1.10.2008 | 16:13
Unas bromas verdes ...
... Þegar kemur að ljósbláu kvikmyndunum er ekkert blátt við þær heldur eru þær grænar Spánarmegin tilverunnar!
Allt er vænt sem vel er grænt og því grænna því betra og því fjær því álitlegra. Ég er komin í litaþerapíu og drekk vatn úr rauðum glösum, gulum glösum og stundum svindla ég og fæ mér rauðvín úr glæru glasi!
Þegar Spánverjar segja ljósbláa brandara þá eru "grínin græn" og viti menn ég er ekki að tala um golfíþróttina.
Eftir eldrauðan gærdag sem byrjaði á pirring og reiði þá leitaði ég útfyrir hinstu mörk og fann friðinn, sætti mig við aðstæður og lét eftir. Ég get ekki leyft óviðkomandi aðila út í bæ að hafa áhrif á mig. Þannig að nú ætla ég að setja nafn viðkomandi á ódýrasta pappír ever og henda honum í plastpoka og frysta hann. Já, já, stundum doltið skrítin!
Svartklædda konan fór út í morguninn á RAUÐA bílnum sínum (Ollasak ég býð þér sérstaklega á rúntinn því þú átt eftir að elska það ... Múgíbúggý á fóninn og klassapæjuhattur á höfðinu sem við vonum að fjúki ekki ...) Meðferðis var græn taska er innihélt alla liti sem ljómuðu í átt til konu. Í erindagjörðum lagði hún land undir fót og lenti í marvísum ævintýrum ....

Á markaðstorginu stóð sígauninn og bauð henni Azucenur til sölu.
Sólarglæta á himni iljaði konunni þegar hún gekk eftir markaðsgötunni og hitti allskyns fólk og sá allskyns varning. Prútt og gamaldags verslunaraðferðir. Appelsínur hér og kiwi þar! Allir voru að gera kaup lífs síns, líka ég!!!
Hvítt undirpils og mjúkasta barnateppi ever setti konan í innkaupagrindina og skimaði eftir góðum kaupum. Kaupmenn kölluðu hver í kapp við annan. Konan varð ringluð og lét við sitja enda klukkan langt gengin í 14.00.
Undirpilsið ætla ég að nota undir nýja kjólinn minn. Í kvöld ætla ég að dansa og njóta tilverunnar með hvítt blóm í hárinu. Þegar dagurinn losar faðm sinn og mætir kvöldi munum við turtlurnar eiga góða stund.

tja tja tja
Hliðar saman hliðar, tja tja tja. Rifja upp gamla takta frá því að Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar var og hét, heitir kanski enn en ég veit lítið um það mál!
Ég fann Regnbogarósirnar og set þær hér inn. Fyrir mitt leyti myndi ég velja búnt af rauðum eða hvítum, orange eða gulum. En nýungagirni er líka í góðu lagi. Ef ég fengi svona búnt af Regnbogarósum þá yrði ég himinlifandi, þær ilma sennilega af fersku vatni og himni, af jurtum jarðar og ilmi lífsins. Já, eru þær ekki bara fínar, rétt eins og þú og ég?
Regnbogarósirnar
Ást, friður og eining er í græna eðlinu, grænt kraftaverk gerist svo klukkur hljóma.
Grænn er litur vinskapar, það trausta og róin sem hjúfrar í hjartanu.
Grænn er litur hjartastöðvarinnar í chakranu og merkir harmony og ást, eins gott að hafa það í jafnvægi svo það fari ekki í öfgar!
Rauður og Grænn eru andstæðurnar en vinna samt ferlega vel saman í litaflórunni.
Grænn kærleikur bindur, ástina, friðinn og eininguna saman.
Njótum dagsins í grænni laut!
Tja tja tja
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Mér líst vel á þig í hvítu undirpilsi með regnbogarós í hárinu
Hrönn Sigurðardóttir, 1.10.2008 kl. 16:21
Já, Hrönn! Ég ætti kanski bara að sleppa kjólnum ..... hvað segir þú um það?
www.zordis.com, 1.10.2008 kl. 16:24
Brjálaðar þessar regnbogarósir
Umræddur kjóll, er það sá sem þú lést sauma á þig þarna um daginn?
Mynd, takk
Margrét Birna Auðunsdóttir, 1.10.2008 kl. 17:06
Góð hugmynd
Hrönn Sigurðardóttir, 1.10.2008 kl. 18:21
Tek þig á orðinu ......hvernig segir maður ....hæjjjjjj heitu ..á spænsku...
Ég þarf nú eiginlega aðeins að melta regnbogarósirnar....litirnir eru falllegir...en einlita appelsínugular,eldraupar eða fagurbleikar eru algerlega í upp á haldi
ég er ekki á leiðinni út en læt mig dreyma......
Solla Guðjóns, 1.10.2008 kl. 19:58
Hvílík litaorgía! Stuð er þetta á ykkur ...
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 1.10.2008 kl. 22:05
Litfagrar og fallegar rósir er glæsilegur ferðafélgi í lífið :)
Knús til þín.
Vatnsberi Margrét, 2.10.2008 kl. 00:02
Sporðdrekinn, 2.10.2008 kl. 02:19
Innlitskvitt í bloggleti minni það lífgaði uppá daginn öll litagleðin hjá þér Zordís mín
Didda, 2.10.2008 kl. 09:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.