Það gladdi mig ...

... Svo mikið sem það gladdi mig að heyra í gömlum (samt ungum) sjóara í gærkvöldi. Já, já ... búin að vera með makanum mínum í 10 ár samfleytt í gær og svo tala ég bara við einhvern sjóara! Sko, hann sagðist hafa heyrt af mér fyrir vestan, in ðe wild vest og mig sótti furðu því ég er strand hér á Spáni.

Jú, sko þú varst þar fyrir svo mörgum árum en minningin lifir um þig enn ... mæ "pornódog" ég meina, God, hver man nú eftir henni litlu mér ef mig skyldi kalla ... Ó. jú hann rifjaði upp fyrir mér sögurnar sem ganga eins og eldur í sinu.  Um konuna sem tók lagið á frábærasta skemmtistað Ísafjarðar fyrir stútfullum sal af vestfirskum hefðarmeyjum og peyjum, konan er verndari háseta og alles.

Ég sem var búin að gleyma þessu saungævintýri .... Eitthvað annað þegar við tókum trylltan dans í Hnífsdal og stigum á svið og alles.  Sváfum svo í rökkrinu við kirkjugarðinn og .......

Kona og fiskur

 Já það er ýmislegt sem kona tekur uppá þegar hún klæðist sporðinum einum fata og kastar sér til sunds ....

Ég var spurð af einum málverkasafnara af hverju ég væri að teikna fiska ??  Góð spurning en svarið var hins vegar ekki mjög djúpt!

Nema kanski vegna fyrralífstilfinninga sem rekja má til Atlantis ... uggar eru voða sexý og svo er fiskatáknið oft fyrirboði karlmanns.

Á myndinni hér til hliðar er konan sko alls ekki ein, hún er hins vegar hrein með nýgreitt og slegið hár.

Kanski kom konungurinn til að biðja hönd hennar og við það tækifæri færði hann unnustu sinni dásemdar perlur úr safni sjávar.

Lífið er 10% betra eftir 10 ára kjölfestu með sama kalli og batnar bara eða kanski er ég bara farin að ráða meiru eða kanski gefa meira eftir eða hver veit ....

Lífið er í senn stutt og flókið samt svo gott!  Þótt skuggsælt sé hinum megin við húsið þá vel ég skuggan og nýt yiljarins sem er allt um kring.  Skrítin skrúfa sem þarf að skjótast í banka og banka uppá hjá góðu fólki.  Föstudagur er fjárdagur, dagur Fryggjar sem var frjó og sterk.  

Í dag læðast nýjir draumar inn í veruna og ég ætla að vera til .... ef Guð lofar! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

Amen, það ætla ég mér líka að gera ÉG ÆTLA AÐ VERA TIL    Gleðilegt árið Zordís mín og takk fyrir samskiptin á því gamla, æðislegt ár framundan , stóóórt knús á þig mín kæra

Sigrún Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 11:42

2 Smámynd: www.zordis.com

Sömuleiðis Sigrún, ég trúi því líka að þetta ár verði risastórgott!

Ég er búin að fara á útsölu með drenginn og verslaði á hann mjög fínan fatnað á góðu verði og nú er ferð númer 2 með dömuna ....

Eins og ég hef ekki gaman að þræða stórverslanir þá hlakka ég til að eiga prívat stund (þótt það kosti mátunarklefamætingar) með elsku dóttlunni minni. HALLELÚJA!

www.zordis.com, 9.1.2009 kl. 14:03

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislegt blogg hjá þér í dag 

Ásdís Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 14:42

4 identicon

Þú ert krútt.........

Rósa (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 21:46

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Skil þá svo vel fyrir westan.... maður gleymir ekki svona snót

Hrönn Sigurðardóttir, 9.1.2009 kl. 22:12

6 Smámynd: www.zordis.com

SEgðu elsku krúttið mittttt .... Langar í no way brauðsneið og nýuppteknar kartöflur!

Rósa þú ert líka krútt og Ásdís líka og Sigrún .... Ég nebbl. þekki bara krúttlegt fólk, konur og kalla og börn með skalla eða voru það kallarnir .. allavega þá er ég að horfa á ókláraðar myndir út um allt eldhús hjá mér ... "gúgú" alveg að verða brjál ......

www.zordis.com, 9.1.2009 kl. 22:16

7 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Fallega fallega kona

Svala Erlendsdóttir, 9.1.2009 kl. 22:37

8 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Þú ert bara yndisleg Zordis min, æðisleg mynd

Kristín Gunnarsdóttir, 10.1.2009 kl. 09:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband