4.10.2008 | 10:19
Úr mörgu að velja ....
Þvílík endemis kvelja!
Kanski vel ég ekkert en okkur er boðið á opnun á bílaverkstæði og bílasala, hreint glæsilegt með frábærum tilboðum í tilefni fagnaðarins. Ég ætti eiginlega að vera þar núna en sit á náttkjólnum hér með ykkur.

www.autosdirect.es þið sem hafið áhuga á þessu endilega koma svo!
Svo er það síðasti dagurinn sem mamma og pabbi eru í heimsókn og pælingin var að fara á röltið þar sem að "laugardagsmarkaðurinn" er í fullum gangi núna. Nota blíðuna og brosa framan í heiminn! Ekki veitir af brosunum þar sem að bros getur dimmu í dagsljós breytt.

Hvað skyldu komast mörg brjóst í allar þessar búbbingahöldur?
Allavega 25 tær geta búið í þessum gúmmibommsum ....
Best að fara úr náttkjólnum og rata út í sólina. Skoða úrvalið á markaðsborðunum, prútta smá og finna þörfina fyrir einhvern lítinn sætan hlut sem nýtist fullkomnlega inn í daginn.
Kela svo við kanarýfuglana í tilefni dags dýranna og biðja fyrir blessun þeirra.
Njótið dagsins.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:22 | Facebook
Athugasemdir
Góða skemmtun
Bið að heilsa sætum sígaunadrengjum 
Hrönn Sigurðardóttir, 4.10.2008 kl. 11:53
Sendi blessun á ykkur tarna í hlýjunni á spáni.
Er sko búin ad googla SAN MIGUEL de Salimas.....
Bara flott er ad hugsa um ad flytja tangad
Æ allir tessir litir og sólin heilla alltaf er svo mikill sígauni í mér.
Eitt stórt fadmlag á tig inn í góda helgi.
innan um alla tessa bubbingahöldur og bomsur.
Gudrún Hauksdótttir, 4.10.2008 kl. 15:07
Góða skemmtun oh hvað ég vildi vera Spáni núna risaknús.
Kristín Katla Árnadóttir, 4.10.2008 kl. 16:35
Arna, eins gott að þú flytjir! Verð hér og við getum smellast saman!!!!
Katla, nú er ég í rólegheitum og sendi þér knús yfir hafið!
Gurra, já hér er sko gott að vera. Vertu bara velkomin í litla bæjinn sem fer óðum stækkandi. Kanski hann minnki í takt við kreppuna, hver veit!
Ditta, vonandi endurskoðar þú þinn hug og heldur áfram á þinni braut.
Hrönn, þeir báðu að heilsa þér, ALLIR sem 1.
www.zordis.com, 4.10.2008 kl. 20:20
Ég vildi óska að ég væri á Spáni núna og að fara að rölta á markað í sól og yl
Eigðu góðan sunnudag
Huld S. Ringsted, 5.10.2008 kl. 11:21
fallegt, að vanda
Kærleikur til alls lífs og þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 08:26
Solla Guðjóns, 7.10.2008 kl. 12:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.