Hún er fegurst Rósa ....

Fegurst Rósa

Fegurst Rósa

Ég er eitthvað svo tóm í tilfinningunni ....  Ég fékk fréttir í gær sem ég bjóst ekki við og vona svo sannarlega að vinafólki mínu vegni vel með nýjar ákvarðanir í lífinu.  Ég óska þeim alls hins besta og bjartra vona á þeim nýju skrefum sem þau hyggjast taka. 

Lífið tekur stundum breytta stefnu sem okkur svíður en ég trúi því að óvænt ferðalag geti líka boðið uppá ný og notaleg tækifæri sem bæta okkur og styrkja.  Hver hindrun í lífinu eru gullin tækifæri, það er undir okkur komið að nýta þau okkur til betrunar og bóta í lífinu.  Gangi ykkur vel kæru vinir .....

Ég fór óvenju lumpin í gær uppí rúmm snemma og dormaði fram eftir öllu.  Fjallið kom og þvoði á mér iljarnar og bar á mig nærandi krem og augun þyngdust eins og blý.  Gott að eiga góða að á öllum augnablikum lífsins .... 

Áður en svefninn sótti mig saunglaði ég í hjarta mínu.

Í húminu snertir hjarta mitt

er lýsir bjarmann fríða

Í faðmi snertir veruna blíða

þú í mér, við rennum í eitt

 
Heart
 

kinnbein hvítt, augnblik þýtt

niður vanga perlar

ástin eina, svo geislandi björt

í laumi þig ætla að geyma

Heart 

 Í djúpi ástar ég fann þig

elsku og hjartað fína

Við áðum lífsins björg og hljóm

unaðssemdir blíðar

Heart

(Z)

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Arna, þær eru ekki slæmar fyrir mig en það er þessi ríkjandi samkennd sem fær konu til að vera smá hnuggna yfir aðstæðum.

Fótanuddið var hreint yndislegt ... nú verð ég að nudda Fjallið því þá getum við verzlað með fótanudd á kvöldin!

Bestu kveðjur til þín mín kæra!

www.zordis.com, 18.10.2008 kl. 10:56

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Allt hefur sín áhrif en slltaf kemur sólin upp

lovjú

Solla Guðjóns, 18.10.2008 kl. 11:05

3 Smámynd: www.zordis.com

lovjú 2 Sollan mín ... vonandi gúffaðiru nokkrum múffum í þig fyrir mig í litla húsinu á horninu við bónus í Síflissandi táwn.

Knúzzz á þig, ég þakka nú bara himnaherranum fyrir hvern sólarganginn á fætur öðrum, gangur hringur ég set á mig allt heimsins glingur!

www.zordis.com, 18.10.2008 kl. 11:11

4 Smámynd: Margrét M

gott að fá góða snertingu frá þeim sem maður elskar

Margrét M, 18.10.2008 kl. 12:41

5 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Lífid er alltaf ad minna okkur á ad tad er ekki eins og dans á rósum.

Dásamlegt ad njóta fjallanna

Eigdu góda helgi er á leid á Bubbatónleika í køben núna.

"Tad er svo gott ad elska"

Gudrún Hauksdótttir, 18.10.2008 kl. 14:37

6 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

En hvað þú átt yndislegt fjall Zordís mín. Knus á ykkur öll

Kristín Gunnarsdóttir, 18.10.2008 kl. 14:47

7 Smámynd: Sporðdrekinn

Þessi maður þinn er nú meira gullið, yndisleg, bara yndislegt.

Sporðdrekinn, 18.10.2008 kl. 16:53

8 Smámynd: Hugarfluga

Alltaf jafn fallegar flísarnar þínar, Þórdís! Sendi vinafólki þínu hlýjar hugsanir. Vona að það birti hjá þeim sem fyrst.  Knús á kallinn þinn fyrir að láta Þórdísi minni líða vel

Hugarfluga, 18.10.2008 kl. 19:47

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

http://gardening.about.com/od/yourgardenphotos/ig/Rose-Photo-Gallery/Photo-of-Pink-and-Gold-Rose.htm .. fallegt ljóð ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 19.10.2008 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband