9.9.2008 | 00:28
Hvar og hvert nær hún .....
?
Hvar er skynjunin okkar og hvert nær hún. Í hvaða efni erum við og á hvaða leið?
Pælingar eftir kvöldið sem staldra við hjá mér. Ég hitti vinkonu mína og vinkonu hennar sem kemur frá Japan og er hér í 4 nætur. Við gengum saman um grjótaþorpið og skoðuðum gömul hús með sál. Við enduðum svo inná 101 Rvík og fengum okkar kaffi og soda og náðum að ígrunda ýmis mál og var kvöldið vissulega ánægjulegt.
Ég lærði japönsku á AÐEINS 20 mín og enda nú allar setningar með viðhenginu SAN, geri aðrir betur.
Við höfum áhrif á svo margan hátt þegar við viljum.
Ég fór í gamla kirkjugarðinn í Rvík og heimsótti langömmu og langafa .... Ég náði að tengja mig englasálinni og fann gleðina og þakklætið fyrir að fá að vera og fyrir að mega njóta, fyrir að kjósa að vera það sem ég er OG EKKI SÍST fyrir að fá að njóta þess dýrmætasta í lífinu, maka og börnum.
Ég er sæl, ég er sátt og ég er sem er mest um vert!
Ég átti ánægjulegan dag, hitti mikið af fólki og langar að þakka Ingu Maríu fyrir góða stund. Það er alltaf gaman og gott að skyggnast í heim annara sem búa í ólíkum reynsluheimi.
Góð stund en of stutt.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Nú brosi ég hringinn
, ég bara finn fyrir rónni sem dagurinn hefur borið þér.
Sporðdrekinn, 9.9.2008 kl. 02:22
Þú ert yndisleg Zordis
Kristín Gunnarsdóttir, 9.9.2008 kl. 08:06
Alltaf gott að lesa bloggið þitt Þórdís mín þú ert svo jákvæð. Stórt Knús
Kristín Katla Árnadóttir, 9.9.2008 kl. 08:52
Eigðusan góðansan dagsan krúttiðsan mittsan.
Ég lærði líka japönskuna svona hratt og vel eins og þú...
. Bara spurning um að skynja innra hljómfall..erþaeggi??
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.9.2008 kl. 10:39
Síjúsan leitersan
www.zordis.com, 9.9.2008 kl. 10:44
Katla, Stína, Sporðdreki og Ditta knús á ykkur kæru konur. Katrín fær knúsið læfsan en þið fáið huglægt knús.
www.zordis.com, 9.9.2008 kl. 10:46
Sólarsan
.... eða var það sanasól?
Hrönn Sigurðardóttir, 9.9.2008 kl. 18:14
la felicidad es sonreír, no haber :)
Inga María, 9.9.2008 kl. 21:41
Ég á þessa yndislegu flís .......kannski á ég hana af sömu ástæðum og þú málaðir hana...
SANASÓL.HAHAHAH þessi Hrönn
kosssan á þig
Solla Guðjóns, 9.9.2008 kl. 21:51
Sollan mín, þú átt svipaða...varst rugluð í valinu þegar þú valdir þina. haahhahaha lovjú girl!
Inga María, la felicidad es la unica forma de vivir!
Hrönnslansan mínsan
Sanissmasan mesan voysan pa´san dormirsan .....
www.zordis.com, 10.9.2008 kl. 00:45
Jákvæð, flott og andleg :) Gott mál...!
Lárus Gabríel Guðmundsson, 10.9.2008 kl. 03:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.