29.8.2008 | 21:39
Görótt veður og galdrakonur ....
....
Bloggið mitt hvarf eins og abrakadabra þegar sonurinn fór í leik í tölvunni.
Ég segi því ABRAKADABRA á móti og langar að segja ykkur sem staldra við hér að á morgun LAUGARDAG, 30.ÁGÚST munum við bloggvinkonur slá upp heljarinnar gleði og sýna ykkur listina okkar. Hjaranlega VELKOMIN að koma og sjá okkur, vini og fjölskyldur milli klukkan 15 og 17 og þiggja léttar veitingar.
Bloggvinkonur á góðri stundu.
VERTU VELKOMIN AÐ KÍKJA VIÐ Á SAMSÝNINGU OKKAR Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR, laugardaginn 30.Ágúst milli klukkna 15 og 17.
VIÐ HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Síjú ðenn mæ dírest
-Já, og spjöldin eru klár, hvað annað!!!
Elín Björk, 29.8.2008 kl. 22:21
kemst því miður ekki ættlaði svo sannarlega að reyna að koma en þarf að skreppa í sveitina mína en verður þessi sýning ekki eitthvað lengur? Góða skemmtun og gangi ykkur stöllum vel
Brynja skordal, 30.8.2008 kl. 00:31
Kemst ekki að sjá ykkur en gott framtak hjá ykkur
Magnús Paul Korntop, 30.8.2008 kl. 01:05
Gangi þér vel með þetta krútta og innilega til hamingju. Það get ég sagt þér að ég vildi óska þess að ég kæmist til að sjá þetta hjá ykkur. En ég fæ kannski að sjá þetta hjá þér þegar heilsan drullast til að lagast hjá mér. Who knows.
Megi verða vitlaust að gera hjá ykkur á sýninguna.
Tína, 30.8.2008 kl. 08:42
Ég vildi að ég gæti verið hjá ykkur, en sjálfur er ég að setja upp Portraits of the North hérna í Amtinu og verð viðstaddur opnun þar kl. 17:00 í dag. Hugur og hlýjar óskir - og með kærum óskum um góða opnun.
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 09:43
Er á leið í borgina og ætla mér að reyna að hafa daginn þannig skipulagðan að ég komist aðeins til ykkar
Dísa Dóra, 30.8.2008 kl. 10:58
Inga María, 30.8.2008 kl. 11:48
Hlakka til að sjá ykkur!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 30.8.2008 kl. 12:55
Gangi ykkur vel með sýninguna.
Linda litla, 30.8.2008 kl. 14:57
Fór á sýninguna í Ráðhúsinu í dag og það var meiriháttar og áttir þú stóran þátt í því. En af hverju eru allar þessar flottu flísar kúptar? Þær eru (flísararnar) frábærar og magnaðar.Til hamingju.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 30.8.2008 kl. 19:04
SOLDÍS .... þú attir að hnippa í mig ..... ég sá svo mörg andlit sem ég kannaðist við
... já þetta eru þakskífur og eru þ.a.l. kúptar!
Já, og ég vil nota tækifærið áður en ég set inn nýja færslu!
TAKK FYRIR KOMUNA KÆRU BLOGGVINIR sem áttuð leið, VINIR og FJÖLSKYLDA.
WOW ...... Dagurinn hefur verið í alla staði yndislegur, ÞÖKK SÉ YKKUR.
www.zordis.com, 30.8.2008 kl. 19:07
Ohhh Þórdís, ég ætlaði svo að koma, en fékk gesti (sem voru bara að fara) og gat ekki alveg rekið þá á dyr. Stendur sýningin samt ekki eitthvað áfram? Knús og fyrirgefðu mér.
Hugarfluga, 30.8.2008 kl. 19:28
Takk fyrir mig í dag elsku Þórdís. Þetta var glæsilegt. Þú kannt svo sannarlega að fara með liti. Eins og ég minntist á í dag. Bið að heilsa famlíunni. Þú átt svo sannarlega yndisleg börn í Írisi og Enrigue. kv.
Bergur Thorberg, 30.8.2008 kl. 21:23
Æi bara knús og kossar frá mér elsku Þórdís mín og þú ert svo velkominn í húsið mitt.Ég var bara hrædd um að hundurinn, að hann mundi vera að að vera frekur óþekkur
Takk fyrir að taka svona vel mót mér





Kristín Katla Árnadóttir, 30.8.2008 kl. 22:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.