26.6.2008 | 07:39
að vera ligeglad = líkaglaður ... eða jafnglaður ..... eða?
.... að lifa í sjálfinu og vera ánægður og glaður.
Að vakna og þakka fyrir daginn að þakka fyrir allt hið góða sem umlykur okkur!
Í blíðri morgunbæn
ég þakka hlý og hug.
Í ljúfum aftanblæ
ég þakka neistans dug.
Að kvöldi kyssir ástin
að morgni eflist dátt
Í hjarta brennir sólin
spor á lífsins brag.
Í hendi hef ég heiminn
er hlýjar vangans hjal.
Barnsins björt er vonin
frelsisbón í nýjan dag.
zordis
Nú er kerlingin búin að sofa upp tapaðann svefnsins tíma og hefur þar af leiðandi orku til að vaka sem hrafn næturinnar. Mín fór ekki í háttinn fyrr en langt gengin í þrjú í morgun. Setti uppþvottavélina af stað og ætlaði að kúra í "hlíðinni" en þá voru þar litlar tær sem fengu óáreittar að sofa áfram og móðurhjartað fór í rúmm litla bjarnar og náði góðum svefni.
Hjúfr akrýll á flís
Sem næturhrafninn blíði set ég inn eina af mínum uppáhaldsfugli. Að sjálfsögðu er þetta sjálfsmynd, hvað annað.
Eigið góðan dag og megi lukkan leika við ykkur.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Yndislegt ljoð og megi dagurinn færa þér gæfu.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 26.6.2008 kl. 07:50
þetta er einmitt ein af þeim flísum sem ég hef rennt hýru auga til að eignast - rosalega falleg
Dísa Dóra, 26.6.2008 kl. 12:07
þetta er felleg flís ... ég er ekki ligeglad sko
Margrét M, 26.6.2008 kl. 12:48
Að vera slétt sama og skítsama .... já, það er málið samt finnst mér ligeglad vera mun flottara en þýðingin segir til um!
Takk fyrir aðstoðina kæru dönsku snillingar .. nú á ég sko eftir að vera ligeglad í köben um jólin að hamstra í mig síld og ákavíti! Hlakka til ...
Takk fyrir innlitið í dag
www.zordis.com, 26.6.2008 kl. 13:14
Dásamlegt ljódid titt og flísin yndisleg eins og allar flísarnar tínar.
Kíktu á
www.jyderup.com
www.jyderup-guesthouse.dk
er ekki alveg tilbúin en samt komid smávegis.
Knús á tig inn í nóttina mín kæra.
Gudrún Hauksdótttir, 26.6.2008 kl. 20:08
Alltaf ljúfar færslurnar þínar. Kær kveðja til þín elskuleg.
Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2008 kl. 20:39
Þú ert nú meiri krúttapúttan. Flísin er einkar falleg, eins og þær allar eru reyndar, hver á sinn hátt. Já, Danir verða nettpirraðir þegar þeir heyra uppáhaldslýsingarorð Íslendinga á lunderni þeirra ..... Hef rekið mig á það líka!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 26.6.2008 kl. 22:27
Innlitskvitt og kveðjur.
Magnús Paul Korntop, 26.6.2008 kl. 22:28
Yndislegt ljóð og æðisgengin flís... krummi er svo dulúðlegur :)
Danskan er frábær.
Eigðu yndislega helgi.
Srósin (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 23:10
Hæjjjjj yndi.
Solla Guðjóns, 27.6.2008 kl. 07:00
innlitskvitt og hafðu ljúfa helgi Elskuleg

Brynja skordal, 27.6.2008 kl. 09:09
Virkilega falleg mynd hjá þér.
Lísa (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 11:10
Þú er alltaf dásamleg Þórdís mín, og færslan þín er alltaf svo falleg.
Kristín Katla Árnadóttir, 27.6.2008 kl. 11:58
já að vera ligeglad þýðir að vera nákvæmlega sama, en maður má líka leika séð að það þýði eitthvað annað, það má maður alltaf !!!
þú ert ljúf að vanda, gott að kíkja við hjá þér.
kærleikurinn allt
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 27.6.2008 kl. 14:41
Hún er æðipæði þessi flís, og gaman fyrir mig að geta sagst hafa séð hana fæðast
Knús á þig sætust, hvar eru svo myndirnar frá í gær?
Elín Björk, 27.6.2008 kl. 14:42
Fallegt ljóð og flottar flísarnar þínar
Og, ó já........takk fyrir síðast
Didda, 27.6.2008 kl. 19:47
Gott er að hafa ljúfa lund
og líða vel.
Á blogginu á vinafund
gott ég tel.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 27.6.2008 kl. 20:34
Huld S. Ringsted, 27.6.2008 kl. 21:59
Eigðu góða helgi Þórdís mín.
Marta B Helgadóttir, 28.6.2008 kl. 17:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.