3.1.2009 | 14:24
Svif yfir hausamótum á öðru fólki ....
.... að þvælast um heima og geima og svífa eins og enginn sé morgundagurinn. Að staldra við og grípa hugsanir fólks sem bera með sér bjarta von.
Nýtt árið 2009 ber með sér ólesin orð og ónotuð tækifæri. Vonin og kærleikurinn spenna sig undir bringubeininu og kona stendur tvístígandi yfir framtíðinni, gleðinni og morgundeginum.
Árið endaði á yndislegan hátt með fjölskyldu og vinum, góðum mat og hlátrasköllum. Áríð hófst með gleði í hjarta og kossum frá fólkinu sem við elskum mest, nokkur stjörnuljós og blys voru sett í litlar hendur sem ljómuðu af gleðinni einni.

Hér eru litlu tútturnar komnar inn .... Ekki alveg búnar að fá endanlega andlitssnyrtingu. Tunglið skín skært og glyttir í nokkra álfa fyrir þá sem sjá lengra.
Áramótin bera vonandi vott um framhaldið og gleðina sem mun fylgja okkur út þetta ár. Við tökum á því sem kemur af þeirri kunnáttu sem okkur er auðið og reynum að læra af reynslunni sem getur verið sæt eins og fallegt sumarblóm eða bitur eins og rammasta vömm.
Í hjarta mínu ber ég von fyrir heiminn og alla sem búa á jörðinni okkar en það er velferð og betrun á aðstæðum.
Njótum stundarinnar og njótum lífsins eins og enginn sé morgundagurinn. Okkur líður svo miklu betur þegar kærleikurinn umvefur litlu hjörtun okkar.
Gleðilegt árið kæru bloggvinir með von um sigra og sæta daga.
Lífið er gott, engin spurning!
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:27 | Facebook
Athugasemdir
Já mér fannst ég sjá eitthvað sveima þarna í þokunni þar sem krummi krunkaði sem mest.........
Lífið er gott - eins gott og við viljum hafa það. Við höfum nefnilega alltaf val.
Hrönn Sigurðardóttir, 3.1.2009 kl. 14:45
Já, sástu mig .... svona er að fara hamförum. Rétt þetta með valið, við getum nebblega ákveðið hvernig við viljum hafa hlutina frá innstu taug!
Takk fyrir bollurnar!
www.zordis.com, 3.1.2009 kl. 14:50
Vid höfum alltaf val ad vissu marki ..Vid skulum nota tad .Hvar eru álfarinir?????Er med svo lélega álfasjón nefnilega.
Hjartanskvedja inni góda helgi med hugarró
Gudrún Hauksdótttir, 3.1.2009 kl. 15:44
Mikið les maður hvað þú ert hamíngjusöm kona elsku Zordís, það´ætla ég lika að vera á árinu
Kristín Gunnarsdóttir, 3.1.2009 kl. 16:01
Yndisleg færsla hjá þér elsku Þórdís mín maður verður svo glaður í hjarta að lesa þetta.
Kristín Katla Árnadóttir, 3.1.2009 kl. 16:34
Guðrún, álfarnir eru sennilega komnir í felur .... stundum skilja þeir bara eftir sig spor og dillandi hamingjutilfinningu ...
Kristín, ég reyni að leita það góða og jákvæða eins og konan í bókinni sem þú ert að lesa en svo koma dagar ....
Katla mín knús á þig og Helga það var yndislegt að hitta þig ekki bara einu sinni heldur 2x.
Er að fara út að borða með manninum mínum að halda uppá síðasta dag 3 og 9!
www.zordis.com, 3.1.2009 kl. 18:49
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 3.1.2009 kl. 21:42
Sá að þú sagðir í kommenti hjá mætri konu að happatalan þín kæmist í 40 í dag.
Innilega til hamingju með daginn kæra vinkona

Dísa Dóra, 4.1.2009 kl. 01:17
Elsku Þórdís afmælisstelpa
Til lukku með daginn, vona að þú náir að njóta hans og allra annarra sem á eftir koma.
Kær afmæliskveðja
Lilja
Lilja Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 01:17
Sæl krúttkona
Innilega til hamingju með afmælið elsku vinkona.
Rósa (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 10:57
Til hamingju með afmælið kæra vinkona
Vatnsberi Margrét, 4.1.2009 kl. 12:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.