19.9.2008 | 01:09
Hviss Bang ...
Dagurinn hann hvarf, eins og hvert annað hviss bang!
Ég er svefnlaus en finn ekki lúlluna í mér núna.
Ég gleymdi að hitta frænku mína sem er frábærasta saumakona landsins.
Ég brunaði í Hafnarfjörðinn, Kópavoginn, Grensás, Borgartún og fann svo andann ....
Ég hitti skemmtilega bloggvinkonu og við hlógum djúpt.
Ég er að þvo þvott og hugsa heim.
þegar kona er ein þá rúmast fátt annað en ég í tilveruna þrátt fyrir að þráin séu þau, mín yndislegu börn í umsjá Fjallsins. Jemundur hvað ég elska þetta tím sem ég er hluti af!
En, svona í alvöru þá hef eg ekki heyrt eitt einasta lag með Geirmundi í sumar.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Og er það missir? Þetta með Geirmund þá. Hinn missin skil ég mjög vel.
Sporðdrekinn, 19.9.2008 kl. 03:31
Hrönn Sigurðardóttir, 19.9.2008 kl. 08:15
Margrét M, 19.9.2008 kl. 08:17
það er aldeilis spanið svona síðustu dagana fyrir heimferð..man vel eftir þessu frá mínum íslandsheimsóknum að allir vildu mann fá og hitta rétt fyrir heimferðina. Hjartað þitt er örugglega líka lagt af stað heim á undan konunni sjálfri sem kemur svo í efni í faðm fjölskyldunnar á morgun með galopið hjartað og álfagreni og íslenskar forynjur í eftirdragi úr íslenskir náttúru. Gaman, gaman, Geymir þau svo í helli þar sem klukkan tifar og tíminn líður að draumastundinni
Yndislegt að hafa hitt þig..vonandi heyri ég í þér hljóðið áður en þú yfiirgefur grundina... knús og kremj inn í rigningardag og rokhviður.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.9.2008 kl. 09:53
Það er búið að vera mikið að gera hjá þér elsku Þórdís mín. Gangi þér vel risa stórt knús.


Góða ferð.
Kristín Katla Árnadóttir, 19.9.2008 kl. 10:19
Geirmundur stendur alltaf fyrir sínu en kanski fullgróft að segja að ég sakni hans þrátt fyrir þrælskemmtileg lög. Svo reddar Hrönn mér og raular eitthvað gott og tekur taktinn með stæl!
Nú er að finna skúringakonuna og sjæna pleisið ... það styttist í dásemdina!
www.zordis.com, 19.9.2008 kl. 11:46
Góða helgi og reyndu að hvíla þig
Guðborg Eyjólfsdóttir, 19.9.2008 kl. 13:19
ohhh hvað á eftir að verða yndislegt hjá þér að hitta famelíuna aftur.
Knús til þín skvís og góða ferðina út aftur
Dísa Dóra, 19.9.2008 kl. 14:51
Það hefði verið gaman að vaða í Englavíkinni með þér
Hrönn Sigurðardóttir, 19.9.2008 kl. 16:19
Alltaf gott að koma heim til sín og hitta fjölskylduna. Ekki get ég sagt að ég sakni Geirmundar mikið. Þessa stundina hlusta ég á Uspesnice bratov Arsenik, sem er mjög vinsæl núna í Slóveníu. Hafðu það gott ljúfan.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 19.9.2008 kl. 18:01
Ég á eftir að hitta þig einhvern tíma vonandi!!! Og þá get ég spilað lag með Geirmundi fyrir þig, ef þú vilt...
knús og kveðjur,
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 23:16
Inga María, 20.9.2008 kl. 01:15
hmmm, heldur þú að þessi frænka þín geti saumað ermar fyrir mig á dóttur mína?? Ég er að leita að einhverjum sem getur það!!
alva (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 01:18
Góða ferð í Fjalladalinn
Margrét Birna Auðunsdóttir, 20.9.2008 kl. 14:13
Hefði svo viljað sjá þig einu sinni enn og tala virkilega saman um drauma, veruleikann og óraunveruleikann, táknmál og tindrandi tár ..... og fleira í þeim dúr.
Seinna, seinna.
Ég skal syngja millirödd í Geirmundarlagi ... með Hrönn.
Góða ferð á vit fjalls og fjallagrasa!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.9.2008 kl. 16:36
Huld S. Ringsted, 20.9.2008 kl. 22:09
....og ég skal vera með í óraunverulegu samtali um raunveruleikann og draumana.........
Vona að þú sért nú komin í Fjallaflangs! Og vita skaltu stelpa litla að mér þykir ólýsanlega vænt um þig
Hrönn Sigurðardóttir, 20.9.2008 kl. 22:17
Ertu farin Zordís? Við fengum okkur aldrei einn góðan kaffibolla saman, það fórst einhvern veginn fyrir. En þú kemur vonandi aftur til Íslands. Hafðu það gott heima og takk fyrir allt.
Svava frá Strandbergi , 21.9.2008 kl. 00:01
það er alltaf svo gott að koma heim, eftir að hafa verið heima !
gangi þér vel í blíðu.
Kærleikskveðja
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 21.9.2008 kl. 13:02
Hæ sæta mín,
vildi bara kvitta fyrir "innlitið" :D
besos :*
Arna g (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 01:40
Tá ertu komin á vit fjalla og tinna elskulegu.
Vid gátum tví midur aldrey hists en tad verdur einvherntímann,engin spurning.
Hafdu tad gott kæra vinkona og láttu tér lída vel
Stórt kram á tig.
Gudrún Hauksdótttir, 23.9.2008 kl. 15:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.