Tilhlökkun í hryssingsveðri ...

.... að líkja veðri við óbaldna hryssu er alveg óhætt, allavega eru hljóðin sem gnauða í húsnæðinu sem ég dvel vetri líkust.

Á sálinni sitja þrjár frostrósir er tengja hugann við efnið.

Þegar ég kom til Íslands fyrr í sumar skrúfaði ég niður í öllum ofnum og var þ.a.l.  frekar kallt að tippla að kaffikönnunni.  Eftir græna drykkinn og vítamín þá setti ég ofninn í eldhúsinu á 3 og sit hér og hjúfra mig að honum. 

Væri alveg til í að vera með Fjallinu mínu núna við suðurstrendur Iberíuskagans en þetta kaus ég sjálf.  Er farin að telja dagana niður, finna faðmlögin og knúsin.

Ég lenti í aðstöðu um daginn þar sem mér var vinsamlega bent á það að ég væri allt of feit.  Wow, það er ekki eins og ég eigi ekki spegil.  Þetta var svolítið fyndið fyrir utan að það að vera feitlaginn er ekkert fyndið i sjálfu sér Whistling  Ég gæti flautað lagið um Bjössa Bollu nema útfært það Daisy Dúlla .... LoL

Allavega þá hef ég verið að gera breytingar og vonandi að ég verði boðleg öðru fólki, feit eða mjó.  Vona bara að ég geti haldið í minn feita og bleika húmor!

Ég er á leiðinni út að hitta góða konu við Tjörnina. 

Sjáumst á eftir

Zyrnirós

Þyrnirós er til sýnis í Tjarnarsal í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Kanski það sé komin tími að vakna upp úr dáinu, taka sig á bæði líkamlega og andlega.  Hef verið að spekulera í að virkja ljósið í andanum og nota hann. 

Ísland hefur undarleg áhrif á mig. 

Ég fór í kirkjugarðinn í gær og sat í brjáluðu andans roki og grét í minningu fruma minna.  Hann var svo mikilvægur, vonandi læri ég að koma fram á réttan máta og heiðarlegan, vera sjálfri mér sönn og hrein.  Það er ekki vandlifað, eða hvað?

Lífið er allt of gott til að flækja það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mér Finns þú ekki veit svo langt  frá því vonandi átt þú góðan dag.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.9.2008 kl. 10:54

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þú ert íturvaxin unaðskona, hvort sem litið er á sálina, andann , sköpunargyðjuna þína eða þig sjálfa. Afskaplega falleg mjúk og einstök manneskja Zordís mín. Þeir sem hafa þörf fyrir að segja eitthvað særandi við aðra segja mest um hvernig þeim líður sjálfum. Sendum ljósbylgjur og orkubrautir alheims beint í fangið þeirra svo þeim megi líða betur og betur og betur.

Og talandi um að virkja ljósið í andanum þá ert þú nú á við nokkrar Kárahnjúkavirkjanir ..

Rokhviðuknús í daginn þinn. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.9.2008 kl. 11:16

3 Smámynd: Tína

Afsakaðu orðbragðið en lokaðu bara augunum í smá stund ef þú ert viðkvæm fyrir svona munnsöfnuðu................... en hver í fjáranum lætur svona út úr sér við þig??? Ég held að viðkomandi þekki þig þá ekki neitt. Því ég sem hef nú bara fengið að hitta þig einu sinni veit að þú ert með fallegri konum sem ég hef hitt og ekki skemmir fyrir hvað þú ert ofboðslega einlæg og með fallegt hjarta. Það sem þú skilur eftir þér bæði á þinni síðu og svo í athugasemdarformi hjá mér er gulli betra. Jújú það er satt að maður geti alltaf unnið betur í sjálfum sér en hvað mig varðar þá tek ég þig til fyrirmyndar og ætla mér það í lengri tíma.

Dýrka þig kona..................... svo mikið er víst.

Tína, 8.9.2008 kl. 11:49

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Ekki láta neinn segja þér hvernig þú átt að vera, það eru ekki allir steyptir í sama form. 

Ég veit að þú veist þetta en "Það sem skiptir máli er að þér líði vel með og í sjálfri þér".

Þú ert ein fallegasta manneskja sem að ég veit af, nú langar mig til að geta sagt þekki en þar sem að við höfum aldrei hist þá orða ég þetta svona. Orðin þín segja manni svo vel hverskonar manneskju þú hefur að geyma.

Ég sagði áðan að það sem skipti máli sé að þú sért ánægð í eigin skinni og því segi ég þetta: Ert þú ánægð með þig, líður þér vel? Þú hefur skrifað færslur sem segja annað. Ef að þú ert ekki ánægð þá tekur þú svona nærri þér.

Svo að ég segi sem bloggVinkona þín: Ef að þú ert ánægð með þig, blástu á orðin sem særðu. En ef að þú ert ekki ánægð með þig, breyttu því þá.

Sporðdrekinn, 8.9.2008 kl. 15:37

5 Smámynd: Dísa Dóra

ó nei þú er sko langt í frá feit - tja nema þú ert jú reyndar risavaxin af andlegum verðmætum.  En það eru líka verðmæti sem gott er að vera með mikið af

Þú ert ein sú fallegasta kona sem ég hef séð og geislar af gæsku og gleði.  Þú gefur svo mikið af þér með nærverunni einni saman.  Elska þannig manneskjur

Dísa Dóra, 8.9.2008 kl. 17:41

6 Smámynd: www.zordis.com

Takk elsku bloggvinir mínir fyrir yndislegu ykkur. 

Þegar við hættum að glápa og byrjum að sjá, þegar við hættum að heyra og leggjum við hlustir þá getum við stigið áfram skrefin með réttu móti.

Dagurinn í dag hefur verið yndislegur og ég hlakka ótrauð morgundagsins og takast á við spennandi ævintýri.

www.zordis.com, 9.9.2008 kl. 00:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband