7.11.2008 | 22:22
Þá sjaldan sem kona vildi prumpa ....
Oooog það allverulega! Þarf ekki að heyrast neitt í því né vera ílla lyktandi. Ég er uppfull af engu, sem er svo ólýsanlega óþægilegt. Loft!
Ég er búin að borða grænmeti alla vikuna og ógrynnin öll af vatni en í hádeginu þá voru kræklingar, lax og smáfiskur ásamt aspasi á hlaðborðinu og vatn! Óþægindin lýsa sér samt eins og ég hafi borðað epli sem segir mér að ég borðaði epli!
Aevintýraþrá akrýl á striga 15 x 15
Eitthvað aetlar graeni liturinn að grafa sig í skinnið á mér. Ég umpottaði fallegum blómum í dag, Jólarósin er komin á sinn stað, gul Begonía, 2 híasintur og fallegar dökk púrpúralituð blóm sem ég veit ekki alveg hvað heita.
Sólskinið hefur kitlað okkur og ég þakka fyrir allt nema loftið sem hrjáir mig núna
Já, og síðan mín www.zordis.com hefur tekið smá breytingum, hef baett við linknum þakflísar og eru þar nokkrar nýjar myndir. Einnig sett inn smáraeði á linkinn Nýtt ... Gestabókin er í lamasessi og hostway aetlar ekki að laga diskvandamál sem átti sér stað hjá þeim, bla bla bla! Endilega kíkið og sjáið breytingarnar!! Ég aetla svo að vera dugleg og uppfaera hana einu sinni í mánuði.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Geðveikt kvöldkitl
Ég kíkti á Zordisina og sá þar veggina mína
Sko það eru tvær myndir hérna hjá mér sem þú átt Með blátt í glasi og kvöldhjal.Þeir sem vilja kaupa þær geta sótt þær til mín
Svo á ég rosas.....
og ég á líka akrilmyndirnar ..konan með kisuna..notaleg stund..púðar og á flugi..
Ég er alveg óhræddd að hagræða sannleikanum aðeins og segja fólki sem er að skoða þær að þær séu frá fyrirsætuferli mínum
það er alveg yndislegt að sjá svipinn á fólkinu........
Koss á sofandi vanga
Solla Guðjóns, 8.11.2008 kl. 01:46
Aspas er nú bara prump "in the making" sem og flest önnur græn, grænmeti.
Ég dúmpa nokkrum sinnum létt á þig rétt fyrir neðan mitti og strýk laust upp bakið á þér. Þetta endurtekk ég þar til að þú nærð að ropa eða prumpa (ef að ég má ráða þá ropa), þínu græna gasi.
Sporðdrekinn, 8.11.2008 kl. 03:38
Zordís. Ég fæ gleðitár í augun þegar ég horfi á sköpun þína og gleði. Hvílík kona sem þú ert. Þakka þér fyrir.
Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 10:01
Engin er synd, þó búkurinn leysi vind, var sagt á Eskifrði í gamla daga.
Eigðu góðar stundir, elsku kona.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.11.2008 kl. 12:57
Takk fyrir yndislegar færslur og enn yndislegri myndir
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 8.11.2008 kl. 15:10
Takk fyrir innlitið kæru konur. Ég er betri í vömbinni og hér hefur ekkert orðið að engu sem er gott.
Nú ætla ég að fara með börnin í bíó eða eitthvað skemmtilegt ......
www.zordis.com, 8.11.2008 kl. 15:27
Prumpulagið hans Dr. Gunna á vel við ...
gott að heyra að vömbin sé betri.
Sendi samt extra góðar kveðjur frá Akureyri til þín - hafðu það yndislegt!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 15:54
fallegt er þetta hjá þér elsku bloggvinkona,óska þér góðan sunnudag kv Ólöf
lady, 9.11.2008 kl. 11:59
Hæ skvís. Hvað kostar myndin með froggy á? er hægt að panta mynd í ca. þeirri stærð af konu með fíl?? vertu í bandi og kærleiksknús
Ásdís Sigurðardóttir, 9.11.2008 kl. 15:33
Huld S. Ringsted, 9.11.2008 kl. 17:34
Hæ sætust, ekkert smá flottur froskurinn!!! Og heimasíðan
-frábært að fá flísarnar þar inn líka.
Knús og kossar á þig dúllan mín, kastaðu kossum á kinnar á familíuna þína frá okkur
Elín (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 22:37
æðislegt!!
alva (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 00:04
þú ert svo frábær
Margrét M, 10.11.2008 kl. 11:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.