15.8.2008 | 21:18
Risa eðluleg eitthvað ....
Í dag dreif ég mig í risaeðluskoðun, man aldrei hvað þetta heitir, spjald og hryggjajöfnun ...
Úffffffffff, mér líður eins og ég hafi orðið fyrir heilum kók bíl, er þung og ég ræð varla við herðarnar né höfuð mitt!
Það brakar meira að segja í mér allri. Ég pantaði mér tíma án þess að vita mikið um þessi mál en á endanum fékk ég nudd og kukl. Eftir tímann þá spurði ég galdrameistarann um heilun og sagði hann þá að það hefði verið gjöf með tímanum. Já, en hvernig vissi ég það?
Ég bæði fann það og sá dýrðarlit og sýnir sem hann sendi mér. Ég verð orðin hressari á morgun!
Ég lét verða af því að kaupa bókina sem ég heillaðist svo gjörsamlega af. Það má segja að bókin hafi seitt mig að sér, ég tók hana upp og fann að mig langaði en lagði hana niður aftur.
Bloggvinkona K.S. minntist við mig á þessa bók og má segja að við höfum upplifað svipað tákn ef tákn má kalla og ég fór og keypti bókina í fyrradag og notaði tækifærið og opnaði kiljuna.
Fyrir ykkur sem ekki vita þá eyri ég mér frekar ílla við lestur kýs frekar allskyns dundur en sökum risaeðluliðan minnar hef ég varla getað slitið mig frá þessari bók, Daggardropar e. Kleópötru Kristbjörgu ... Ég hef meir að segja séð nýja flís fæðast.
Stenst nú ekki mátið að birta hér nokkrar myndir af sýningunni Gallerý Undir Stiganum.
Ástarkoss, akrýl á striga 30 30 "seld"
Með kaffinu "seld"
Tryggð "seld"
Sjólystarkona "seld"
Með Sólblóm "seld"

Best ég komi mér fyrir á ný við lestur bókarinnar Daggardropar .... svona til gamans þá er þetta 3ja bókin sem ég kaupi mér á klakanum og hefur hún gjörsamlega náð athygli minni ....
Ooooooog svo sendir RISAEÐLAN góðar kveðjur í nóttina ..........
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:56 | Facebook
Athugasemdir
Listin þín rennur út eins og heitar lummur! Enda - hvernig væri annað hægt? Af þeim stafar kærleik og ólýsanlegri fegurð
Hrönn Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 22:16
Takk "elskan" ....
ef ég væri ensk þá hefði ég skrifað "luv" og mitt spænska sjálf segir querida!
Takk fyrir það Hrönn, hvernig hefur Lampi litli það?
www.zordis.com, 15.8.2008 kl. 22:41
Yndisleg efsta myndin og sá ég fyrir mér að svona væri táknrænt fyrir okkur hjónin og þessa skildi ég kaupa, nei hún er þá SELD, sold, und so on. Hvað ertu að setja á þessar darling?? krúttleg færslan og flottar myndir. Vasaljósið mitt þakkar góðar kveðjur og biður að heilsa.

Ásdís Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 23:00
Takk Ásdísin mín, þessi stærð er á 23 kúlur .... Þú átt eftir að sjá fleiri en þessar
Já er litla vasaljósið allt að koma til, mér fannst hún svo spræk nebbl. á myndunum.
Vonandi gengur vel hjá þér og að batinn gangi vel!
www.zordis.com, 15.8.2008 kl. 23:04
Hrönn Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 23:26
Yndislegt að fara í svona höfuðbeina-og spjaldhryggsmeðferð. Sú sem ég fer til er líka með Bowen tækni og svo heilun... hrein unun.. og hef ég ósjaldan sofnað :)

Hvert ferð þú ?
Æðislegar myndirnar.. ohh langar í þessa neðstu...
Vonast nú til að rekast á þig í Ráðhúsi Þorlákshafnar-city annað kvöld á Sálarballinu.
Srósin (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 23:32
Nákvæmlega Ester hún er þín og ég vona að hún veiti þér gleði.
Srósin mín ég geri ekki ráð fyrir að vera í höfninni á laugardagskvöldinu heldur snemmdags á Sunnudegi. Ég er að fara taka hús hjá konum
en nóttin er ung og aldrei að vita svossum ....
Úfff Hrönnnnnnnnn (er ekki bara 2 enn í því) lætur eins og hann sé með teflon, svei mér þá! Hann hefur verið alltof upplýstur í ðe city um daginn og fann notalegheitin! Ó, JÁ!
www.zordis.com, 16.8.2008 kl. 01:24
Ég vona elsku Þórdís mín að heilsan þín lagist fljótt.
Kristín Katla Árnadóttir, 16.8.2008 kl. 10:40
Sporðdrekinn, 16.8.2008 kl. 14:21
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 16.8.2008 kl. 18:02
Já, þú segir nú aldeilis ýmislegt, maddama, kerling, fröken, frú. Hvenær lokar þessi sýning í Þorlákshöfn? Hvenær að deginum lokar hún (fjögur eða fimm)?
Er virkilega vit í þessari bók? Las einhverja umfjöllun og lagði hugsun um hana á hilluna við það. Kannski maður reyni .... Eru þetta einungis frásagnir þessarar konu (KK) eða eru aðrar pælingar og hugsanlega aðrar frásagnir?
Er ekki dáldið gaman að vera kaffærður í spurningum á blogginu?
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.8.2008 kl. 20:44
Fallegar myndirnar þínar og auðvita seljast þær. Hafðu það gott Þórdís mín. Verst að ég kemst ekki á sýninguna þína.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 16.8.2008 kl. 21:53
Það er ekki hægt að segja annað en að þú ert listamaður fram í fingurgóma. Ofalega fallegar myndir.
Eigðu ljúfa og fallega helgi fallegust.
Tína, 17.8.2008 kl. 10:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.