30.12.2008 | 13:53
Ævintýri eldabuskunnar ...
... eða var það Öskubuskan ??
Kanski hverfur allt bakkelsið um miðnætti ...... og eldabuskann sem strílaðist upp með kokkahúfu sitji í sárum með höfuðklút og gamla trésleif. Það væri þá aldrei að þetta væri súrrealískur draumur, ég í kóma á sjúkrahúsinu og líf mitt ein og tóm ýmindun.
En svona til að taka allan vafa af þá verðið þið bara að dæma sjálf hvernig Súkkulaði terta Hrannar kemur út með tilsettu hátíðarskrauti.

Kemur bara nokkuð girnilega út hátíðar súkkulaðitertan sem er liður í æfingaprógamminu, Desert gamlárskvölds 2008.
Við mæðgin ákváðum að skella í nokkrar pönnsur og sá ungherrann um að hræra á milli þess sem hann sigtaði hveiti. Honum fannst pönnsurnar sínar mjög bragðgóðar og fékk sér nokkrar með sykri.
Ég fékk mér hins vegar pönnsu með krabbasalati og kemur það einstaklega vel út.
Sé að kona þarf að drífa sig að versla vog til að geta mælt hráefnið í tertur ársins 2009 til að forðast mistökin.
Smiðsaugað virkar ekki alltaf og urðum við sárlega vör við það í nótt sem leið þegar kona tók út stökka sykurköku ... bragðgóða en stökka undir tönn.
Jæja kæru bloggvinir, árið að smokra sér fjær svo ég segi, njótið augnabliksins því það er svo dýrmætt.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Jiii hvað hún er fín :)
Hrönn Sigurðardóttir, 30.12.2008 kl. 14:04
Ertu ekki stollt af mér dúlla?
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 14:06
ROSALEGA flott hjá þér stelpa. krúttkveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 30.12.2008 kl. 16:40
Takk Ásdísin mín, ég iða alveg í skinninu að prófa uppskriftina hennar Sollunnar okkar en vantar smérið í hana .... þarf að skjótast í búð!
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 16:59
Mjög flott hjá þér enda máttu vera stolt kær kveðja.
Kristín Katla Árnadóttir, 30.12.2008 kl. 17:42
Satt segiru Katla! Ég þori varla annað en að láta fólk smakka í kvöld og gera eina nýja fyrir annað kvöld ..... Ennnn Hrönnslan segir að hún sé himnesk og það veit sá sem allt veit að STUNDUM LÝGUR HÖRNN ...... hahahhahhaha
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 17:56
Hrönn Sigurðardóttir, 30.12.2008 kl. 18:33
HRÖNN, hún er dásamlega himnesk ... Fjallið og ört stækkandi sonur hans gefa henni 10 plús í einkunn.
Og þetta með misritunina á nafninu þínu sorry ... HRÖNN er það og verður!
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 18:36
Ætóldjúsó!!
Hrönn Sigurðardóttir, 30.12.2008 kl. 19:09
Enda er ég enginn krakki sem hægt er að ljúga í, eða hvað ???
Takk fyrir þessa uppskrift .... Baka, mála, og baka aðeins meira og kattarkurl fæðist fyrir nýja árið!
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 19:17
Djísús hvað mín er myndarleg..er einmitt að leita að góðum eftirrétti einhverju ógurlega spennandi til að hafa með til mömmu annað kvöld..!!
Eitthvað algerlega görótt og galdrandi á gamlárs.
Knús á þig og þína mín kæra
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.12.2008 kl. 19:51
Katrín þessi er guðdómleg á bragðið og ég er búin að kaupa stracciatella ís sem á að borða með krúttinu. Vona að enginn verður svikinn og núna í þessum töluðu er Fjallið á leiðinni með bita ti mömmu sinnar svo hún geti dæmt bitann svo nú er ég obbólega spennt!
Gleðilegt árið til fjölskyldunnar þinnar mín kæra!
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 20:07
Flott terta, hvar fær maður uppskriftina??
Hafðu það ljúft um áramótin
Huld S. Ringsted, 30.12.2008 kl. 20:59
Jöss! Fæ ég knús frá tengdó þegar ég kem að sækja sígaunann? Spennandi að vita hvernig henni fannst kakan
Hrönn Sigurðardóttir, 30.12.2008 kl. 21:22
Ég fór og keypti jarðarber til að skreyta mitt eintak með á morgun! Ætla að skála í kampavíni fyrir sjálfri mér og nýju ári
Hrönn Sigurðardóttir, 30.12.2008 kl. 21:26
Ég verð alltaf svöng að koma inn á þína síður! Dóttir mín er annars að baka hér heima, síðbúnar Sörur og bannar mér að smakka.
..
Gleðilega hátíð annars!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 30.12.2008 kl. 23:12
Hrönn við tengdó skálum saman þegar sígauninn verður af"hennt"ur með viðhöfn .... Tengdó varð mjög hrifin og hrærð yfir hæfileikum "dóttur" sinnar ... moi.
Ekki skála bara fyrir þér heldur tökum eina sáluskál fimm mínútur yfir 12 þegar þögnin er yfirstaðin.
Jóhanna, ég þarf bara að fá Söru uppskriftina til að geta spreytt mig ... Ég verð með trimm blogg eftir áramótin .....
Huld .... ég er búin að spora út síðuna þína með uppskrift Hrannar!!!
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 23:19
Arna mín, hér er vissulega skotið upp og aðallega þegar að heilagur verndardýrðlingur hvers bæjar fyrir sig er heiðraður. Í mínum bæ skjóta San Miguel búar upp eins og brjálæðingar á kostnað bæjarins þann 29.sept!!
Alltaf þegar liðin okkar vinn þá hrökkvum við í kút við hvellettur og sprengjur EN á gamlárskvöld þá sjá útlendingarnig og einstaka partýglaðir spánverjar um að skjóta upp! Ég verð með stjörnuljós fyrir mín börn og fjölskyldunnar en það er algjört hámark fyrir mig sem klökkna og græt feitt þegar nýja árið gengur í garð!
Knús á þig og þína með von um farsæld og frið á nýja árinu. Farsæld og friður til ykkar allra mínir kæru og dýrmætu bloggvinir!!!
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 23:36
Nú er komið fram yfir miðnætti, ég er enn í eldabuskuævintýrinu, var að setja í ofninn Hrönn númer tvö og er að útbúa Hrönn númer 3 .... ath. Hrönn = súkkulaðiterta a la Hrönn.
Fjallið kom og sagði við mig hvort ég héldi virkilega að ein væri næg fyrir 8 fullorðna og 7 börn (af þessum 7 börnum eru 3 stálpuð og sonur minn borðar á við Fjallið ....) Þannig að kona mætir ekki með allt of lítið og nú verður það; Vaka og Baka svo einhver verði Kakan ....
www.zordis.com, 30.12.2008 kl. 23:45
Já ég skal skála við þig í nótt!
Rosalega er ég glöð að kakan slær í gegn hjá þér
Hrönn Sigurðardóttir, 31.12.2008 kl. 08:29
falleg kakan
Margrét M, 31.12.2008 kl. 10:54
Frábærlega flott og ábyggilega ótrúlega góð...las uppskriftina hennar og sú lofaði sko góðu....
En elsklingurinn minn takk skemmtilegar stundir á árinu sem er að líða og já takk fyrir svo miklu meira en það.
Ég óska þér ,Fjallinu ,Írisi Höddu og Enna gleðilegs nýs árs.átar og hamingju.





Solla Guðjóns, 31.12.2008 kl. 15:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.