Ást og efni ....

þegar ástin nær að snerta vitund þína .....  Þegar lífið verður svo undurljúft og fallegt, lófar þínir þvalir og fjöldinn allur af fiðrildum kitla þig að innan.

Ástin er stórkostleg þar sem að líkaminn framleiðir góðar kenndir og skrítnar, stundum fyndnar en gera þig oftast pínu kjánalegan ....

Ástfangin

Það sem mig langaði að minnast á er ÞAKK LÆTI.  Geggjað orð, vera uppfull af látum þakkarinnar!

Af hverju er ég þakklát?  Vegna þess að þrátt fyrir mig auma þá hef ég heilsuna mína, ég er ófullkomin í heimi þar sem við eigum öll færi á að grípa sneiðina, bara ef við berum okkur eftir henni.

Ef ég ætti eina ósk þá myndi ég nota hana til að lýkna, sem kemur mér í þá stöðu að ég get haft áhrif, HAFT ÁHRIF!  Þrátt fyrir að eiga ekki þessa ósk.

Óskin er einfaldlega minn vilji og orka alheimsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

Trúðu og þú munt hafa áhrif.

Ég er þessi "anda" týpa, ég trúi að við getum hjálpað hvort öðru. Oftar en einu sinni höfum við td kastað knúsi eða kærleik yfir hafið til hvorrar annarrar. Ég geri það ekki bara "af því bara" ég geri það af því að ég trúi. Ég sendi aldrei svona frá mér án þess að meina það og finna af öllu hjarta. En hitt er annað mál, við erum ekki Guð.

Ég ætla að senda þér línu.

Knús mín kæra

Sporðdrekinn, 3.9.2008 kl. 01:45

2 Smámynd: Tína

Hver segir að þú kunnir ekki að líkna? Hjartahlýjan svoleiðis streymir frá þér og get ég sagt í fullri einlægni að það hefur hjálpað mér.

Haltu endilega áfram að vera þú, því þú ert svo yndislega frábær kona og nýt ég sem og margir aðrir, góðs af því.

Tína, 3.9.2008 kl. 08:42

3 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Zordis mín, þú ert ábyggilega með  hjarta úr gulli

Kristín Gunnarsdóttir, 3.9.2008 kl. 09:53

4 Smámynd: Didda

Takk fyrir að hafa fengið að kynnast þér eina kvöldstund í öðru landi, þú hefur haft áhrif á mig síðan 

Didda, 3.9.2008 kl. 10:29

5 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Vatnsberi Margrét, 3.9.2008 kl. 14:12

6 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Kærlleikskveðjur.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 3.9.2008 kl. 17:36

7 Smámynd: Dísa Dóra

Þú kannt svo sannarlega að lýkna.  Þú gerir það með nærverunni einni saman - sendir frá þér alveg ofsalega fallega og góða strauma sem umvefja alla í kring um þig

Dísa Dóra, 3.9.2008 kl. 17:55

8 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

Mikið ofboðslega eru þetta ljúf orð og aldrei hef ég heyrt ástinni svona fallega lýst. takk fyrir þessi fallegu orð ljúfust    Þú hefur greinilega áhrif og líknar öðrum í kringum þig með hjartahlýju þinni, það sé ég á orðum þeirra sem hafa skrifað hér á undan mér.

Sporðdreki, við erum kannski ekki Guð EN við tilheyrum honum og erum hluti af honum. 

Sigrún Sigurðardóttir, 3.9.2008 kl. 21:57

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þú ert ljós.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 3.9.2008 kl. 23:59

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 4.9.2008 kl. 00:48

11 Smámynd: Elín Björk

Knús á þig engillinn minn  Takk fyrir í dag!

Elín Björk, 4.9.2008 kl. 01:28

12 Smámynd: Margrét M

þú ert nú bara frábær

Margrét M, 4.9.2008 kl. 11:51

13 identicon

Flott umfjöllun um ykkur listakonurnar í vikunni. Ætla að reyna að komast og sjá hjá ykkur um helgina.

Lísa (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 14:35

14 Smámynd: www.zordis.com

Takk fyrir innlitið konur!

Ég er ódugleg að blogga, er að fara uppá Grensás, var að mála með grænu og ætla blása eina ósk út í loftið!

Nýja myndin mín heitir Ósk og er hún uppfull af þrá og von.  Eigið yndislega kvöldstund, smáar sem háar sálir!

www.zordis.com, 4.9.2008 kl. 18:58

15 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert Hjartagull.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.9.2008 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband