15.11.2008 | 20:14
Dagur fellur í fadm naetur ....
Skrítid innan zess ramma sem skrítid naer. Hvernig gamlar tilfinningar sitja eins og rykfallnar jólakúlur, glansa jafn fallega eins og fyrsta minning jólanna.
Ég hef saett mig vid ad jólakúla minninganna er minning og stundum verdum vid ad leyfa sumu ad lída eins og vatnid sem rennur til sjávar. Zad tekur hins vegar engin minninguna og slekkur á henni zrátt fyrir ad vid sleppum og látum vindinn hvísla nyjum sögum og nyjum senum í lífid.
Zad eina sem ég get gert er ad zakka alla fegurdina sem bjó í minningunni og allt zad fallega sem vidkomandi gerdi med naerveru sinni. Takk, "zú" sem ert hjarta mínu kaer.
Í dag áttum vid gódan dag, lukkunnar laugardagur sem var bodinn og búinn ad fá okkur fimm-menningana til sín. Ég segi 5 zví hver önnur en Bredda litla skellti sér med okkur. Hún hafdi bedid vid útidyrnar frá zví klukkan 10.00 í morgun. Vid vorum ad sysla hér heima; ganga frá zvotti, setja í vélar og graeja ditten og datten.
Fjallid dreif sig og nádi í bílinn, börnin og ég fórum nidur og jedúdda mía, öskrin sem bárust úr íbúdinni!!! Breddan gleymdist ....... Úff!Ég gat ekki annad en farid og nád í hana, eldrauda af öskrum. Hún nádi gledinni fljótt og kom sér fyrir á milli barna minna í bílnum og kalladi zau bródir og systir!
Aevintyraferd framundan hjá systkynum.
Okkur langadi ad fara út um allt en leidangurinn var ekki lengri en Torrevieja midbaer! Sólin lét sig ekki vanta og kjéddlingin fór úr lopapeysunni zegar leid á.
Hér bídum vid eftir ad Fjallid komi og Bredda var í tryggu haldi svo ekki faeri hún eins og fuglinn fljúgandi í burtu. Lífsgledi hennar er med ólíkindum.
Yndisleg og saet Íris Hadda med Breddu.
Elskuleg dóttir mín sagdi vid la abuela (amma spaenska) um Breddu, "mamma fer med hana út um allt" .... Zaer stilltu sér upp og Breddan brosti sínu breidasta!
Breddan lét ekki sitt eftir liggja og baud okkur út ad borda, vid fórum á gódan stad med sjávarútsyni, sáum flott bord og zjónninn meinadi okkur ad tylla okkur zar sem vid vaerum bara 4 en uppábúid fyrir 5. HALLÓ, vid erum 5 og Bredda stappadi aerlega nidur tígullegum tám sínum en allt kom fyrir ekki, hún var ekki talin med! ( hrikalega léleg zjónusta, tala nú ekki um zegar mun faerri eru ad borda úti vegna kreppunnar sem slaer okkur medalfólk á vanga) .....
Vid fórum á annan stad zar sem okkur var zjónad til bords med bros á vör og nutum zess ad sitja saman og spjalla um allt og ekkert.
Á gódri stund!
Eftir matinn fórum vid og spókudum okkur meira um baejinn, dóttlan versladi sér lítid veski og sonurinn sá agalega flottan bol med bardagahetju á. Hippamarkadurinn var fámennur og fengum vid fínustu zjónustu enda med aurana uppi.
Ég átti von á tengdó sem var vaentanleg í kaffisopa og vid drifum okkur heim. Heimasaetan var tilbúin og fór med ömmu og afa og nú eru rólegheit á baenum. Fedgarnir ad horfa á Terminatior og múttan aetlar ad gefa zeim súpu í kvöldmat og mála sjálfinu til dundurs fram eftir kvöldi.
Fridur og fidur í fallega heiminn okkar.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Sætust saman....... öll fimm
Knús í hús
Rósa (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 20:38
Flott mynd af ykkur öllum 5.Það er eins og Breddan hafi alltaf fylgt ykkur.
Hvenær kemur þú
Solla Guðjóns, 15.11.2008 kl. 21:09
Solla ég kem adfaranótt 22 nóv! Ég fer sennilega á Selfoss á sunnudeginum ef ég verd hress í kaffi med Hrönn ... ertu med?
www.zordis.com, 15.11.2008 kl. 21:21
Ég væri til í að hitta ykkur í kaffi, frábærar myndir af family með Breddu. Kær kveðja og GN
Ásdís Sigurðardóttir, 15.11.2008 kl. 21:42
Verd í nokkra daga! Allt of stutt í raun, zyrfti ad skjótast á Sudurnesin en zar sem tíminn er svo skammur zá zori ég ekki ad ákveda neitt zar sem höfudstödvarnar verda í Zorlákshöfn. Samt aettum vid Ruslana ad hittast og ég kem med myndina sem zú varst búin ad bidja um.
www.zordis.com, 15.11.2008 kl. 22:24
Innlitsknús
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 15.11.2008 kl. 22:42
Flott fjölskylda
Svala Erlendsdóttir, 16.11.2008 kl. 00:46
Æðisleg
Heiða Þórðar, 16.11.2008 kl. 08:36
Yndislegar myndir af fólkinu tínu og nýjasti fjölskyldumedlimurinn ávallt med Hvernig væri ad hafa hitting ég kem á tridjudaginn á klakann...
Eigum vid ad hóa í bloggvinina?
Kærleikskvedja
Gudrún Hauksdótttir, 16.11.2008 kl. 08:47
Fallegar myndir af ykkur.
Ertu að koma til Íslands mikið langar mér að hitta ykkur og fá mér kaffi sopa með ykkur það væri gaman.
Kristín Katla Árnadóttir, 16.11.2008 kl. 10:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.