Hún strauk í ljósop lífsins ...

... fékk nóg af liggjunni og ákvað að vitja lífsins.

Breddan er agnarsmá kona, full af gleði og lífsþrá.  Hún kom til mín í nótt og sagðist vanta lit í kinnarnar og agnarsmá augu til að líta gleðina sem lífið hefur að bjóða.

Breddan læddist í nóttinni

Hún læddist á sínum tryggu fótum í átt að næturstað frúarinnar og hvíslaði i undirmeðvitund hennar.  Pískur og draumaískur fóru um konuna sem svaf værðarsvefni. 

Þegar ég vaknaði íhugaði ég um gæði og æðibunur lífsins og tók Bredduna tali.  Hún hafði mælt af viti og fær von bráðar agnarsmá augu til að sjá lífið í nýju ljósi.  Hún vill verða gæslukona og fær að gæta litlu blómálfanna og dverganna sem búa í ljósopi blómanna.

Breddan komin með hlutverk

Hún sagði við mig;  Ég er alsæl í sinni, það gladdi mig.  

Litla ljósopið þarfnast Breddu til að sinna hlutverki boðberans.  Það verður eflaust blómlegra lífið þegar Breddan fær lit í kinnar og agnarsmá augu til að gleðjast.  Í litlu þakklæti kyssti hún mig á kinnina og sagði, Njóttu dagsins mín kæra, þú og allir þínir bloggvinir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét M

snilldar bredda

Margrét M, 19.10.2008 kl. 12:51

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mér dettur í hug lagið: "......og ég á gamla frænku...."

Yndis

Hrönn Sigurðardóttir, 19.10.2008 kl. 13:32

3 Smámynd: Dísa Dóra

Flott þessi bredda

Dísa Dóra, 19.10.2008 kl. 14:17

4 identicon

Konan sem bar út Moggann.... eða hvað hét aftur platan með Possibillies?

Alla vega ... fallega bredda....

kærar kveðjur til þín og þinna! 

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 14:50

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þú ert dúllurass

Heiða Þórðar, 19.10.2008 kl. 21:07

6 Smámynd: Jónína Sólborg Þórisdóttir

Long time no see stelpa!

Jónína Sólborg Þórisdóttir, 19.10.2008 kl. 21:30

7 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 19.10.2008 kl. 23:57

8 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Támjó og tígulleg !

Lárus Gabríel Guðmundsson, 20.10.2008 kl. 08:54

9 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Æ flott frásögn...Hlakka til ad sjá raudar kinnar og fallegu augun sem lýsa daginn tinn

Fadmlag til tín kæra Zordís

Gudrún Hauksdótttir, 20.10.2008 kl. 09:34

10 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Flott er hun breddan þín Zordís mín.Knus á þig yndislega kona

Kristín Gunnarsdóttir, 20.10.2008 kl. 10:03

11 Smámynd: Tína

Breddan þín tekur sig sko vel út þarna við blómin. Knús á móti yndisfagra kona.

Tína, 20.10.2008 kl. 12:24

12 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Flott Bredda, gangi ykkur vel

Guðborg Eyjólfsdóttir, 20.10.2008 kl. 12:41

13 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hún er nefnilega dálítið bredduleg, þó smá sé ....!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.10.2008 kl. 21:39

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...hvernig eru augun í henni á litinn?

Hrönn Sigurðardóttir, 21.10.2008 kl. 08:40

15 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

yndislegt

Svala Erlendsdóttir, 22.10.2008 kl. 12:48

16 Smámynd: www.zordis.com

Takk fyrir innlitið, Breddan er að taka þátt í brjáluðum mótmælum á heimsvísu!

Hún er nú meiri kjéddlingin, neitar gessói og málningu .... hefur tekið stjórnina og íslenskan mátt í þjóðernisbaráttu.

www.zordis.com, 22.10.2008 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband