Ævintýrin gerast enn ...

... Alicante borg bíður mín ræs and sjæn. Konukroppurinn hefur sofið eins og rotuð í morgun. Rummskaði örlítið við brölt í kallinum, ekki það að hann hafi verið að reyna að koma kjéddlingunni til heldur var það tímatakan sem átti hug hans og hjarta! Alonso varð fjórði og spenna helgarinnar er tengd Formúlunni. Verður bara gaman á morgun þegar keppnin verður ræst í bítið.

Alicante er það heillin! Það verður næs að spóka sig um í borginni, kaupa lottómiðann og baða sig eins og Jóakim aðalönd, ætla að reyna að fá þetta í seðlum en ekki skiptimynt. Það hefur talið heillavænlegast að heita á Strandakirkju í Selvoginum, ó já!  Ooooog Gulla vinkona sagði mér að það gæfist alltaf vel að heita á hana svo það er aldrei að vita nema ég geri það bara líka!!!!

Ég er að fara að undirbúa brúðkaup sem ég hef ansi frjálsar hendur með.  Þarf t.d. að græja gumann.  Þegar hann er komin í veiðarfærin þá geta hlutirnir gerst hratt  InLove  Dagsetningin er ákveðin svo það er ekkert til fyrirstöðu að hefja skipulagið.  Innan við ár í viðburðinn.

Hringirnir komnir í silkibandi ...

Ekki amalegt hjúskapardjásn sem vinkona mín fær á fingur sér.

Latneskt skal það vera með öllum þeirra hefðum og trummsi .... gæti líka heitað á þetta fyrirmyndar brúðkaup!  Hvernig líst þér á það mín kæra brúður.  Jy hvað konu getur hlakkað til núna!!!

Mig dreymdi þeldökkan hipp og kúl mann sem færði mér kristalglas með rauðbrúnum galdravökva og sagði að ég myndi brenna öll við að drekka úr glasinu.  Þrátt fyrir að skynsemin yfirgefi mig á stundu þá dreypti ég ekki á glasinu sem var afskaplega fagurt!  Ráðning draumsins er að ég læt ekki glepjast þrátt fyrir mikla spennu.  

Ekki eru það fleiri orð á fögrum degi, það er heil borg sem bíður mín með allskyns töfrum og leyndarmálum.  Ég ætla að fara í notalega skó og sjá hvert ég verð leidd áfram ......

Engar freistingar takk, eða hvað? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Haðu það gaman og gott í dag.......líst vel á góða skó á konukropp til að njóta ferðar

Solla Guðjóns, 11.10.2008 kl. 11:24

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

3ja daga veisla, sætur sígauni, söngur og dans! Hvað getur kona beðið um meira?

Hrönn Sigurðardóttir, 11.10.2008 kl. 14:39

3 Smámynd: www.zordis.com

Hrönn ég held að þetta sé himnaríki með útbreidda sæng .... "ekki frá því"

Solla, nú er táningurinn minn að fara í næsta bæjarfélag í afmælisveislu, bíó og snarl og við hin ætlum að skjótast til Alicante að kaupa lottómiða og námsbók!

www.zordis.com, 11.10.2008 kl. 14:44

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú lætur mig bara vita hvenær ég á að byrja að strauja pilsið ;)

Strax farin að láta mig hlakka til - sem er algjörlega nauðsynlegur hluti forleiks

Hrönn Sigurðardóttir, 11.10.2008 kl. 14:54

5 Smámynd: www.zordis.com

Ég held að verðandi tengdó bróderi pilsið með gimsteinum og nauðsynlegum semólísteinum sem tóna í takt við augu rósarinnar.

Pantaðu far strax út, Iceland Express eru byrjaðir að selja í sumarsætin ... Það er vissulega tilefni til tilhlökkunnar.  Við þurfum að velja brúðarmeyjarnar svo eitthvað sé nefnt!

www.zordis.com, 11.10.2008 kl. 15:03

6 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Hafðu gaman.  Lagið mitt er að finna á commenti frá Garðari á blogginu mínu.  Er þó ei fullunnið, verður af meiri hraða og fleiri hljóðfæri koma inn síðar.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 11.10.2008 kl. 20:12

7 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Innlitskvitt mín kæra

Helgarklemmur

Gudrún Hauksdótttir, 12.10.2008 kl. 07:52

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hafðu það yndislegt !

Kærleikur og Ljós yfir til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.10.2008 kl. 14:12

9 Smámynd: Tína

Vonandi var helgin þér og þínum alveg yndisleg. Hér var sko bara legið í leti get ég sagt þér.

Knús á þig frábæra kona og takk fyrir öll þín komment sem ávallt og undantekningalaust falleg og hjartastyrkjandi.

Tína, 13.10.2008 kl. 07:49

10 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Hafðu það gott Zordís mín

Kristín Gunnarsdóttir, 13.10.2008 kl. 14:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband