5.1.2009 | 14:48
Hring eftir hring ....
... hvítagullshringur með demöntum ... eða hringanóri sem vefur sig að tímanum sem líður frá okkur eins og eggjandi lækjarniðurinn. Að standa og horfa á eftir tímanum, standa í stað og hugleiða hvað verður?
Tímamót framundan .... Hvað vil ég að móti tíma minn þetta árið, hvaða verkefni eru framundan eða erum við að tala um hvíld og slökun?
Ég þarf kanski að hvolfa bolla til að geta kastað munstrinu í einhverfuna mína. Aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér .....
Lífið er gott, úti er bjart og notalegt að venju. Smá rigning í gær sem grænkaði appelsínuakrana, verst að hafa ekki verið með myndavélina til að sýna ykkur fallega græna litinn með öllum appelsínugulu depplunum.

Á nýársdag þegar við hjónin risum úr rekkju eftir stuttan svefn þá var haldið í göngutúr og morgunmaturinn tekinn á slísý spænskum bar!
Það var svo gott að komast út og ganga, svo gott að ég er að spá í að koma mér fljótlega í gönguprógramm.
Grænmetismatseðillinn hrópar á mig og ég mun taka upp girnilegar súpur í öll mál til að koma jafnvægi á þessa helstu innanflóru sem hefur vanstillt sig örlítið um þessa hátíð.
Þegar að konan vaknaði í gærmorgun þá drifum við í að koma heimilinu í sitt fína form og ókum til Fjalla og hittum á tengdamömmu og pabba sem biðu með hádegismatinn og afmælissönginn.

Við höfum verið dugleg að úða í okkur allskyns góðgæti og í eitt skiptið fórum við á kínverskan stað og sögðum óspart ég elska þig við þjónustu stúlkuni Ai wo ni en það er með því fáa sem við kunnum að segja á kínversku. Við erum frá landi Bing Dao sem er ís og eyja ... Kanski það væri lag að setjast á námsbekk og læra nýtt tungumál ???
Börnin mín sátu fyrir á gylltu ljóni og fer það þeim alveg ágætlega!
Í kvöld koma "Los Reyes" sem eru kóngarnir þrír (sbr.vitringarnir þrír) við munum fara og horfa á gönguna hjá þeim er þeir fara fylktu liði um bæjinn okkar. Við erum reyndar ekki búin að ákveða hvar við ætlum að sjá herrana en í fyrra vorum við stödd í Orihuela og var það virkilega gaman og gangan flott.
Á morgun skilja þeir svo eftir jólagjöf barnanna og þar með lýkur jólahátíðinni okkar. Jólaskrautið fær kanski að standa eitthvað áfram ... kanski fram að páskum, hver veit??
Ætli það sé ekki best að fara í kollhnís og rifja upp gamla leikfimistakta frá því að konukroppur var 10 ára. Gera nokkrar teygjur og klappa svo saman lófunum, hliðar saman hliðar og tja tja tja!
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Tad er ég viss um ad konan færi létt med kolllhnísinn tó 4 eithvad se ordin í dag.
tad er heilmikid látid med jólin tarna hjá ykkur og bara skemmtilegt.
kvedja frá mér
Gudrún Hauksdótttir, 5.1.2009 kl. 15:00
Margrét M, 5.1.2009 kl. 15:11
Mikið hefur þetta verið dásamlegur dagur hjá þér og ykkur mikið er sumarlegt hjá ykkur.
Kristín Katla Árnadóttir, 5.1.2009 kl. 16:18
Mikið hefur þetta verið ljúfur dagur hjá þér
Svíarnir segja að jólin séu fram að páskum svo þú gerist bara sænsk og tekur ekkert jólaskraut niður strax
Dísa Dóra, 5.1.2009 kl. 18:34
Hehehehe .. Dísa Dóra ég held bara í sænsku hefðina og prata svenska til paasken!
www.zordis.com, 5.1.2009 kl. 19:31
híhí þeir segja líka að der i mellem kommer fasta.........
Passar vel fyrir grænmetisgutl!
Hrönn Sigurðardóttir, 5.1.2009 kl. 19:47
Ja for he....., der imellan kommer fastan ....
Nu er det jul igen, nu er det jul igen tralalalalala ...
www.zordis.com, 5.1.2009 kl. 20:31
Má ekki jólaksrautið bara vera uppi fram að næstu jólum??
mér finnst ég alltaf vera nýbúin að taka það niður þegar hringrásin byrjar aftur, fyrir utan það hvað allt verður tómlegt þegar það er farið.
Knús
Huld S. Ringsted, 5.1.2009 kl. 20:47
Til hamingju með daginn elsku Þórdís við sjáumst svo um páskana
Takk fyrir kveðjuna og bloggið
Ég bið að heilsa Írisi og Enriqe og öllum
Kveðjar Arnar og fjöldskylda..
Arnar Snær (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 21:50
Solla Guðjóns, 5.1.2009 kl. 22:31
Þú ert örugglega kattliðug Zordís mín
Kristín Gunnarsdóttir, 6.1.2009 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.