5.8.2008 | 18:58
Smukke ræje, hælsæri og leggjalangur ....
.... Leggjalangur er af svanaætt og heillar allar dömurnar eins og Leda blindaðist í denn. Hann er giggóló síns tíma og gerir konur trylltar af ást! Í heimi þar sem allir eru eins og ástin blind, fæddist lítil mynd í sólríku umhverfi.
Í víkingaveislu fengum við lánað gps tæki svo að Fjallið gæti farið ferða sinna. Þessi elska ætlaði að venja sig á strætó sem er hið besta mál en kennarinn í mér hefur sofið og sofið og ZZzzzzzzz og er sennilega steindauður. ÞANNIG AÐ gps tækið er allra meina bót og nú getur hann ratað þangað sem hann vill.....á morgun byrjar hann í íslensku fyrir útlendinga og fer námskeiðið fram í Gerðubergi.
Svefnvenjur okkar hafa verið með ólíkindum og á morgun er ræs klukkan 07.00 og Fjallið mætir stundvís klukkan 08.30 í sinn fyrsta íslensku tíma. Ég er rosalega spennt fyrir hans hönd og ætla að nota þennan tíma til að klára undirbúning fyrir SAMSÝNINGU OKKAR BLOGGKVENNA; Elínar Guðbrandsdóttur, Katrínar Snæhólm, Guðnýjar Svövu Strandberg, Katrínar Níelsdóttur og Zórdísarinnar sem haldin er í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR í lok ágúst (nánari tímasetning auglýst síðar) ...
Þeri sem æskja þess að fá boðskortið heim endilega senda mér línu zordis@zordis.com en fyrir utan þá eru allir velkomnir að njóta litríkra og ólíkra geisla okkar bloggvinkvenna!
Helvettans hællinn á mér er aumur en ég týndi gúmmísóla undan hælnum á lágbotna skónum mínum. Heyrði skemmtilega sögu um afhverju karlmenn eru slæmir á beddanum, mælt er með fótsnyrtingu og af þeim sökum fæddist myndkrílið "hælsæri" .... (birtist ekki hér)
Hún vafði hann ást og hlýju.
Akrýl á striga 20 x 40
Þegar halla tekur að degi og ljósrauðir himnageislarnir bjoða þér til sætis, til hásætis er best að njóta gnægðar heimsins og þiggja.
Smukke ræjer flögra um á toppum skýja og danskan hljómar í eyrum eins og hvert annað sælgæti!
Það er bara gott að fljóta með ......
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 19:03 | Facebook
Athugasemdir
Ég hlakka svo til að hitta þig
Já ég vil fá boðskort en ekki í húsið sem þú fórst í um daginn ;) Hvar var það bæþevei?
Hrönn Sigurðardóttir, 5.8.2008 kl. 20:58
Hahahahhah ..... ég segi þér það á föstudaginn ....
Nema við hittumst fyrr
www.zordis.com, 5.8.2008 kl. 21:00
Hrönn Sigurðardóttir, 5.8.2008 kl. 21:04
Að heyra orðið víkingaveisla og gps-tæki í sömu setningu er eitthvað svo fyndið ... sé alveg Ingólf A og Eirík og fleiri fyrir mér með tækin við stafninn: o hoy, land framundan!
Samsýningin verður náttúrlega bara glæsileg, en ef það verður sýningarskrá, þá væri gaman að sjá hana.
Knús og kveðjur dúlla!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 21:44
Mér þykir svo væntu þig elsku Þórdís mín og ég tala við þig á morgunn ljósið mitt
Kristín Katla Árnadóttir, 5.8.2008 kl. 23:15
Ég mæti - hvort sem ég fæ boðskort eður ei
Margrét Birna Auðunsdóttir, 5.8.2008 kl. 23:33
Ég er stolt af Fjallinu að skella sér í Íslensku tíma!
Nú, á morgun getur þú þá sagt á þínu móðurmáli "Nuddaðu á mér hælinn elskan"
Sporðdrekinn, 6.8.2008 kl. 03:02
.....eða: viltu að ég nuddi á þér hælinn........?
Hrönn Sigurðardóttir, 6.8.2008 kl. 08:58
Það var fjör með exina og óvíst hvor okkar var hræddari!!
Hrönn ég er ansi aum í hælnum og hef einungis fengið bakklór frá fjallinu þar sem hann vaknaði eldsnemma til að mæta í íslenskunámið!!!
úje!
Knús og kossar til ykkar kæru vinir nær sem fjær um land allt (ehehhhehhehehhe) .... held ég sé búin að vera of lengi inni, best að drífa sig út!
www.zordis.com, 6.8.2008 kl. 16:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.