12.1.2009 | 08:34
Er tilveran spennandi ..
Ég vaknaði óvenjufersk í morgunsárið eftir stutta viðveru í draumaheimum. Finn að ég er eitthvað svo tilbúin fyrir þetta eitthvað sérstaka sem bíður eftir að ég taki það að mér.
Sálin hefur tekið henndinni yfirtöku og fyrr en varði var ég búin að íklæðast rauðum bol sem hlýtur að þýða eitthvað sniðugt. Fljótt þá rankaði kjéddlingin og fór í svart allt um kring. Rauði bolurinn skríkir af ánægju og ég finn að hjartað tekur aukaslag við og við. Pumpan á fullu fyrir daginn!
Cromoþerapían segir sitthvað um rauða litinn. Ég er orðin huguð, svei mér þá vel hvern litinn á fætur öðrum!! Í gær var það Indigo og í dag er það rautt sem umvefur hjartað, lungun og nýrun.
Rauður; Litur sem leysir adrenalín úr læðingi, notaður til að örva stríðsmenn fyrir árás . Gríski stríðsguðinn Marte ók um á rauðum vagni og er rautt jafnan tákn um styrk og orku.
Rauði liturinn er sagður hafa mikil lækningamátt þegar kemur að sjón, heyrn, þefskyni, snertingunni og bragðskyni fyrir utan að liturinn er sagður í styrk sínum flýta fyrir bata hverskyns blóðskjúkdóma etc. Of langt mál væri að telja upp lið fyrir lið en þið sem eigið við lifrasjúkdóma að etja þá er rautt málið!!
Rautt verður og er litur ástarinnar og ýtir undir kæruleysis tifinningu ástarinnar, losar úr læðingi þúsundir tifinninga bæði góðar og slæmar fer allt eftir því hvaða upplag hvílir í okkur en veitir okkur tvímælalaust byr undir vængi ástar.
Fjarmiðlun lita er spennandi konsept í "hugarlækningum". Við getum einbeitt okkur að sjálfum okkar eða að viðkomandi einstakling og miðlað orku í þeim lit eða formi sem viðkomandi þarfnast. Við getum borðað litinn sem okkur vantar. Sem dæmi fyrir þá sem ná ekki í græna fæðu geta látið ferskt vatn í glas, gott er að láta sólarljósið verma glasið með töfrum sínum og svo er vatnið drukkið með litaáhrifum.
Bara spennandi!

Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
og í tilefni af því sendi ég þér rautt
stútfullt af orku.
Hrönn Sigurðardóttir, 12.1.2009 kl. 08:45
Rautt er líka litur rótar orkustöðvarinnar og hefur með jarðtengingu að gera...
En kannast þú ekki við að þér finnist þú ekki finna neitt til að fara í þó að þú eigir nóg af fötum? En ástæðan getur verið sú að þú finnur ekki þann lit sem þú þarfnast...
Svo er líka eitt..að sá litur sem við þolum ekki eða fílum ekki sé akkúrat sú orkustöð sem hefur þann og það sem hún stendur fyrir sé það sem við þurfum að vinna með..
Þannig að þegar þú ert komin með alla orkustöðva litina að þá séu þær í nokkuð góðu jafnvægi. Það er ekki svo galin hugmynd að klæða sig í þá liti sem að okkur finnst að geti hjálpað x orkustöð og styrkt það sem hún stendur fyrir. Eigðu svo góðan og orkufullan dag kæra Zordís...
Agný, 12.1.2009 kl. 12:15
Agný það er málið, eðlislæg tilhneiging okkar til að lækna okkur er stórkostleg. Ég hef fengið ótrúlega langanir að klæða mig í klikkaða liti en oft látið undan fyrir svörtum og djúpum litum og hleð þá á mig allskyns aukadóti í litum. Á veski í öllum litum og á það til að mála málverk í trilltum litum. Já við eigum að fóðra orkustöðvarnar þegar þær öskra á okkur.
Rótarstöðin mín hefur verið að kalla, hrópa á mig. Eigðu sömuleiðis yndislegan og orkuríkan dag!
Hrönn, koss og gloss með eldrauðu ívafi!
www.zordis.com, 12.1.2009 kl. 13:04
Zordís ég sá á einhverri síðu að þú vildir getað horft á Eurovision þú átt að geta það í tölvunni daginn eftir að útsending hefur farið fram.
Kveðja
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.1.2009 kl. 18:15
Milla, TAKK fyrir það! Nú þarf ég bara að kanna hvort að hraðinn á netinu mínu bjóði uppá svona lúxus!
www.zordis.com, 12.1.2009 kl. 18:33
Já þú meinar, en ég hélt að það væri allt svo fullkomið þarna úti ert þú ekki annars
í útlandinu?
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.1.2009 kl. 19:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.