Kvikyndis gluggaskraut ....

...  Það má segja að kvikyndis gluggaskrautið sé eitt stk fljúgandi mávur.  Hrikalega er mikil mávaplága hér í höfuðborginni.  Ég væri alsæl ef þetta væri Krummaskinn en Mávurinn er ekki beint minn fugl og mikið asskoti er hann kræfur. 

Á toppum Breiðholtsins er konu farið að líða eins og í bíómyndinni Birds og Mávurinn er í aðalhlutverki.  "Æm skerd" .... spurning um að gera gogga eyrnalokka eða ökklaskraut ??

Ert þú vinur minn ....

Hot goggur eða hvað finnst þér?

Mitt fólk spilaði vel á golfmótinu í gær og komu þau bæði heim með gjafir sem er gott og vel.  Ég brunaði í höfnina til að ná í gripinn minn og ætlaði sækja konu heim en það fór nú öðruvísi en á horfðist þar sem að seinkun varð og ég beið og beið eftir að keppni lauk en sökum veðurs þá var mikil seinkun sem var ekki fyrirséð .....  Sigrún mín syng lagið Sorry með Tracy í huganum ....

Ætla í fjarnám í haust!

Ætla að fjárfesta í helli í haust!

Ætla að kaupa mér Bo Derek galla og hef það markmið að komast í hann LoL

Ætla að syngja lag á plötu!

Ætla að njóta lífsins númer 1, 2 og 3 .... !

Svo í framhjáhlaupi núsins eins og ég vísa til þess sem ég ætla í haust þá er ég að spá í að njóta dagsins og gera eitthvað skemmtilegt!  Byrja jafnvel á útsýnisferð um Súðavog SmileWizardTounge

Hver er kvikyndi Mávurinn eða Moi?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú ert yndi - það er mávurinn ekki! Deili ást þinni á krumma Mér líst vel á að kaupa Bo Derek galla og syngja lag á plötu.... en ég mundi bara kaupa Bo Derek galla sem passar

Hrönn Sigurðardóttir, 18.8.2008 kl. 11:00

2 Smámynd: www.zordis.com

Hrönn, eins og mér leiðist að máta!!!!

En, stundum þarf að gera meir en gott þykir og ég mun máta áður en krítarkortið verður tekið upp!!!!

www.zordis.com, 18.8.2008 kl. 11:02

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er alveg sammála þér með krumma er ekki hrifin af mávum kær kveðja elsku Þórdís.

Kristín Katla Árnadóttir, 18.8.2008 kl. 11:53

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég er mikið sammála ykkur í þessum fugla málum.

Sporðdrekinn, 18.8.2008 kl. 16:30

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég held uppi kröftugum vörnum fyrir mávinn, vin minn. Hann er frekur já, náttúran er frek. Hver og einn, maurar sem mannabörn og allt þar á milli, er bara að reyna að lifa af, halda áfram að lifa. Við erum víst öll með þetta forrit - þó það klikki stundum. Sendiði mávana til mín, ég tala alltaf dáldið við þá.

Mér hugnast vel þessi markmið þín, Zordís, einkum að fjárfesta í helli og að syngja lag á plötu. Svona á maður náttla að lifa ....  

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 18.8.2008 kl. 16:37

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Maður hljómar sko vel í helli. Mávar eru hér bara við Ölfusbrú, þar ná þeir í pulsuafganga, hlakka til þegar krummi fer að koma á staurana hér í kring.  Hafðu það gott elskan.

Ásdís Sigurðardóttir, 18.8.2008 kl. 18:05

7 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Eru mávar efst í Breiðholti? Þeir hafa kannski elt þig úr Höfninni, Birds hvað

Það jafnast nú fátt á við krummana

Margrét Birna Auðunsdóttir, 18.8.2008 kl. 21:29

8 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ef börn labba út á róluvöll með brauð með sultu, hér í miðborg Reykjavíkur er komið mávager. - Mikið rosalega eru þeir svangir - Þetta er óhuggulegt. -   Krumminn er yndislegur.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.8.2008 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband