Saga Myndatöku ....

Ákveðið var í fyrirtækinu er ég starfa að myndataka væri málið.
 
Allir mættu prúðbúnir og fínir til myndatöku og það gerði mín einnig.  Splæsti í blástur og þótti bara vel til takast!
 
Ljósmyndarinn hins vegar var ekki alveg undir væntingum og sagði að glansinn í andlitinu  væri svona gljái sem væri einna líkastur þegar viðkomandi módel væri á ströndinni.  Hljómaði allt voða svona vel í síma en þegar við sáum myndirnar gat ég ekki stillt mig og lýst yfir vonbrigðum myndatökunnar.  Ég setti mig í samband við ljósmyndarann sem hafði heldur betur þyrlað í augu okkar með eigin ágæti! 
 
 
myndataka
 
Mynd af bestu vinkonu minni
 
anywho
 
Já, og ekki hætti ljósmyndarinn að gefa mér útskýringar á af hverju mér líkaði ekki myndefnið.
 
Fyrirsæturnar eru ljótar
Fyrirsæturnar eru ekki tilbúnar andlega
Fyrirsæturnar eru X
Fyrirsæturnar eru Z
og guð má vita hvað ........
 
Reikningurinn hlómaði upp á tæpar 1000€
 
JEDÚDDA MÍA
 
við fengum afslátt sem nam 940 € þar sem þetta var fyrsta verkefnið sem fyrirtækið tók að sér.
 
Ég átti ekki til orð yfir þessu.
 
Vill einhver fá ljósmyndara sem segir;
 
Þið eruð ljót
þið eruð óvön
þú ert með bólu
þú ert of feit
þú ert bara FYNDIN
þú ættir nú að reyna að gera eitthvað í þessu með útlitið
 
Og það besta
 
Ljósmyndarinn var hvorki fagur né fágaður.
 
Dásamleg lífsreynsla
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst vinkona þín stórglæsileg, það leynir sér ekki þrátt fyrir slæma myndatöku. Dóni er hann, þessi ljósmyndari.

Tilbúnar andlega? lol ... hmmm - Spurning að panta Dale Carnegi námskeið á línuna fyrir næstu myndatöku. Ég get mögulega framkvæmt þetta fyrir ykkur, er að vísu afleitur ljósmyndari en þigg ekkert að launum nema einn bjór :þ

Lisa (IP-tala skráð) 9.1.2007 kl. 22:44

2 Smámynd: www.zordis.com

Jæja segðu, þú fengir nú eitthvað betir en einn bjór!  Já þessi ljósmyndari var stórkostlega stórfurðulegur!  Minnti á Tröll og var hrjúfur sem slíkur!

www.zordis.com, 9.1.2007 kl. 23:12

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Ja for helvæde mana þig að mála kauða eins og þú sérð hann koma fyrir.....annars á ég ægætis mynd af þér ásamt fleiru góðu fólki á slútti á Hótel Íslandi minnir mig...

Solla Guðjóns, 9.1.2007 kl. 23:13

4 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Skemmtilegur ljósmyndari eða þannig. Sammála Sollu með að mála kauða.

Vatnsberi Margrét, 9.1.2007 kl. 23:30

5 identicon

Já, flott hugmynd að mál'ann.

Lisa (IP-tala skráð) 10.1.2007 kl. 01:09

6 Smámynd: www.zordis.com

Mála´nn gód spurning!

Talið er að ljósmyndarinn tilheyri sértrúarsöfnuði ...... furðulega andstæður því sem maður er vanur.

www.zordis.com, 10.1.2007 kl. 07:29

7 Smámynd: Ólafur fannberg

innlitskvitt

Ólafur fannberg, 10.1.2007 kl. 08:21

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Sérstaklega furðulegur,,,langar að sjá hann á striga!!!!!!

Solla Guðjóns, 10.1.2007 kl. 09:53

9 Smámynd: Ólafur fannberg

mig líka hehehe

Ólafur fannberg, 10.1.2007 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband