28 Octubre, un día maravilloso ...

Sonur minn kom og kúrði í hálsakotið og sagð mér stórfréttir; það á nefnilega að snjóa í fjöllin og nú er lítill hugur að planleggja ferðir á fjöll.  Hitastig hefur lækkað og svo um munar!

Veðrið er hins vegar dásamlegt og ég ætla að koma mér í eldgamlan íþróttagalla og fara í kraftgöngu og þenja lungun.  Síðastliðinn sunnudag tók ég uppá því að fara í hjólreiðartúr með börnunum mínum og við tókum ca 5 eða 6 eða 7 km spotta og er rassinn á mér greinilega á sínum stað og ég held svei mér þá að hnakkurinn sé þarna líka.

Fór í ljósmyndun í gaer og útkoman er m.a. þessi hér .... ég er að uppdeita heimasíðuna mína www.zordis.com loksins eftir árs vanraekslu.  Ég komst að því að ég á því miður ekki myndir af myndum í nógu góðri upplausn frá sýningum í sumar. 

Sjálfsmynd

Fjallið tók þessa mynd

Skrítið hvernig tíminn líður áfram og mér finnst ég vera vakna upp af djúpum svefni.  Nú fer tímabili að ljúka hjá mér og nýtt að taka við.  Ég trúi því að allt kemur á réttum tíma þrátt fyrir að við teljum okkur ekki tilbúin.  Við erum alltaf tilbúin fyrir það nýja, já ég held það bara.

Lífið býr yfir roða hversdagsins og fyrsti kaffisopinn er bara góður.

gróu sögur

Gróu sögur akrýl á striga 60 x 80

Engin Gróa hér heldur sit ég ein á náttkjólnum, berfaett og hlusta á morgunfréttir.  Íþróttagallanum verður sennilega brugðið þegar kjéddlingin tekur á því.

Twillý mín er 50 í dag og ég óska henni til lukku með daginn.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Frábærar myndirnar þín Zordis! Ég á eftir að kaupa fleiri sem einlægur aðdáandi þinn 

Fín líka myndin af þér sem Fjallið tók. Augun svo uppfull af ást og kærleika. 

Hrönn Sigurðardóttir, 28.10.2008 kl. 08:44

2 Smámynd: www.zordis.com

Uppfull af ást og kaerleika, já það er málið ....

kaffi númer 2 og íþróttaleikvangur San Miguel er í spreng.

www.zordis.com, 28.10.2008 kl. 09:06

3 identicon

já, myndirnar þínar sem ég hef séð eru alveg dýrðlegar ég á örugglega eftir að fara að safna þér ;)

kærleiksknús

alva (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 10:30

4 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Sendu mér smá kraft frá Spáni takk  Mig vantar svo kraft í að gera eitthvað fyrir sjálfa mig þá meina ég í hreyfingu.  Frábærar myndir hjá þér mín kæra. Og flott myndin af þér líka

Guðborg Eyjólfsdóttir, 28.10.2008 kl. 10:34

5 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

sammála þessu með hnakkinn á hjólinu hehehe það er alltaf eins og hann verði eftir í vissri skoru á líkamanum á manni eftir langa hjólatúra... gaman að lesa bloggið þitt þú skrifar svo fallega...við fáum nýtt tækifæri á hverjum degi þegar við vöknum til að skapa okkur nýtt og betra líf, málið er bara að byrja hvern dag á jákvæðri hugsun með jákvæðan dag í huga. kærleikskveðja til þín Zordís

Sigrún Sigurðardóttir, 28.10.2008 kl. 12:05

6 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Myndirnar tínar alltaf jafn dásamlegar Zordís mín...Manni langar í allar sko.

Flott myndin af konunni sem tekin var af fjallinu tínu.

Stórt fadmlag til tín frá Jyderup.

Gudrún Hauksdótttir, 28.10.2008 kl. 13:13

7 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Altaf eru myndirnar þínar jafn fallegar Zórdís mín, og góð er myndin sem fjallið tók.

Kærleikur og ljós til þín yndislega kona

Kristín Gunnarsdóttir, 28.10.2008 kl. 14:04

8 Smámynd: Dísa Dóra

elska hreinlega allar myndirnar þínar

Dísa Dóra, 29.10.2008 kl. 04:36

9 Smámynd: Brynja skordal

Góðan dag æðislegar myndirnar þínar gaman að skoða svo er nú aldeilis flott myndin af þér þarna geislandi kona knús inn í daginn þinn ljúfust

Brynja skordal, 29.10.2008 kl. 08:32

10 Smámynd: Hugarfluga

Rosalega finnst mér þessi mynd flott!!!!!

Hugarfluga, 29.10.2008 kl. 14:33

11 Smámynd: www.zordis.com

Hugarfluga, þú ert örugglega að tala um myndina af mér, er þakki?????

Takk fyrir innlitin elskur ( mér finnst bara allt í lagi að vera elskulega og segja elskur )  já, það var nú lítið meira annað en að ég var að spá í smá bloggrúnt!

www.zordis.com, 29.10.2008 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband