Calle Union Musical Torrevejense númer 17

Ég er að fara á vínkynningu og smökkun í kvöld ásamt gourmét veitingum í verslun í Torrevieja.  Það styttist í viðburðinn, við erum 4 saman sem ætlum að taka strætó niður í bæ og eiga þar góða stund og taka síðan taxa heim.  Svona vínsmökkunarkvöld verða að vera vel skipulögð Whistling  Á þessum sama stað erum við listavinkonurnar Maire Kalkowski og undirrituð með sýningu á verkum okkar sem passar alveg ágætlega við efnið.

Zordis en Union Musical nº7 Torrevieja

Hér er ég fyrir framan nokkur verk og þurrkuðu ávextina

Alltaf gaman að taka þátt í einhverju nýju eða það finst okkur vinkonunum allavega.  Sýningin stendur eitthvað út nóvember mánuð þannig að ef þú ert á Torrevieja svæðinu þá endilega kíktu í þessa flottu verslun og fáðu þér sérvalin vín, allskyns olífur og súrmeti ásamt allskyns kryddi, te og olíum svo eitthvað sé nefnt.

Lífið er ljúft


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mín dugleg að vera að halda sýningu, alltaf gaman á Spáni greinilega :)

Ásdís Sigurðardóttir, 8.11.2012 kl. 18:34

2 Smámynd: www.zordis.com

Alltaf gaman á Spáni og nóg að gera í listafélaginu okkar hér í San Miguel de Salinas. 

www.zordis.com, 16.11.2012 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband