Tilfinningarnar láta ekki sussa á sig ...

Ég er svo glöð yfir dotlu og hjartað í mér er meirt yfir dotlu.  Það má nú segja að tilfinningarnar taka engu tjasli þegar útrás hjartans hefur flæði sitt.

Mig langar að senda sterkri konu yndislega strauma og senda henni brot af mínum kærleikshugusunum.  Skrítið hvernig við þekkjum okkur lítið þegar við þekkjum okkar samt alveg helling.

Ég á litla postulínskúlu sem er með myndum af englum og blómum.  Í þessa litlu kúlu ætla ég að setja ástina, vonina og kærleikann og vona að það sáldrist jafnt úr henni til okkar allra.

Heart

Í augnkrók læðist lítið tár

gleðinnar hrókur fagnaðar

ástin og engill bæta sár

er þér hlúa ljúfa kona.

Tárið niður vangann æðir

það snertir mína sál

rödd þín hjartað kærleika gæðir

duglega yndis kona.

Tárin eru demantar sem koma frá sálinni ... það er gott að gráta

.......

Ástin

Hvad er betra en ástin

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég átti móðursystur sem var mér, og öllum öðrum, afskaplega góð.  Ég var einhverju sinni í gæslu hjá henni sem lítil stelpa, við sátum við eldhúsborðið hennar og röbbuðum saman, hún var eflaust að hvetja mig og telja í mig kjark.  Ég var alltaf örugg nálægt þeirri konu. 
Einhverju sinni sagði ég henni að þegar ég yrði stór myndi ég verða ofsalega rík og þá myndi ég að gefa henni gull og demanta í massavís.  Hún brosti bara og þakkaði mér fyrir það.
Svo varð ég stærri og ekkert átti ég gullið og enga demantana til að gefa henni.  Svo ég málaði mynd við ferskeytlu eftir Stein Steinarr og gaf henni. 

Þó að leiðin virðist vönd
vertu þá aldrei hryggur.
Það er eins og hulin hönd
hjálpi er mest á liggur.

Hún rammaði myndina inn og hafði upp á vegg hjá sér og þar hékk það þangað til hún dó.  Gull og demantar geta komið í margskonar myndum.

Inga Helgadóttir (IP-tala skráð) 7.6.2008 kl. 12:52

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.6.2008 kl. 14:12

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Falleg færsla elskulegust  líka það sem Inga segir okkur frá gull og demantar liggja í mörgu   Kær kveðja í góða veðrið, hér rignir og blæs og þoka.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.6.2008 kl. 18:26

4 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Ástin er taug sem tengir saman jarðkringluna.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 7.6.2008 kl. 18:59

5 Smámynd: Elín Björk

Hjúts knús á þig engillinn minn
Síjú verrísún

Elín Björk, 7.6.2008 kl. 20:18

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Og enn nærðu að snerta hjarta mitt

Hrönn Sigurðardóttir, 7.6.2008 kl. 21:54

7 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Svava frá Strandbergi , 8.6.2008 kl. 00:19

8 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

þakkir til þín!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 8.6.2008 kl. 03:21

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ástin er best, flottust og mest...sigrar allt

Heiða Þórðar, 8.6.2008 kl. 10:41

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til þín og þinna elsku Þórdís mín sem alltaf er svo góð.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.6.2008 kl. 14:32

11 Smámynd: Sporðdrekinn

Þú ert svo falleg og orðin þín!

Ljóðið er fallegt, ég feldi demant við lesturinn

Ekkert, ekkert er betra en ástin!

Sporðdrekinn, 8.6.2008 kl. 17:19

12 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 8.6.2008 kl. 23:52

13 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

þú ert bara yndisleg, bara að þú vitir það !

Blessi þig inn í fagurt kvöldið, með fugl á grein.

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.6.2008 kl. 16:31

14 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Vá þvílíkt fallegt, er þetta fallega ljóð eftir þig ?????????????????  Fékk það að láni á mína síðu, huggun til konu sem er mér svo kær.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 10.6.2008 kl. 15:12

15 Smámynd: www.zordis.com

Takk fyrir innlitið kæru bloggvinir !!!

Ljóðið er samið til kærrar konu sem hefur átt við bágt að stríða, barist við líf sitt og gefur frá sér styrk til allra.  Hún á vissulega erfitt og stríðið hennar er ekki frá!

Ljóðið er það minnsta sem ég get gefið svo göfuri sál!

www.zordis.com, 10.6.2008 kl. 19:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband