Yndislega rigningin er farin ...

... Hún kom og lagði blessun sína yfir jörðina.  Nú þykist ég viss um að allir litlu appesínufósturvísarnir eru hipp hipp húrra hamingjusamir og ávaxtatrén iða í berkinum sínum af heilnæmri hamingju.  Mér finnst rigningin góð rétt eins og hljómsveitinni sem Andrea og Helgi Björns sungu í um árið.  Man einhver hvað sú hljómsveit heitir?

Mér finnst rigningin góð ...
Hún kom og lét finna fyrir sér en fór eins snöggt og hún kom.

Væri til í að eiga cd inn með sveitinni og setja allt í botn.  Það er hins vegar ekki í boði og ég set Kristjönu Stefáns á fóninn í staðinn og það verður enginn svikinn af því.  Mæli með disknum hennar!

Stefnan er tekin eitthvað út eftir hádegismatinn en það fer að líða að spænsku hádegi.  Eitthvað gotterý verður í gogginn .... t.d. grænmetissúpa og ferskt salat fyrir þá gömlu og svo er spurning með hvað hinir vilja.  Á þessu heimili er oft margrétta matseðill, eldað fyrir hvern og einn og allir sáttir!  Sá yngsti myndi borða pasta í öll má ef hann fengi að ráða en hann fær það ekki blessaður.  Mallakúturinn er vel mettur eftir ávextina sem voru í morgunmat en það er það hollasta sem og slatti af vatninu góða. 

Ég var að versla mér nýjan líter af Aloe Veranu en ég trúi því að með sopanum verður allt svo miklu betra í skrokknum en nú er bara að bíða og sjá.  Hrund og Fjóla bloggvinkonur eru hæstánægðar með sína neyslu á 4ever Aloe Veranu og er það frábært!  Það ættu allir að prófa þetta því þetta er að gera svo gott.

Góður tími fyrir Martini ......
Ekki amalegt

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Rigingin er alltaf góð   alla vega lagið hljómsveitin hét Síðan skein sól SSSól er það ekki rétt hjá mér.

Guðborg Eyjólfsdóttir, 9.10.2008 kl. 12:53

2 Smámynd: Margrét M

jamms SS Sól

Margrét M, 9.10.2008 kl. 13:19

3 Smámynd: www.zordis.com

Nú man ég það!!!  var það ekki Grafík sem söng lagið um góðu rigninguna????

Ester ég held svei mér þá að þessi Aloe vera drykkur sé góður fyrir fríska og ófríska.  Þetta er náttúrulegur drykkur unninn úr aloe vera plöntunni.  Græðir að innan sem utan!

Stelpur Margrét og Guðborg, er þetta ekki pottþétt Grafík??

www.zordis.com, 9.10.2008 kl. 14:04

4 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Man eithvad af textanum  en ekki hvad hljómsveitin hét tá. .Held reyndar tad hafi verid fyrir tíma SS sól

knús

Gudrún Hauksdótttir, 9.10.2008 kl. 14:49

5 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Vá en æðisleg rigningarmynd.  Já stelpur aloe vera getur sko hjálpað...hann er minn daglegi drykkur.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 9.10.2008 kl. 17:05

6 identicon

Ég hélt það hefði verið Grafík sem söng um rigninguna ...

en hún getur verið góð stundum - sérstaklega berfættur í grasi já.

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 17:50

7 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Jú Þórdís það er held ég rétt hjá þér það hefur verið Grafík

Guðborg Eyjólfsdóttir, 9.10.2008 kl. 20:49

8 Smámynd: Solla Guðjóns

ÉG ætla sko ekki að lesa kommentin fyrr en ég er búin að svara.........GRAFÍK.

Aloa vera útvortis sem innvortis er mein hollt......og á að vera mjög gott fyrir gigt....búina að begja marga marga lítra en samt með gigt....en það eru heldur ekki allir eins....

Solla Guðjóns, 9.10.2008 kl. 20:49

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 9.10.2008 kl. 20:55

10 Smámynd: www.zordis.com

Ég verð að nálgast þennan disk þ.e. með Grafík.  Ég var farin að raula lagið í dag þegar rigningin var farin að læðast inn til mín.  Frábær hljómsveit!

Ester ég er búin að senda þér innanpóst.

Solla, við höfðum rétt fyrir okkur!  Oooog Doddi ... right on! 

Fjóla drykkurinn eru töfrar!

Gurra það var lagið!  Grafík er málið og nú þarf ég að útvega mér diskinn svo ég geti hrellt hverfið mitt

www.zordis.com, 9.10.2008 kl. 22:55

11 Smámynd: www.zordis.com

Æðislegt lag!  Helgi Björns er svo flottur söngvari!!!!  Nýjasta platan hans er líka alveg ágæt.  Svo konan hans er textahöfundurinn, vissi það ekki.

www.zordis.com, 9.10.2008 kl. 23:12

12 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

Aloe vera drykkurinn frá Forever Living Products er mjög góður, eins omegatöflurnar og bee pollen töflurnar. Ég hef verið að nota þessar vörur undanfarin ár og þetta er mjög gott.

Sigríður Þórarinsdóttir, 22.10.2008 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband