24.7.2008 | 17:02
How do you like Iceland ?
.......
Þessi spurning hefur verið borin fyrir manninn minn nokkrum sinnum eftir komuna en við erum búin að vera meðvituð í ca. 6 klst.
Við komum seint í nótt og náðum að rata í hús. Fékk samt mikinn efa þegar að lykillinn gekk ekki að hurðinni. Við vorum komin með allan farangur á þriðju hæð í lyftulausu húsi og lykillinn var ekki alveg að virka.
Hefði ekki komið mér á óvart ef einhver íbúi hefði komið með kökukefli á nærbrókunum einum fata að lúberja okkur. Snillingurinn maðurinn minn náði hins vegar að opna á meðan ég var úti að leita að kennileyti hurðarinnar.
Allt gekk þetta upp eftir stirða ferð, lögregluböst á Alicante flugvelli. Jú,jú ... kjéddlingin var tekin með góssið og heldur var súr á henni svipurinn.
Jákvæðar hugsanir voru sendar út um allt og ég ræddi við yfirvaldið og var send á milli hæða og á endanum fékk ég skriflegt leyfi frá starfsmanni Icelandexpress um að ég mætti fara með þakflísarnar í handfarangri þar sem að regnhlíf gæti allt eins verið lífshættuleg samferðalöngum.
Ég komst í gegn með allt mitt og verkin mín komu heil í gegn.
Ilmur býður eftir sínum nagla.
Um verslunarmannahelgina mun sýning í Gallerý undir stiganum í Þorlákshöfn prýða ýmis verk og er bara tilhlökkun að setja upp myndirnar. Ég þarf að komast að nánari deteilum um þetta en sýningunni verður stillt upp næstk. þriðjudag ......
Og .... we like Iceland alot!
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:06 | Facebook
Athugasemdir
Velkomin heim
Hrönn Sigurðardóttir, 24.7.2008 kl. 17:04
Velkomin heim Þórdís mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 24.7.2008 kl. 17:07
Velkomin heim í svala loftið og góða andann. Gangi þér vel með sýninguna þína. Hvur veit nema maður bruni austur.
Hugarfluga, 24.7.2008 kl. 17:21
Innilega velkomin í útsynninginn á suðvesturhorninu. Vona að þið tollið fram í næstu góðviðrisperíóðu.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.7.2008 kl. 20:17
Velkomin á klakann og hlakka til að sjá þig
Dísa Dóra, 24.7.2008 kl. 21:03
Hey.......sko ég ætla bíða eftir að geta knúsað þig í kross...láttu í þér heyra eða byrtust..........oooooooo get ekki beðið
Lögguböst á þessum flugvelli er ekkert grín....hef lennt í því
Solla Guðjóns, 24.7.2008 kl. 22:34
Hafið það gott á Ísaköldulandi
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 24.7.2008 kl. 23:32
hahaha Við Íslendingar erum yndislegir, fólk er valla komið af vellinum og spurningin er spurð
Gott að allar flísarnar og fjölskyldan komust heil í höfn/flugstöð.
Njótið ykkar yndislega fólk, andið að ykkur Íslandsloftinu, svelgið í ykkur vatninu og innbirgið eins mikið af náttúrufegurð og þið komið fyrir í hjartanu
Sporðdrekinn, 25.7.2008 kl. 03:13
Velkomin á klakann; gangi þér vel með sýninguna og láttu þér lika landið vel :)
Lárus Gabríel Guðmundsson, 25.7.2008 kl. 04:18
eins gott að flísarnar komust heilu og höldnu með and good that you like Iceland hehe... verst að ég missi örugglega af þessari sýningu en svona ef ske kynni þá fylgist ég með
Margrét M, 25.7.2008 kl. 10:01
Velkomin
How do you like Iceland so far
Didda, 25.7.2008 kl. 10:04
Þórsdís mín síminn er hjá mér.5572033. ef þú vilt slá á þráðinn.
Kristín Katla Árnadóttir, 25.7.2008 kl. 21:06
Velkomin "tú Æsland".
Smá "aksjón" með flísarnar hlýtur að vera heilla merki, trúi því :)
Srósin (IP-tala skráð) 25.7.2008 kl. 23:16
Velkomin heim.
Magnús Paul Korntop, 25.7.2008 kl. 23:35
So far so gúdd!
Veðrið er sko ekkert smá gott og hlífðarfötin eru enn oní tösku!
Ég læt í mér heyra ..... eða birtist hhahhahahahh (já íslensk náttúra hefur góð áhrif á konukropp)
www.zordis.com, 26.7.2008 kl. 16:40
Velkomin heim Þórdís
Huld S. Ringsted, 26.7.2008 kl. 18:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.