13.10.2008 | 16:47
Nakin kona situr og spinnur þráð ..
... fínt að vera nakin á Spáni, tala nú ekki um eins og í dag þegar sólin skín og nartar í kinnarnar á konu, hún grettir sig framan í hana og gefur henni tunguna. Allir sólargeislar heimsins bæta svo sem ekki ástandið og það kreppuhjal sem virðist tröllríða okkur. En .....
Í dag talaði ég við fiðrildin og bað þau um halda áfram að fegra umheiminn. Þau sveima frjáls og falleg allt um kring og fegra augnablikið. Ef þú sér lítið fiðrildi þá er það örugglega komið til þín að hvísla að þér fallegum boðskap heimsins um samstöðuna og friðinn sem við þurfum á að halda.
Í dag hefur dagurinn liðið og ég fann augu til að sjá hlutina í ljósi annarar manneskju og er sátt við þá sýn sem mér birtist. Ég tek á málunum með því jafnaðargeði sem mér er unnt og þakka fyrir mig. Eitt pent takk sem ég vona að öðrum gefist líka að nota.
Að vera þakklátur gefur töluvert í hjartað.
Þakklæti eru góð læti.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:49 | Facebook
Athugasemdir
Sporðdrekinn, 13.10.2008 kl. 16:51
"Þakklæti eru góð læti" Mæltu kvenna heilust dísin mín
Hrönn Sigurðardóttir, 13.10.2008 kl. 20:52
Ein bestu læti sem til eru.
Solla Guðjóns, 13.10.2008 kl. 23:03
nartar sólin í allar kinnarnar á konu sem er nakin ... ?
Knús og kveðjur á þig, dúlla!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 00:14
Brynja skordal, 14.10.2008 kl. 01:25
Tad vildi svo vel til ad ég sá eitt stórt hvít fidrildi í morgunn fyrir utan gluggann minn.Tad stód á tví, med kvedju frá vinkonu...
Ég ákvad ad senda tad til baka med kvedju.
Takk tetta yljadi
Gudrún Hauksdótttir, 14.10.2008 kl. 07:26
Meiri lætin á þessu bloggi ... Knús á ykkur kæru konur.
Ooooog Doddi ... allar kinnar sko, bæði að aftan og framan fyrir ofan og neðan! Spurning hvort kona standi á höndum eður ei. thihihihih
www.zordis.com, 14.10.2008 kl. 08:05
Huld S. Ringsted, 14.10.2008 kl. 08:57
Sendi þér fiðrlildi á bleiku skýji
Guðborg Eyjólfsdóttir, 14.10.2008 kl. 10:08
Ég sendi þér hlýjar kveðjur Þórdís mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 14.10.2008 kl. 10:25
væri alveg til í smá sólaryl núna því það er ansi kalt orðið á klakanum en skrifin þín ylja manni um hjartarætur, takk fyrir það
Sigrún Sigurðardóttir, 14.10.2008 kl. 12:52
eigðu yndislegan dag..
Margrét M, 14.10.2008 kl. 13:02
Þú ert svo yndisleg manneskja Zordís mín, heimurinn væri betri af það væru til mörg eintök af þér. Knus á ykkur
Kristín Gunnarsdóttir, 14.10.2008 kl. 14:01
ó já það eru svo sannarlega góð læti.
Upphef slík læti fyrir að vera svo heppin að þekkja þig
Dísa Dóra, 14.10.2008 kl. 20:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.