Meiri geitin þessi fertuga kona .....

Steingeit: Mörg tækifæri gefast til ferðalaga á næstunni. Berðu fram óskir sem þú vilt fá jákvætt svar við, þær gætu ræst.

Þegar spáin er svona góð þá léttist brúnin í grunnhygginni konu sem er í senn glöð og döpur.  Einkennileg blanda af tilfinningu.  Kanski er þetta aldursdoðinn en það getur ekki verið því lífið er rétt að byrja.

Heart

Þegar hugurinn er auður opinn fyrir öllu!  Þegar kona horfir á angan blóma og finnur ekki ilminn. Þegar orðin hætta að hljóma og löngunin er lítil sem engin. Hún lokar augunum og sér sig í lausu lofti. án vængja án alls .... hún er týnd í sjálfri sér, alein.

Sumir dagar eru hvorki né í tilfinningalífinu, litbrigðin týnast í grámu skuggans og hugurinn fellur eins og lauf að hausti. Að snerta jörðina, finna moldina og kærleika móðurinnar er ávallt huggun, ávallt staðfesting tilverunnar.

Út um gluggann ... með þér ! 

Vilt þú svífa með mér að miðbaug? 

Eitt andartak með þér á ljúfri leið. Þú tekur hönd mína og leiðir mig þína leið, þá leið er sýnist sú besta. Að leiðast saman í eilífðardansinn þann eina sem okkur var ætlað.

Stundum þá er hið augljósa hulin stjarna er glitrar í hjartanu og ferðast á ógnarhraða um líkama þinn, um líkama minn en við sjáum ekki ljósið fyrir birtunni er skín svo skært. Stjarnan þín og stjarnan mín!

Að lýsa hvort öðru leið, að finna kærleikans slátt í hjarta þínu og þú í mínu. Tvö en samt eitt í hvort öðru.

Að týna sér í ást okkar og falla í ljúfu lofti án þess að finna ilm ástarinnar, án þess að finna hljóm dýrðarinnar og án þess að finna rödd kærleikans.

Að elska er sú gleði sem við gefum hvort öðru, ég í þér og þú í mér. Að finna hamingjuna á öllum tímum jafnt ljúfum sem sárum.  Í þér vil ég finna frið þess er leiðir mig á öllum tímum.

 Heart

Hamingjan er dansinn sem við stígum í blíðu sem stríðu.

Hvort sem konan er döpur eða glöð þá er ávallt staður í tilverunni.

Heart 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þegar hugurinn er auður þá er meira pláss fyrir nýjungar.

Hrönn Sigurðardóttir, 7.1.2009 kl. 21:35

2 Smámynd: www.zordis.com

Hrönn, já ég hef heyrt það nebblega, svo er spyrnan alltaf best frá botninum ....

En svona fyrst þú ert í kaffi og smók (djók þetta með smókinn) þá keypti ég rósir og búnt að blönduðum blómum því blómakallinn gat ekki gefið til baka. Hann er töluvert fullorðinn en maður sem gæti fært þér rósir daglega svo við erum komin með 1 í netið og reyndar son hans líka = 2.

www.zordis.com, 7.1.2009 kl. 21:40

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Fallegar hugsanir elsku Þórdís

Kristín Katla Árnadóttir, 8.1.2009 kl. 07:47

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Buenos dias eða Buenos eins og gömlu karlarnir í lögregluhverfinu lauma út úr sér þegar ég heilsa þeim í sundlauginni á morgnana! Þetta líst mér vel á! Tveir í sama netinu og selja blóm

Hrönn Sigurðardóttir, 8.1.2009 kl. 08:48

5 Smámynd: Agný

Takk fyrir kærleiksrík skrif Þórdís..  ,, Þegar við upplifum okkur "tóm" þá höfum við rými til að bæta nýju inn." Svona eins og við segjum stundum..núna er ég alveg tóm,  þá ættum við að muna að þá  er einmitt tækifæri til að læra eitthvað nýtt..Þegar við upplifum okkur eins og við getum ekki bætt neinu við þá erum við búin að loka á flæðið...hætta á stöðnun...Kær kveðja til þín úr rigningarsuddanum...

Agný, 8.1.2009 kl. 09:53

6 Smámynd: www.zordis.com

Agný það er nákvæmlega málið, að fylla í tómið sem hefur myndast. Ég er sennilega tilbúin að taka á móti gjöfinni sem bíður mín. Nú þarf ég bara að grípa hana og koma henni fyrir, mublera upp konukropp og gefa mér góða spyrnu í framtíðina!

www.zordis.com, 8.1.2009 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband