir, 25.5.2008 kl. 22:41

11 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Rosalega er þetta flott mynd!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 25.5.2008 kl. 23:46

12 Smámynd: Sporðdrekinn

Skemmtilegur stíll hjá þessum Josep, gæti sjálfsagt eitt smá tíma í að skoða þær á safni.

Hverju hvíslar fuglinn að konunni?

Sporðdrekinn, 26.5.2008 kl. 03:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband