17.9.2008 | 01:42
Var að spá .....
.... ekki í framtíð né fortíð heldur í tímann.
Hvernig tíminn líður áfram og hendingar breytast eins og hártískan.
Í fyrri færslu birti ég mynd af allskyns hjörtum og á einu þeirra stendur "FAX ME" ..... Svo eitthvað old fashion.
Ég man eftir ungri stúlku sem við skulum kalla frk.fix og var símastúlka á ónefndri útvarpsstöð þar sem ég starfaði. Hún var falleg og frísk stúlka með lipra rödd. Í vinnunni var forláta fax tæki sem var tæknigúrúum staðarins kunnugt nema að ég man að í eitt skipti var stúlkan beðin um að senda forláta gulan gúmmíhanska yfir á ákv. faxnúmer. Já, hún tók hanskan og stimplaði númerið og bjóst svo við að hann færi sína leið ........ Þetta var bara sætt og hanskinn fór hvergi.
Ég átti notalega kvöldstund í útjaðri Reykjavíkurborgar með hressum konum í spé og spjalli. Heimferðin hjá mér var stutt þar sem ég bý líka í úthverfi borgar en Frú Hrönn er vonandi komin heim yfir Fjall, Heiði og Kamba. Send me FAX ef þú ert í trobble honný.
Ég er farin að sakna þess að vera ekki heima. Á gamalt fax tæki sem flestir væru sennilega búnir að henda á haugana en notagildið er enn hið sama. Faxið mitt er líka ljóskróna (not) og ég bara hlakka til að geta horfið heim. Iceland never again ( í 60 daga), líður svipað og þegar ég fór í 200 daga til New York.
Er að spá ....
Að næst verður það urrandi rómantík með Fjallinu á Manhattan, laaaaanga helgi.
(Í ljósi 3ja ára brúkaupsafmælis þann 7unda Okt.)
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 01:47 | Facebook
Athugasemdir
og legg það bekkinn á
Láttu eins og það sé þitt
Vúman þú ert vá!
Komin heim og undir rúm með Ike í farteskinu! Er þó lítið gefin fyrir skuldbindingar þannig að ég reikna með að hann verði úti í fyrramálið
Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 01:51
Já breytingarnar sem eiga sér stað á svo stuttum tíma eru alveg ótrúlegar. Manhattan getur verið ansi rómó
Sporðdrekinn, 17.9.2008 kl. 02:00
Arna, 2 Mánuðir sem hafa reyndar liðið hratt! En viðurkenni að lokaspretturinn er stífur!
Sporðdreki, ég held að Manhattan verði rómo og næs!!!
Hrönn, Ike hefur greinilega farið í fílu og smellt sér vestur á land.
www.zordis.com, 17.9.2008 kl. 10:22
Lína pína (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 15:32
Hvar keyptirðu faxljósakrónuna? Eða ljósakrónufaxið?
lovjú stelpa
Ég er að hugsa um að fara með þér heim 
Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 23:10
Hrönn, ég hannaði hana alveg sjálf og má segja að það séu margir bond fítusar í henni. Sko hunný bunný .... á helling af plássi fyrir svona elskandi konu eins og þig!!!!!
Lína Pína, ég þarf að hafa mig alla við til að skila gps inu og til að fá spænsku námsefnið hjá þér!
Ester, ég er komin með óstjórnlega þrá að knúsa liðið mitt en ég nýt þess að vera hér á meðan ég er. Fór í Hreyfingu í dag í nudd og pottana og það var dásemd.
Er að spekulera og það er gott!
www.zordis.com, 18.9.2008 kl. 03:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.