28.12.2008 | 19:05
Að lifa í gegn um aðra ...
... eða minningarnar sem hinir skildu eftir.
Konutetur bakaði pönnsur áðan við góðar undirtektir heimilisfólksins. Ég á eldgamla pönnsupönnu sem hefur væntanlega bakað ótal tugi af pönnsum allt sitt pönnsulíf. Ég veit eiginlega lítið um uppruna hennar annað en að hún virkar vel þrátt fyrir að handfangið er eiginlega laust og pannan á auðvelt með að fara flikk flakk hraðsnúning svo það þarf að hafa hröð og snögg handtökin.

Ég er búin að vera að skoða allskyns uppskriftir af fyllingum til að "varía". Bestar þykja mér pönnsurnar með smá sykri en ég hef einnig borðað spínatfylltar pönnsur með osti í ítalskri tómat og rjómadressingu.
Ég ætla að freista þess að gera spínatpönnsur handa okkur eldri fjölskyldumeðlimum einhvern síðustu daga ársins.
Í jólagjöf fékk ég frábæra uppskriftabók sem ég ætla að hella mér í nú í kvöld og kanna hvort ekki einhver góð cous cous uppskrift leynist inná milli.
Við fengum góða gesti en þá voru allar pönnsur því miður búnar en það stóð ekki á kaffi og piparkökum.
Ég er búin að hafa skrítna tilfinningu í dag, veit ekki hvort þetta er fyrirboði eða bara þúsund fiðrildi sem eiga leið um???
Kemur í ljós!
Fjölskyldan er búin að vera í miklum kósý rólegheitum, við sváfum út og svo hafa allir verið að dunda sér. Ég eldaði hádegismat, kjúklingabringur og hrísgrjón og útbjó svo dásamlegar pönnsur með kaffinu ....
Matur, matur og meiri matur .... ekki linast vömin á frúnni heldur gengur hún sterk inn í nýja árið. Reyndar er þyngdarsöfnun gott ráð við hrukkum .... fitumyndun fyllir uppí hrukkufarið og kona er eins og fertug allt lífið ... Já, aldur og holdarfar er ofarlega í huga konunnar, wonder why?
Svona burt séð frá hinu og þessu tengdu mat þá langar mig í vöfflujárn sem gerir hjartalagaðar vöfflur! Væri til í gamalt járn og notað ..... en það má líka vera nýtt. Los Reyes (vitringarnir þrír) koma að morgni þrettándadags og hver veit nema að þeir skilji eftir eitt stk. vöfflujárn sem gerir kærleiks og hjartalagaðar vöfflur fyrir mallakútana á þessu heimili.
Knús og hjartalaga kossar til þín
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.12.2008 kl. 19:40
Huld S. Ringsted, 28.12.2008 kl. 22:27
Hjartalaga vöfflur!! Sounds delicious!! Fáum okkur svoleiðis fyrir sítrónusígaunagaura....
Hrönn Sigurðardóttir, 28.12.2008 kl. 22:36
Ó já mín kæra Hrönn .... Mætum með hjartavöfflu með jarðarberjasultu og sætum Hrannarkoss!
Annars var ég að taka út ilmandi eplapæju úr ofninum dóttlunni til mikillar gleði! Já nú skal árið bakað til enda ....
www.zordis.com, 28.12.2008 kl. 22:42
Knús til þín og fjölsk
Kristín Katla Árnadóttir, 28.12.2008 kl. 22:42
Hjartalaga vöfflur með ís, súkkulaðisósu og ferskum jarðaberjum slær alltaf í gegn á mínu heimili. Yndislegustu afslappelsiskveðjur frá okkur hér á Fróni....kærleiksknús og sykur til þín sætust.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.12.2008 kl. 22:47
pönnsurnar eru bestar með sykri það er sko satt hjá þér
Ég segi nú alltaf að það sé lúxus að hafa svona innri anlitslyftingu
Dísa Dóra, 29.12.2008 kl. 10:05
Manni langar bæði í pönnsur og vöfflur með súkkulaði og rjóma. Eigðu góðan dag Zórdís min. Kærleikur til þín
Kristín Gunnarsdóttir, 29.12.2008 kl. 10:42
Kem í kaffi...............
Kaffiþyrst (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 11:00
Æ tegar tú talar um pönnsur langar manni svoooooooooo mikid í.Tad er bara langt sídan ég hef bordad svona herlegheit nema um daginn fekk ég í eftir rétt pönnukökur med kiwi,mango, jardaberjum og teittum rjóma og madur minn hvad tad var gott med kaffinu.
Knús til tín elskulegust.
Gudrún Hauksdótttir, 29.12.2008 kl. 12:25
Er á smá jóla/áramóta yfirreið að lesa hjá ykkur öllum, hafðu það ávallt sem best kæri bloggvinur
Ásdís Sigurðardóttir, 29.12.2008 kl. 13:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.