Ferskleyki númer eitt ...

... Fjallið svaf yfir sig i morgun en Imma reddaði því með símhringingu (3 sko) fast var legið á eyranu og eitthvað klikkaði LG vekjarinn þar sem draumaheimur umvafði mann og meyju.  Vona að elskunni minni, þeim báðum gangi vel á golfmótinu á Þorláksvelli.

Við mæðgur erum vakandi og rétt i þessu barst frétt um heppinn lottóspilara sem vann 66 millur!  Til hamingju með það og megi almættið vaka yfir þér.  Peningar eru afl sem þarf að fara gætilega með því eins og orðatiltækið segir, margur verður af aurum api.

Að morgni
Að morgni, olía á striga

Sunnudagur

Svo bjartur og fagur, 

að morgni kona ber.

Kitlar il þú yndis dagur

heill þér englaher

Heart

Familían fór í veislu í gærkvöldi og var mikil gleði þar sem börn og fullorðnir gæddu sér á fiskisúpu og pylsum í brauði.  Við fórum heim um miðnætti og greinilega að virkni risaeðlunnar gerði vart við sig og ég var að farast í höfðinu.  Engu líkara en það hafi verið að skrúfa af mér hluta höfuðkúpunnar ....  Ég tók Ibuprofen og dormaði aðeins í leisý boy og dreif mig svo uppí og er mun betri núna.

Sunnudagur til Sælu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæjjjjj.Ég sé að þú hefur ekki setið auðum höndumog búin að dýfa þér í kalda laug.Risaeðlumeðferðin ætti að fara að skila sér á jákvæðan hátt.

Gaman að vita af Immu og Fjallinu í mótinu.En ég á frí í dag.

Solla Guðjóns, 17.8.2008 kl. 11:19

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flott mynd!!

En á manni að líða svona eftir risaeðlumeðferð?

Hrönn Sigurðardóttir, 17.8.2008 kl. 17:49

3 Smámynd: Hugarfluga

Æ, vona að höfuðverkurinn sé horfinn og floginn út um gluggann! Flott mynd! Er þetta ólétt kona??? Er þetta ég? Ha? Ha? hehe ... knús og kossar, dísin mín.

Hugarfluga, 17.8.2008 kl. 17:50

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

já mín kæra sunnudagur til sælu !

Kærleikur til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.8.2008 kl. 18:00

5 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Æðisleg mynd Þórdís mín, eins og raunar allar þínar myndir sem ég hef séð her.

Kærleiksknus

Kristín Gunnarsdóttir, 17.8.2008 kl. 18:11

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndisleg mynd að vanda.  Hafðu það gott

Ásdís Sigurðardóttir, 18.8.2008 kl. 00:58

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Mikill snillingur ertu stelpa, fallegt ljóðið sem fylgir flottri mynd. -

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 18.8.2008 kl. 01:31

8 Smámynd: Tína

Segi eins og Hrönn. Er eðlilegt að líða svona eftir risaeðlumeðferð? Ég vona svo sannarlega að þú sért laus við höfuðkvalirnar núna krúttan mín. Gengur ekki að hafa þig svona!!!

knús á þig mín elskuleg.

Tína, 18.8.2008 kl. 08:25

9 Smámynd: www.zordis.com

Arna veðrið er yndislegt og rétt í þessu flaug mávur fyrir framan eldhúsgluggann ... það á nú bara að gefa út veiðileyfi á þennan garm!

Tina og Hrönn ég veit í raun ekki hvað er eðlilegt en þar sem ég er svo óvenju og eðluleg þá er ekkert öruggt í þessum kroppi.  Ég á tíma á morgun svo ég vona að ég verði margefld og góð eftir krukkið.

Lilja fyrrverandi tengdapabbi kallaði mig fyrir snilling þegar ég gerði mér lítið fyrir og gerði við símtól en það hefur verið svona "að falla í ósjálfráða viðgerð = að falla í ósjálfráða skrift) .....

Hugarfluga, svei mér þá ef bara ekki er

Ásdís, Stína, Steina og Sollan mín  

www.zordis.com, 18.8.2008 kl. 10:37

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta er frábær mynd.  Haltu áfram að skemmta þér vel á landinu bláa, hlakka til að hitta þig á opnuninni!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 18.8.2008 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband