Að lifa hættulega ....

.... það má nú segja að kjérlingin tók uppá því að lifa hættulega rétt í þessu.

Ég ákvað að stofna nýtt blogg (wow) og þar sem að möguleikinn er fyrir hendi hér á þessu prýðis mbl.bloggkerfi þá tók ég það ráð en gerði ráð fyrir að eiga þá tvö ólík blogg en ekki eitt með undirmöppu.

Eftir miklar flettingar og skoðun tók ég þá ákvörðun að eyða bloggi og uppfærði skipunina og eyddi út "litum lífsins" sem var aukablogg á sömu slóð.  Ég tók mikla áhættu í blogglífinu mínu því ég var ekki viss hvort að allt myndi hverfa W00t

Æjj þetta er nú varla til að tala um ....

Elín er að flytja út og ætlar að búa í dúlluíbúð hér í bæ en við erum búnar að eiga góðar stundir og börnin búin að njóta sín saman.  Sonur minn hefur notið þess að þurfa ekki að læra í 30 mín á dag þar sem að vinir hans eru í heimsókn en hversdagsleikurinn lætur ekki að sér hæða og herská móðir mun halda lög og reglu frá og með morgundeginum.

Það er búið að mála í gríð og erg, spjalla og tralla eins og okkur stöllum einum er lagið.  Set hér inn 2 skífur sem gerðar voru í 2ja vikna málaramaraþoni okkar vinkvenna ...............

Sæt og svalandi

Sæt og Svalandi

 Óskastund

Óskastund

Hér hefur ekki verið setið auðum höndum og hvet ég Ellu Sprellu Cinderellu til að setja inn fallegar myndir sem hún skapað hér á Spáni.

Í Sumar 2008 er fyrirhuguð myndlistarsýning, SAMSÝNING bloggkvenna; Katrínar Snæhólm, Gúðnýjar Svövu, Katrínar Níelsdóttur, Elínar og Zórdísar í Ráðhúsi Reykjavíkur og munum við stöllur vænta ykkar sem flestra til að samfagna sýningunni sem ráðgerð hefur verið á blogginu undanfarið ár.

Lífið er hættulega gott


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, lífið getur verið hættulega flott en þú ert sko ekki hættulegur snillingur.  Þær verða sko betri og betri ef það er þá hægt. Hlakka til að hitta þig í ágúst 

Ásdís Sigurðardóttir, 2.7.2008 kl. 19:36

2 identicon

Hvenær í sumar, er sýningin, samsýningin, þú verður að láta mig vita svo ég geti komið.

Inga Helgadóttir (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 19:48

3 Smámynd: www.zordis.com

Sýningin hefst þann 29 ágúst ... nánari deili munum við birta þegar nær dregur og ég sendi þér línu Inga og Ásdís mín, þú sleppur heldur ekki!  Hlakka til að sjá ykkur kæru konur.

www.zordis.com, 2.7.2008 kl. 20:30

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Dúllan mín, kem þangað, þ.e. á sýninguna.. og hlakka mikið til.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.7.2008 kl. 21:02

5 Smámynd: Solla Guðjóns

hæjjjjj ástin .. Núna langar mig að vera á spjallinu við þig.

Ég ætla að KAUPA ÓSKASTUND.Alfalllegasta verkið þitt til þessa.

Ætla að kíkja á Ellu-sprellu og sjá Adamsfjölskylduna

Solla Guðjóns, 2.7.2008 kl. 23:07

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ha? Tvö blogg?? Hvar??? Ég er veik! Þú getur ekki gert mér þetta............

Ég finn ekki hitt bloggið þitt! Viltu vera memm þar líka?

Manstu - ég er veik, mátt ekki segja nei við mig.....

Hrönn Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 01:24

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já ég skil þig núna..........

doltið sein.... böt þen agein...... hóst

Hrönn Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 01:25

8 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Geri rád fyrir ad vera á Íslandi tessa daga frá 28 ágúst..Víííí tá get ég komid á sýninguna.Væri ekki lélegt ad skreyta herbergin á gistiheimilinu med svona yndislegum myndum .

Stórt knús á tig mín kæra.

PS sástu skilabodin frá mér vid spurningum tínum?Ég er 1 tíma ad keyra til køben beint í austur.Er vinkona tín íslensk sem býr í Roskilde?

Gudrún Hauksdótttir, 3.7.2008 kl. 05:33

9 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Reyni að stefna suður á sýningu!

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 3.7.2008 kl. 06:58

10 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

það verður gaman að fylgjast með ykkur listakonunum !

hafðu það besti í bestí.

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 11:27

11 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég mæti sko ... ó já ;)

Marta B Helgadóttir, 6.7.2008 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband