13.9.2008 | 18:59
Herdúið ekki að gera sig ....
..... hrikalegt að sjá á mér hárið! (fyrri færsla)
Ég ætla að eiga notalegt kvöld og hlusta á veðrið fyrst uppþvottavélin er tóm og allt tandurhreint!
Þvílíkt sem íslensk náttúra er mögnuð og verður að segjast að Vík í Mýrdal sé kyngimagnaður staður. Ég fór með ósýnilegu vinum mínum og staldraði við Reynisfjall og þar var nú heldur betur líf og fjör. Það niðaði í náttúrunni og ég fann minningar sem voru að hluta mínar en samt ekki. Ég uppgötvaði orkuna sem ég náði að tengja mig og naut lífsins á þessum sælureit.
Ég ætla að gera 2 smámyndir sem tengjast minningu frumanna okkar og munu þær síðan fá segul aftan á sig og verða ísskápaskraut. Lá og sá fyrir mér hvernig fruman heldur í minninguna og hvernig við hreyfum við víddinni sem er svo spennandi efni.
Ég náði svipuðu skoti og þessu hér að ofan, eins og sést þegar músinni er rennt yfir myndina þá varð vélin mín eftir í bílnum. Magnað andartak.
Best að reyna að gera eitthvað af viti eða bara óviti.
Laugardagur til lukku
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 19:01 | Facebook
Athugasemdir
Ester takk fyrir það! Jú, ég fór inn á svo skemmtilega síðu sem ég fann hjá Söru Vilbergs og hún umbreytir konum í hollýwood stjörnur. hahhahahha
Sunnudagur til sælu það er málið.
Þetta var góð ferð, tók Þingvallarferð á miðvikudeginum og dembdi mér svo í lengri rúnt!
www.zordis.com, 13.9.2008 kl. 19:35
Velkomin til baka! Hlakka til að sjá ómsegulvíddirnar
Hrönn Sigurðardóttir, 13.9.2008 kl. 19:51
Þetta kalla ég að lifa lífinu lifandi, Zordísin mín. Njóttu landsins okkar í botn ... nú styttist í útferð hjá þér.
Úff... þetta hljómaði bara ekki rétt ... hreint ekki rétt.
Hugarfluga, 13.9.2008 kl. 22:24
Mér finnst þú svo æðisleg
Það virðist sem Íslenska náttúran og hennar börn séu að fylla konuna af anda og krafti.
Forvitnin er vakinn og mig mig dauðlangar að vita hvað þú upplifðir, álfar andar og náttúrunnar börn, hljómar eins og fallegt ævintýr.
Sporðdrekinn, 14.9.2008 kl. 01:18
Agalega skæsleg greiðsla
Undravert hvað íslenska rokið getur framkallað á höfði manns. Þetta verður línan í vetur
Margrét Birna Auðunsdóttir, 14.9.2008 kl. 09:24
Njóttu fegurðarinnar á landinu okkar, hun er engu lik
Kristín Gunnarsdóttir, 14.9.2008 kl. 10:57
Þú ert æði.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 14.9.2008 kl. 11:23
Þú ert með einshverja sérstaka tengingu við alheiminn, Zordis mín. Gefandi að lesa upplifanir þínar. Ég sé að landið okkar er að inspírera þig. Mættum við fá meira að heyra?!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 14.9.2008 kl. 12:13
Þú ert flott á myndinni og þú ert sko yndisleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 14.9.2008 kl. 19:00
Það er fátt sem jafnast á við fegurðina í Mýrdalnum og umhverfi Víkur er það falllegast bæjarstæði sem ég hef séð
Flott með allar þessar hárgreiðslur eða kollur ........þú ert nú samt það albesta við þær.
Solla Guðjóns, 14.9.2008 kl. 21:12
Hola chica guapa
Ekkert smá flott með þessa sixties greiðslu
Get ekki sagt það sama um negro greiðsluna ... varð bókstaflega hrædd við þig og um þig.
Til hamingju með sýningarnar í Þorlákshöfn og í Ráðhúsi Reykjavíkur
stórkostlegur áfangi. Þú höfðar greinilega til margra .... ég ekki sú eina sem fíla þig í botn 
Knús og kossar úr fiskibænum
Guðný Hansen (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 23:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.