29.12.2008 | 14:49
Á fleygifljúgandi ferð ....
... árið bara að skjóta sér fyrir hornið!
Tíminn hið undursama hugartifandi tímatak. Ég lagðist til svefns í gær allt of seint eftir tilraunir í eldhúsinu. Spáið í það að ég hef látið eldhúsið nánast óáreitt allt árið og svo skal ég enda það með bakstri og matreiðslu. Kanski eru það konuárin sem eru að læðast að mér ????

Eplapæjan tókst bara vel þótt ég segi sjálf frá. Matvandi sonur minn vildi að sjálfsögðu ekki svona mat .... hefði treyst sér í súkkulaðitertu svo það verður næst á dagskrá!
Ég átti rosalega góða uppskrift sem ég nældi mér í úr Gestgjafanum, hrikalega góð en eftir að ég flutti og hætti nánast að baka og vasast í eldhúsinu þá fór uppskriftarminnið að gefa sig.
Agalegt alveg!

Svo er bara að græja uppskrift af frönsku súkkulaðitertunni. Ég fann þessa mynd hér til hliðar á heimasíðu Krydd og Kavíar (allir þangað) þar eru margar grinilegar tertur, osta og skyr og allskyns ..... En leyndardómur uppskriftarinnar er óráðinn því innihald er greinilega leyndó!
Árið hefur liðið mjög hratt, margt yndislegt hefur komið til okkar og við fagnað því. Heilbrigði fjölskyldunnar er þakkarvert og vita til þess að stuðningur er ávallt til staðar þegar syrtir. Árið hefur verið spennandi á svo margan hátt en einnig dapurt en það er hluti af lífinu!
Win some lose some!
Ég er enn með þessa skrítnu tilfinningu er samt rólegri í dag. Dreymdi saur enn eina ferðina í nótt og hitti hann afa minn á himnum. Já, það er ekki endasleppt hvorki í svefni né vöku.
Ég hef trú á því að nýja árið komi sterkt inn með margar góðar breytingar.
Lífið er fullt af gullnum tækifærum, það er undir okkur sjálfum komið að grípa "gæsina".
It´s good to be a king!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Yndisleg færsla, I like to be the queen
Ásdís Sigurðardóttir, 29.12.2008 kl. 15:02
Ég segi líka It´s good to be a queen .... Bara yndislegt að finna fyrir royalbúðingnum í sálinni.
Ég er komin með 2 dásamlegar uppskriftir frá henni Nönnu R bloggara á spottinu ... googlaði mig í gegn um málið og sé að nú þarf kona að fara í verslun og kaupa springform og bökunarpappír!
Svo fá allir smakk!
www.zordis.com, 29.12.2008 kl. 15:20
mmm súkkulaðikage....... ég eina guðdómlega uppskrift af slíkri!! Bezt ég grafi hana upp
Hrönn Sigurðardóttir, 29.12.2008 kl. 15:28
Ohhhhh súkkulaði er víst sagt slétta húðina, allt sem er yfir 70% gerir okkur eins og silki.
Látt´ana koma Hrönn .....
www.zordis.com, 29.12.2008 kl. 15:34
Flott hjá þér. Nú þá er best að borða mikið af súkkulaði og ekki spillir ef húðin verður eins og silki og sléttir húðina.
Kær kveðja
Kristín Katla Árnadóttir, 29.12.2008 kl. 16:32
Ég bakaði og át og gaf með mér eina þá allra allra bestu súkkulaðitertu sem ég hef smakkað í gærdag....ég kalla hana franska ?'
En hún gæti þess vegna heitið ,,eftirherma ala solla,,því mér finnst gaman að breyta aðeins uppskriftum.
Sendi þér uppskriftina á eftir.
Solla Guðjóns, 29.12.2008 kl. 19:42
Jæja, nú þarf ég að fara eldsnemma að kaupa vog! Var að búa til hina dásamlegustu súkkulaði karamellur evert! Ef einhver vill prófa þá er ég með plentý!
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 00:48
tíhí það þarf að borða hana líka á meðan hún er heit - þannig að það er ekki bara að vaka og baka!!
Hrönn Sigurðardóttir, 30.12.2008 kl. 01:12
Elska súkkuladikökur sem rennt er nidur med dýrindis raudvíni tad er toppurinn.
Tad er svo mikill mindarskapur á kellu.
Knús til tín ljúfust.
Gudrún Hauksdótttir, 30.12.2008 kl. 08:47
Þá er ein í ofninum sem við krossum fingur að koma betur út en súkkukaramellan sem fór í russlið áðan!
Lengi lærir sem bakar ... þarf samt að fá mér vog, Á HREINU!
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 10:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.