10.11.2008 | 11:19
Breddan á faraldsfaeti ...
... allavega létt á fæti, það vantar ekki.
Ég þarf að skjótast í smá flugferð og dúllann er alveg æf að koma með en það gengur tæplega. Við sjáum til hvað verður ......
Lífið er gott og gult, veðrið milt og grænmetissúpan mallar á glóðum. Ungherrann kemur heim í hádeginu og það þarf að undirbúa eitthvað almennilegt nasl í strákinn. Íris Hadda fer í dans í kvöld þessi engill en hún fer 2x í viku í dans og líkamstjáningu og er að njóta sín. Enrique vill fara og læra hestamennsku .... já, svona erum við misjöfn.
Óður til Breddunnar
Mikið er hún sæt og fín
draumlynd elsku breddan mín
Andlitsfríð í grænum kjól
með vesk rautt og stórt.
Rósaknúbbur setur stút
hrikaleg er hún kjút
Fagurlega fótabúin
ljúf og létt á fæti.
(z)

Breddan er á faraldsfaeti og lætur fátt stöðva sig.
Glaðhlakkanleg brosti hún til mín og tilkynnti hátíðlega að nú væri komið að því að skoða heiminn, sýna sig og sjá aðra. Hún er enn að spá í hvaða háralit hún aetti að velja .....
Tíminn flýgur!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
mér finnst einhvernvegin að hún þurfi að vera með rauðbrúnt hár
Margrét M, 10.11.2008 kl. 11:21
mér finnst það líka...... undarlegt!
Áttu uppskrift að grænmetissúpu? Hljómar heavenly :)
Hrönn Sigurðardóttir, 10.11.2008 kl. 11:24
Snilld, en varstu búin að sjá kommentið frá mér með konu og frosk?
Ásdís Sigurðardóttir, 10.11.2008 kl. 11:59
Frábært að þið skulið vera sammála með rauðbrúnan lit .... Ég er nefnilega með rauðbrúnt og krullað hár sem ég er búin að máta við hana.
Hrönn ég skal senda þér uppskrift af góðri súpu!
www.zordis.com, 10.11.2008 kl. 12:11
Flott er hun orðin, breddan. Þú mátt lika senda mér uppskriftir Zordís mín
Kristín Gunnarsdóttir, 10.11.2008 kl. 12:41
Rauðbrúnt færi svo vel við veskið
langar líka í þessa uppskrift af grænmetis súpunni takk
hafðu það ljúft Elskuleg
Brynja skordal, 10.11.2008 kl. 15:09
Nú langar mig í súpu!
Ég er að fíla bredduna, hún valdi kjólinn sinn vel, ég er viss um að hún gerir það sama með hárið.
Sporðdrekinn, 10.11.2008 kl. 20:18
Mér finnst hún eigi að vera rauðhærð ekki spurning
hvað finnst þér ?? Hafðu það gott mín kæra og þú líka Bredda 
Guðborg Eyjólfsdóttir, 10.11.2008 kl. 22:26
Það segi ég sama - rautt hár færi Breddfríði vel!!
alva (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 23:30
Rautt eða rauðbrúnt á svona fína frú, ekki spurning....
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 10.11.2008 kl. 23:51
Ég sé hana fyrir mér með fagurfjólublátt slétt hár
knúss
Solla Guðjóns, 11.11.2008 kl. 08:38
Mér finnst Brettan flott, stórt knús
Kristín Katla Árnadóttir, 11.11.2008 kl. 10:21
knús sæta lús
Sigrún, 11.11.2008 kl. 11:38
Rauðbrúnt færi henni vel :)
Knús
Vatnsberi Margrét, 11.11.2008 kl. 12:13
Endilega settu uppskrift af súpunni þinni á bloggið svo við öll súpu unnendur getum prófað. Breddan er flott. Kærleikskveðja.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 11.11.2008 kl. 13:46
Kærleiksknús frá Lejre
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.11.2008 kl. 18:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.