Lauma sér í brauðtertu

hefur ekkert með lestur reglugerða og afsala að gera en eftir óralestur þá langaði herbadrottningunni í diet Coke og eina súkkulaði baun.  Bara eina ....  Dagurinn byrjaði mjög vel, held að Guð sé að segja mér að hætta á Herbadrykknum því ég gekk inn á skrifstofuna mína og kastaði hristaranum í gólfið svellfullum af vanilluhrysting.

Ekki nóg með að morgunmaturinn var farinn út um veður og vind heldur var draktin mín útsubbuð af klístruðu vanilludrykknum og laumaði sér aukreitis í skóna mína.   Kanski var Guð að segja mér eitthvað annað, en, óetin og glaðbeytt tók við næsta verkefni sem var síður að geði.  Innri vonbrigði urðu til þess að það næsta laðaðist að mér eins og mý á skít.  "I,m the shit = sem sagt!

Nú voru góð ráð dýr og bara eitt að gera í stöðunni, vera glöð og horfa framhjá þessum litlu hversdagslegu atburðum er gerast.  Eini munurinn er að taka rétt á þeim, með brosinu og gera sér grein fyrir að hinir eru líka mannlegir eins og sjálfið sem drottnar stundum yfir hæstu hæðir.  Best ég máli nokkur fjöll í kvöld og kanski eitthvað annað líka.

Best ég mjónist eitthvað og gleðjist með hinum.  bros bræðir hjarta! 

Húni konungur færði mér oggulítið Snickers sem rennur ljúflega niður með 0,2 kcal Diet Cokinu sem ég teiga.  Væri til í að horfa á Stuðmannamyndina og skella mér í eins og eina jarðaför .... "Brauðterturnar maður", væri til í að sleppa jarðaförinni en fyrir alla muni langar í brauðtertu!  Lísa næst verður brauðtertuveisla ...... O.K.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já já, gat skeð, bara flutt hingað!! Og ég sem hélt að það væri svona obbosslega mikið annríki að enginn tími væri til bloggskrifanna!!!
En þú ert fundin mín kæra og ég samgleðst þér með snickersið, sem er að mínu mati ómissandi....alla daga....
Knús til þín*

Elín Pelín (IP-tala skráð) 3.5.2006 kl. 18:23

2 Smámynd: www.zordis.com

Er ég sem sagt fundin! Hélt ég gaeti verid ein á fjölinni en zú ert idin og fundvís ..... til hamingju med ad hafa fundid mig. Ekkert eins skemmtilegt eins og ad hafa upp á zessari stelpu. ;)

www.zordis.com, 3.5.2006 kl. 21:17

3 identicon

Elska þig

sigrún (IP-tala skráð) 3.5.2006 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband