Að velta sínum eigin vanga ...

... svo undurblíður milli tveggja handa og hugsun hoppar og skoppar með.

Dagarnir eru hver öðrum betri, sól og sæla .... rigningarúði og gola = það er bara eitt Ísland!

Fjölskyldan átti leið í miðbæjinn í gær og lögðum við bílnum á Ægisgötu og gengum niður Vesturgötuna og rifjuðust upp ýmis prakkarastrikin og mér var hugsað til Nilla á númer 28, Gilla á 30 og Jónu hans Tryggva á Nýlendugötunni frá því í denn.  Í dag hugsaði ég til bloggvinkvenna sem búa í grennd og mun ég gefa mér færi að hitta þær á meðan á þessari löngu dvöl stendur.

Veðrið var hreint yndislegt og stóðum við í glampandi sólskyni í miðbænum og hlustuðum á tónleika eftir gleðigöngu Gay Pride 08.  Páll Óskar er hreint frábær listamaður og fór þessi skemmtun ágætlega fram í blíðviðrinu !!!

Akrýlflís

Úr undirdjúpum er akrýlflís sem hangir nú á sýningu Gallerý Undir Stiganum sem staðsett er í Þorlákshöfn. Sýningin stendur til ca 20 ágúst!

Af nógu er að taka í undirbúningi fyrir Samsýningu Bloggkvenna í Ráðhúsi Reykjavíkur sem verður í lok þessa mánaðar.  I dag ætlum við að hittast og fara yfir nokkur atriði og njóta þess saman að vera í svona dásemdar drottninga veðri.

Þetta er dagur tækifæra, ekki látt þitt úr greipum renna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegt hvað Ísland er í sínu besta formi í þessari heimsókn ykkar. Hafðu það ávallt sem best mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.8.2008 kl. 17:31

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já það er alltaf gott að í      koma í vesturbæinn ég á góðar minningar þaðan. Falleg flísin þín Þórdís mín

Stórt knús á þig

Kristín Katla Árnadóttir, 10.8.2008 kl. 18:35

3 Smámynd: Hugarfluga

Við horfðumst í augu í dag!  Þú sast fyrir utan Hljómalind með einhverjum tveimur öðrum og ég var að keyra niður Laugaveginn með manninum mínum. Gaman að sjá þig!! hehehe

Hugarfluga, 10.8.2008 kl. 18:56

4 Smámynd: Elín Björk

Falleg flísin
Hljómalind var það, takk fyrir daginn mín kærust

Elín Björk, 10.8.2008 kl. 21:32

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég hef trú á því að þú hafir magnað þetta góðviðri yfir Ísland; komdu sem oftast og vertu sem lengst ....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.8.2008 kl. 22:21

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 10.8.2008 kl. 23:00

7 identicon

Svo Hugarfluga hefur séð Zordisi...en ekki ég.... svindl!!!

Ég veit að ég á eftir að hitta þig Zordis... kærar kveðjur úr norðri og mundu bara að spara plássið fyrir fisk og súpu á næsta ári, þegar við fjölmennum til Dalvíkur!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 00:06

8 identicon

Hvar og hvur er listin?

Skoðandi (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 01:03

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Vildi að ég hefði getað verið með ykkur í hittingnum. En við sjáumst örugglega, þótt síðar verði.

Svava frá Strandbergi , 11.8.2008 kl. 07:18

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hugarfluga..ég þori að veðja að þú varst í eldrauða glansbílnum sem keyrði framhjá okkur þar sem við sátum þarna úti á gangstéttinni að kaffisumbli og listapælingum...hvað kallast aftur svona bílar á íslensku með engu þaki og fólki sem hárið fýkur á?

Konan sem var í appelsínugulum bol með appelsínugult hálsmen og appelsinugulan gemsa..og drakk kaffi úr appelsínugulum bolla..það var ég

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 11.8.2008 kl. 10:52

11 Smámynd: www.zordis.com

Skoðandi; Hvar = Ráðhús Reykjavíkur 30 september klukkan 15 - 17 og stendur til 14 sept!

Hvur = 5 tegundir af listakonum sem sýna sína sköpun, þú verður bara að mæta til að sjá.

Guðný Svava það hefði verið gaman að vera allar saman!!!

Hugarfluga, það voru margir glæsilegir fornbílar sem óku niður Laugaveginn og rauða glæsikerrann sem ók framhjá og Katrín nefnir var mjög smart!!!

Guðný Anna, ég gerði díl við himnaherrann

www.zordis.com, 11.8.2008 kl. 11:01

12 Smámynd: Hugarfluga

Ji, voruð þið báðar þarna stelpur? Reyndar var ég ekki í rauðum blæjubíl .. nema í huganum.  Hefði átt að stökkva út á ferð og knúsa ykkur!

Hugarfluga, 11.8.2008 kl. 11:26

13 Smámynd: Solla Guðjóns

hæjjjj.. hlakka til á morgun

Solla Guðjóns, 11.8.2008 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband